Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Höfuðpaur Stóra fíkniefnamálsins handtekinn í aðgerð lögreglu – Hald lagt á 40 kg af kannabisefnum

Lögreglan
Lög­reglan

Ólafur Ágúst Hraundal, áður Ægisson situr nú í gæslu­varðhaldi grunaður um að vera aðal­maðurinn á bak við umfangs­mikið fíkniefnamál sem lögreglan hefur rannsakað síðustu mánuði. Hann var höfuð­paurinn í Stóra fíkniefna­málinu frá því um aldamótin.

Samkvæmt frétt Rúv hafa fimm manns verið úrskurðaðir í tveggja vikna gæslu­varðhald vegna gruns um skipulagða brota­starfsemi og fíkniefna­lagabrot. Ólafur Ágúst var hand­tekinn eftir eftirför lögreglunnar á föstu­daginn.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að aðgerðin hafi verið gegn fram­leiðslu, sölu og dreifingu fíkniefna sem og peningaþvættis.

Samkvæmt heimildum Mannlífs, er höfuð­paurinn í málinu Ólafur Ágúst Hraundal, sem hlaut níu ára fangelsisdóm í Stóra fíkniefna­málinu árið 2000. Þá var hann einnig dæmdur árið 2007 í níu og hálfs árs fangelsi fyrir umsvifa­mikið fíkniefna­smygl.

Ólafur var hand­tekinn síðstliðinni föstudag eftir æsilega eftirför lögreglu á Reykja­nesbraut en eftir­förin olli miklum skemmdum, bæði á lögreglu- og sérstveitarbílum.

Alls voru tíu hand­teknir í viða­miklum aðgerðum lögreglunnar en einn þeirra var íbúi skammt frá Hellu. Húsleit var gerð víða, á höfuð­borgar­svæðinu sem og á Suður­landi og meðal annars hald lagt á 40 kílóum af kannabis­efnum. Tugir lögreglu­manna tóku þátt í aðgerðunum ásamt sérsveitinni. Samkvæmt Margeiri Sveins­syni, aðstoðaryfirlögegluþjóni miðlægrar rannsóknar­deildar, voru kannabis­efnin framleidd og ræktuð á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá