Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sigmundur Ernir skammar Rússa í fánamálinu: Ritstjórinn stefnir á hæsta fjall Afríku

„Þetta var gert til þess að hræða og hræða aðra í kringum okkur á hinum Norður­löndunum og víðar í frjálsri Evrópu upp á að gæta sín; fara ekki að birta svona myndir – það gæti haft eftirmál. En við eigum bara að standa í lappirnar,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Frétta­blaðsins, í hlaðvarps­viðtali við Reyni Traustason þegar þeir ræða um afskipti rússneska sendi­ráðsins hér á landi í kjölfar þess að Frétta­blaðið birti mynd af rússneska fánanum sem var Rússunum ekki að skapi. Hann skammar Rússa og segist ekki hvika frá því að birta fréttir og myndir sem eigi erindi við almenning.

„Ég hef verið í blaða­mennsku í yfir 40 ár og hef aldrei fengið tilskipanir frá sendiráði á Íslandi sem vill hlutast til um það hvaða myndir við birtum og hvaða myndir við birtum ekki.“

Sigmundur segir jafnframt; „að honum finnist þetta ekki vera aðför að Frétta­blaðinu í sjálfu sér. Mér finnst þetta aðför að íslenskum fjöl­miðlum. Ég tók sérstak­lega eftir því að íslenskir fjöl­miðlar stóðu saman allir sem einn gegn þessari aðför og það er vel og ég tek hann minn ofan fyrir íslensku fjölmiðla­fólki fyrir að sýna samstöðu á svona stundum þegar sótt er að með einræðis­legum tilburðum að frjálsri fjöl­miðlun. Og frjáls fjöl­miðlun er einn af hornsteinum lýðræðis og mann­réttinda.“

Sama dag og bréfið frá rússneska sendi­ráðinu barst var vefurinn, frettabladid.is, tekinn niður og segir Sigmundur Ernir að hann hafi hökt fram eftir morgni. „Það kom jafnframt hótunar­bréf í okkar ritstjórnar­póst væntanlega frá rússneskum þjóðernis­sinnum sem sögðust ætla að taka vefinn algerlega niður klukkan 12 samdæturs að Moskvu­tíma; klukkan níu um kvöldið að okkar tíma. Og það gekk ekki eftir. Það varð engin árás á vefinn á þeim tíma þannig að þetta var í orði kveðnu til þess að skapa ótta.“ Sigmundir Ernir segir að fundað hafi verið með utan­ríkis­ráðuneytinu, netöryggis­þjónustu ríkisins og ríkis­lögreglu­stjóra.

Sigmundur Ernir er önnum kafinn maður. Hann er er ritstjóri, rithöfundur og sjónvarps­maður. Svo klýfir hann fjöll sér til ánægju. Í næsta mánuði er hann á leið á Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku.

Viðtalið má hlusta í heild sinni í spil­aranum hér að ofan, en viðtalið verður svo birt í heild sinni í fyrra­málið á vefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt