Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Faðir hinnar níu ára Oliviu sendi frá sér yfirlýsingu: „Dauði hennar má ekki vera til einskis“

Olivia með föður sínum
Olivia með föður sínum

Faðir hinnar níu ára gömlu Oliviu Pratt-Korbel sem skotin var til bana á heimili sínu í Liverpool, minntist hennar nýlega en hann sagði hana „mjög bjartan neista sem elskaði að hlæja“.

Olivia lést af skotsárum eftir að móðir hennar reyndi að stöðva inngöngu byssu­manns er hann elti annan mann inn á heimili þeirra mæðgna í Liverpool að kvöldi dags þann 22. ágúst síðastliðinn.

Sjá einnig: Morðingi Olivu litlu mögulega fundinn – Lögreglan handtók 36 ára mann eftir vopnaða aðgerð

Faðir hennar, John Francis Pratt segir að dauði hennar megi ekki vera til einskis um leið og hann hvetur fólk að koma fram með upplýsingar. Lögreglan handtók 34 ára karlmann, grunaðan um morðið á sunnu­daginn. Er hann enn í gæslu­varðhaldi.

Lögreglan í Merseyside-hverfinu fékk 36 klukku­stundir til viðbótar á mánudags­kvöld, til að halda áfram yfirheyrslu yfir þeim grunaða en hann var einnig hand­tekinn vegna gruns um morð­tilraun. Þá gilti fram­lengingin einnig um yfirheyrslur yfir tvo aðra karlmenn, 29 ára og 41 en þeir eru taldir hafa aðstoðað hinn grunaða. Einnig er enn verið að yfirheyra fjórða manninn sem einnig er grunaður um að aðstoða þann grunaða.

Í yfir­lýsingu frá fjöl­skyldu Oliviu, sagði faðir hennar: „Orð geta ekki lýst þeim sársauka sem við finnum eftir að Olivia var svo grimmilega tekin frá okkur. Þeir sem bera ábyrgð á því verða að skilja hvað þeir gerðu.“ Lýsti hann dóttur sinni sem „mjög bjartan neista sem vissi vel hvað hún vildi“ og að hún hafi „elskað að hlæja og fá aðra til að hlæja“.

„Hún gat verið mikill stríðnis­púki og hún elskaði að stríða frænkum sínum, sérstak­lega þeim sem eru eldri en hún,“ sagði hann ennfremur og bætti við: „Og ef þær tóku því illa, hló hún bara og sagði „ekki gleyma að ég er litla frænka ykkar“.“

Faðir Oliviu þakkaði þeim sem hafa lagt lögreglunni lið í rannsókn málsins en biðlaði til almennings að ef einhver er með frekari upplýsingar um málið, að koma þeim til lögreglunnar.

„Við vitum að flest fólk í Merseyside er góðhjartað fólk og við þurfum öll að hjálpast að,“ sagði hann aukreitis í yfir­lýsingunni og bætti við: „Við viljum ekki að annað barn láti lífið í svo hrika­legum aðstæðum og við viljum ekki sjá aðra fjöl­skyldu þjást eins og við erum að þjást núna. Dauði Oliviu má ekki vera til einskis og við viljum hjálpa fólki að finnast það öruggt og tryggja öryggi þeirra. Það getur aðeins gerst ef við stöndum saman og tryggjum það að götur okkar og samfélag er laust við byssur og fólk sem notar byssur.“

Jarðarför Oliviu fer fram þann 15. september í St. Margaret Mary´s kirkjunni í Dovecot. Fjöl­skylda hennar hefur beðið fólk að mæta í einhverju bleiku í jarðar­förina.

BBC sagði frá málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“