Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Skotinn til bana og settur í tunnu fulla af steypu: „Ég var mjög náin Gísla“

„Þetta er allt svo hræðilegt að maður er enn þá í algjöru sjokki,“ sagði systir mannsins sem fannst myrtur í Suður-Afríku í júlí árið 2005. Hann hét Gísli og var 54 ára gamall.

Gísli var ókvæntur en lét eftir sig son búsettan á Íslandi. Gísli hafði búið í Suður-Afríku í 10 ár og var þar með eigin atvinnu­rekstur. „Ég hef verið mjög náin Gísla, sem var litli bróðir minn og við höfum alltaf haldið sambandi,“ segir systirin, sem er næst Gísla í aldri af fjórum systkinum.

Hún segir að áður en Gísli var myrtur hafi hann verið í heimsókn hjá henni í Banda­ríkjunum þar sem hún býr ásamt fjöl­skyldu sinni. „Hann fór heim 24. maí og það lítur út fyrir að hann hafi verið myrtur sama dag og hann kom aftur til Suður-Afríku,“ segir hún. Gísli notaði tækifærið og bauð syni sínum út til Banda­ríkjanna á sama tíma og hann heimsótti systur sína. „Þeir áttu hér saman innilegan tíma,“ sagði hún og kvað þá feðga hafa verið í góðu sambandi þótt langt væri á milli. „Maður verður bara að þakka fyrir þennan tíma sem þeir fengu saman.“

Samkvæmt upplýsingum lögreglu í Suður-Afríku hafði Gísli nýverið selt íbúð í Jóhannesar­borg og parið sem grunað er um að hafa myrt hann reynt að komast yfir peningana sem hann fékk fyrir íbúðina. Katla segist hafa heyrt af þessu og áréttaði að í því fælist engin vísbending um að Gísli hafi verið á förum frá landinu eða eitthvað slíkt.

„Ég veit að hann var nýlega búinn að selja raðhús og ekki farinn að festa kaup á öðru húsi. Þess vegna var hann með allan þennan pening í banka. Hann starfaði við að kaupa íbúðir, gera þær upp og selja svo aftur, þannig að hann var ekki á förum. Hann fékk bara gott verð fyrir húsið og seldi það.“ Systir hans segir að lík Gísla hafi verið flutt heim til Íslands til greftrunar jafn­skjótt og lögregla í Suður-Afríku heimilaði.

Skipulögðu kveðjuveislu áður en hann fór vestur um haf

Örvænt­ing vegna skorts á pen­ing­um til að greiða fyr­ir skóla­göngu barna Desiree Ober­holzer rak hana til að fall­ast á ráðagerð um að myrða Gísla, sem fannst myrt­ur í Suður-Afr­íku í júlí 2005 eins og fyrr segir. Kom þetta fram í vitn­is­b­urði Desiree fyr­ir hæsta­rétti Jó­hann­es­ar­borg­ar, að því er vefút­gáfa suður-afr­íska dag­blaðsins Mail & Guar­di­an greindi frá.

Desiree sagði að meðákærði henn­ar, Willie Theron, hefði sagt sér frá ráða­gerðinni eft­ir að hún sagði hon­um að hún hygðist fara aft­ur út í vændi til að afla sér fjár. Desiree afplán­ar nú 20 ára dóm fyr­ir morð að yf­ir­lögðu ráði sem hún játaði. Dóm­ur­inn var kveðinn upp 20. októ­ber 2005.

Sagði Desiree fyr­ir rétt­in­um í gær að Willie hefði boðið henni 100.000 rand (936 þúsund kr. á þáverandi gengi) ef hún vildi aðstoða hann við að myrða Gísla. Willie sýndi henni banka­yf­ir­lit Gísla með þre­faldri þeirri inni­stæðu. Í fyrstu kvaðst Desiree hafa tekið þessu sem gríni, en fall­ist svo á að aðstoða Willie við morðið áður en Gísli færi til Banda­ríkj­anna.

Þau skipu­lögðu kveðju­veislu fyr­ir Gísla kvöldið áður en hann ætlaði vest­ur um haf. Þar laumaði Desiree muld­um vali­um-töfl­um í drykk Gísla, að beiðni Willies. Þau biðu þess svo að Gísli færi í lítið timb­ur­hús sem hann bjó í í Kempt­on Park að sofa. Þegar þau komu þar síðar um nótt­ina var Gísli enn vak­andi og að lesa. Þau fóru að sækja þriðja mann til að aðstoða sig og þegar þau sneru aft­ur var Gísli enn vak­andi. Ákváðu þau þá að fresta ódæðinu þar til Gísli sneri aft­ur frá Banda­ríkj­un­um.

Líkið sett í tunn fyllt af steypu

Meðan Gísli dvaldi þar bað Willie Desiree að út­búa símbréf þess efn­is að Gísli ætlaði ekki að snúa aft­ur til Suður-Afr­íku. Í símbréf­inu voru einnig fyr­ir­mæli um hvernig ráðstafa ætti eig­um hans.

Willie Theron játaði fyr­ir rétt­in­um að fé­græðgi hefði rekið sig til að draga fé með svik­sam­leg­um hætti af reikn­ingi Gísla í júlí 2005. Willie sætti sex ákær­um fyr­ir fjár­svik og játaði sig sek­an af þeim öll­um. Theron er einnig ákærður ásamt þrem­ur öðrum, eig­in­konu sinni Lindu Theron, Andre Frederick Koekemoer og Hendrik Johann­es Breedt, fyr­ir að hafa skotið Gísla til bana í maí 2005. Eft­ir morðið eru þau tal­in hafa ekið líki Gísla að húsi Breedts í Boks­burg og sett það í tunnu sem fyllt var af steypu. Þau hafa öll neitað aðild að morðinu.

Rannsóknin umfangsmikil

Krufn­ingin leiddi í ljós að hann hefði verið skot­inn í höfuðið. Andy Pieke, talsmaður lög­regl­unn­ar í Boks­burg, sagði í sam­tali við Frétta­vef Morg­un­blaðsins, að krufn­ing­ hafi farið fram um klukk­an 10 að staðar­tíma sama morgun.

Ætt­ingj­ar manns­ins, óskuðu eft­ir því að fá lík hans flutt til Íslands.

En lögreglu­stjóri sagði rann­sóknina væri mjög um­fangs­mikil og var henni áætlað að ljúka fyr­ir 22. ág­úst 2005. Þá í kjölfarið var svo réttað á ný í máli þeirra Des­ereé Ober­holzer og Willie Theron, sem hafa verið ákærð fyr­ir morðið. Lík mannsins var svo að lokum fllutt heim til Íslands.

Fram kom­ur í suður-afr­ísk­um fjöl­miðlum í dag að Henkie Breedt, hús­eig­and­inn í Boks­burg sem fann lík Gísla Þorkels­son­ar um helg­ina, hafi sagt lög­reglu að hann hafi um pásk­ana farið í úti­legu ásamt Gísla og þeim Des­ereé Ober­holzer og Willie Theron, sem hafa verið ákærð fyr­ir morðið á Gísla.

Sagði Breedt að Gísli hefði þá til­kynnt þeim að hann ætlaði til Banda­ríkj­anna og varð það að sam­komu­lagi að þau Ober­holzer og Theron myndu aka Gísla á flug­völl­inn og sækja hann þegar hann kæmi frá Banda­ríkj­un­um þar sem hann heim­sótti syst­ur sína.

Breedt sagði, að Gísli hefði ný­lega selt eina af fast­eign­um sín­um, en hann hefði verið til­tölu­lega fjáður og átt nokkr­ar fast­eign­ir. Talið er að þau Ober­holzer og Theron hafi myrt Gísla til að kom­ast yfir fé hans. Í ljós hef­ur komið að þau seldu bíl sem hann átti og reyndu að fá aðgang að banka­reikn­ing­um hans, að því er haft er eft­ir Henk Strydom, sak­sókn­ara.

Málið komst upp þegar tunnan var færð í garðinum

Málið komst upp þegar Breedt var að vinna í garði sín­um og færði til tunnu sem Theron hafði beðið hann um að fá að geyma í garðinum. Tunn­an opnaðist og komu þá í ljós fæt­ur sem stóðu upp úr stein­steypu í tunn­unni.

Ober­holzer játaði í gær aðild að mál­inu fyr­ir friðdóm­ara. Fram kem­ur í blaðinu The South African Star, að Ober­holzer, sem var 43 ára, hafi verið yf­ir­veguð í rétt­ar­saln­um og ekki sýnt svip­brigði. Theron, sem var 28 ára, var hins veg­ar tauga­óstyrk­ur að sjá þegar hann kom í rétt­ar­sal­inn í ökkla­járn­um í fylgd tveggja lög­reglu­þjóna.

Strydom sagði að fólkið hefði verið ákært fyr­ir morð að yf­ir­lögðu ráði og fjár­svik. Theron hafnaði fyrst aðstoð lög­manns en síðar fóru bæði hann og Ober­holzer fram á lög­fræðilega aðstoð. Þau lýstu því yfir, að þau myndu ekki óska eft­ir því að verða leyst úr haldi gegn trygg­ingu. Gæslu­v­arðhald yfir þeim var fram­lengt til 22. ág­úst sama ár.

Heimildir:

Innlent. 1. febrúar. 2007. Réttað vegna morðs á Íslendingi í Suður-Afríku. Morgun­blaðið.

Innlent. 14.júlí. 2005. Sá sem fann lík Gísla þekkti hann og meinta morðingja. Morgun­blaðið.

Innlent. 14. júlí. 2005. Staðfest að Íslend­ingur var skotinn í höfuðið. Morgun­blaðið.

Innlent. 13. Júlí. 2005. Var myrtur við komuna frá BNA. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá