Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kommentin krufin – Höfundur athugasemdar um Svölu: „Hann var að slást og selja dóp hérna á Spáni“

Svala Björgvins Mynd / Unnur Magna
Svala Björg­vins Mynd / Unnur Magna

„Nú, hinn maðurinn lenti í steininum af því að hann var að slást og selja dóp hérna á Spáni, eftir því sem ég best veit,“ segir Una, aðspurð um athugasemd sem hún ritaði á Facebook í tengslum við nýtt samband Svölu Björgvins­dóttur.

Um er að ræða athugasemd undir frétt Frétta­blaðsins, sem birt var á Facebook-síðu miðilsins, um það að tónlistar­konan Svala Björgvins­dóttir væri komin í nýtt ástar­samband. Svala sagðist þar vera mjög hamingjusöm.

Við fréttina skrifaði Una: „Vonandi ekki annar dópsali, en það er þó alltaf betra að fá dópið frítt.“

Svala ákvað að hunsa ekki athugasemd Unu, heldur skrifaði á móti: „Elsku þú. Rosalega ertu óviðeigandi! Ég hef aldrei á ævi minni tekið eiturlyf og ég drekk ekki einu sinni áfengi, vonandi líður þér vel að tala svona um persónu sem þú þekkir ekki neitt. Sendi þér faðmlag því þú þarft greini­lega á því að halda.“

Athugasemd Svölu vakti mikil viðbrögð og hafa yfir 700 manns brugðist við henni. Mikið af athuga­semdum hafa verið skrifaðar undir færslu Unu og virðast flestir telja hana hafa gengið of langt með ummælum sínum. „Til hamingju með mesta óþarfa og smekk­lausa komment dagsins,“ segir einn aðili til að mynda.

Mynd/skjá­skot: Facebook-Frétta­blaðið

Mannlíf ákvað að slá á þráðinn til Unu fyrir liðinn „Kommentin krufin“ og fá að heyra frá henni sjálfri hvað hafi vakið fyrir henni þegar ummælin voru rituð og hvað hún ætti þar við. Skemmst er frá því að segja að Una var ekki sérstak­lega kát með símtal blaða­manns.

„Tékkarðu á öllum hinum athugasemdunum líka?“ spyr Una. „Ég bara sagði þetta og ég hef ekkert meira um það að segja, sorrí.“

Þannig að þú stendur við þessi ummæli?

„Já. Það er mjög gott að fá dópið frítt ef þú notar það. Hún segist ekki nota það, það er gott. En ég vona að strákurinn sé ekki annar dópsali. Hvað er að því að ég voni það? Það er ekkert athuga­vert við það!“

En þú sást að hún svaraði þér?

„Já, já.“

Og henni þótti þetta óviðeigandi athugasemd.

„Já, já.“

En þér finnst það ekki?

„Nei, en ef hún vill misskilja hana þá er henni það velkomið. Það kemur mér ekkert við hvernig þið lesið út úr því sem ég skrifa. Ekki meira heldur en hvað þið hafið áhyggjur af því hvernig fólk les fréttirnar ykkar.“

Hvernig myndir þú vilja að lesið yrði út úr athugasemdinni?

„Bara eins og ég orða það. Vonandi er þetta ekki annar dópsali. Hvað er að þér? Af hverju ætti ég að meina eitthvað annað en stendur þarna?“

Una sagðist þá standa við orð sín í athugasemda­kerfinu. Hún sagði það ekki skipta sig máli hvernig fólk læsi út úr ummælunum.

Aðspurð sagðist hún allt eins geta viðhaft ummælin í persónu.

„Já, afhverju ekki? Guð minn góður, ekki vona ég það að þessi strákur sé einhver dópsali! Hvað er að þér?“

Fólk er eindregið hvatt til þess að muna að aðgát skal höfð í nærveru sálar – og að athugasemda­kerfi eru opinber vettvangur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá