Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Howard Stern hyggur á forsetaframboð gegn Trump: „Ég myndi rassskella hann“

Howard Stern
Howard Stern Mynd: Bill Norton

Útvarps­maðurinn kjaftfori, Howard Stern ætlar að bjóða sig fram til forseta Banda­ríkjanna árið 2024 ef Donald Trump ætlar að bjóða sig fram. Vara­forsetaefni Stern er af dýrari kantinum.

Fram kemur á heimasíðu slúðusnápsins Perez Hilton að útvarps­maðurinn hrokkinhærði hjá SiriusXM útvarps­stöðinni, hafi sagt frá hugmynd sinni að bjóða sig fram til forseta 2024 í kjölfar ákvörðunar Hæstarétts Banda­ríkjanna að ógilda rétt til þungunar­rofs. Tók hann þó fram að hann myndi aðeins gera það ef Donald Trump ætlaði að bjóða sig aftur fram. „Ég myndi rass­skella hann,“ bætti hann við.

„Ég sagði við Robin [Quivers, samstarfs­konu Stern], og ég hata að viðurkenna það, en ég sagði við hana „Ég verð reyndar líklega að bjóða mig fram til forseta núna.“,“ sagði Stern í þættinum sínum um daginn.

Ef hinn 68 ára gamli útvarps­maður yrði forseti myndi hann vilja breyta nokkrum hlutum. „Gallinn við flesta forseta­fram­bjóðendur er að þeir eru með of mikla stefnu­skrá. Eina markmiðið mitt er að gera landið sann­gjarnt aftur.“ Hyggst Stern gera það meðal annars með því að breyta kosninga­ferlinu í Banda­ríkjunum svo kosningarnar endur­spegluðu almennilega vilja þjóðarinnar. „Gaur sem tapaði atkvæðunum, sigraði kosningarnar. Hversu lengi getum við haldið áfram að kjósa fólk sem tapaði atkvæðunum? Ég hélt langa ræðu yfir Robin þar sem ég útskýrði hvaða sára­einfalda hugmynd myndi laga þetta: Eitt atkvæði, ein manneskja, engir kjörmenn lengur. Ég ætla að losa mig við það. Og þá spurði Robin „Geturðu það, sem forseti?“, og ég svaraði: „Ég veit það ekki, við verðum bara að komas að því!“,“ sagði Stern í þættinum.

Þá myndi hann einnig skipa fimm nýja Hæstaréttadómara og afurkalla þetta „kjaftæði“ sem þungunar­rofsbannið er að hans mati. Segist hann ekki vera að grínast með þetta, honum sé full alvara.

Og hver yrði vara­forsetaefni Sterns? Nú hver annar en Hollywood-leikarinn Bradley Cooper, auðvitað!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt