Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

The Simpsons með spá sem vonandi rætist ekki – Furðu margt sem ræst hefur í gegnum tíðina

Simpsons fjöl­skyldan frá Springfield hefur um áratuga­skeið glatt heiminn með heimsku­pörum sínum og samfélags­rýni sinni. En þættirnir eru einnig frægir fyrir spádóms­gáfur sínar. Spáin fyrir 2023 er hroll­vekjandi.

Hér eru aðeins nokkur dæmi um það sem The Simpsons sáu fyrir:

Árásin á Siefried og Roy

Árið 1993 kom út Simpsons-þátturinn $pringfield (Or, How I Learned to Stop Worrying and Love Legalized Gambling). Í þættinum sjást töfra­mennirnir Siegfried og Roy verða fyrir hrottalegri árás hvíts tígris­dýrs í miðri sýningu. Árið 2003 gerðist einmitt það, hvítt tígrisdýr réðist á Roy Horn í miðri sýningu og slasaði hann illa.

Donald Trump sem forseti Bandaríkjanna

Í þættinum Bart to the Future árið 2000, fóru spádóms­gáfur höfund­anna aldeilis á flug en í þættinum er skyggnst inn í fram­tíðina og talað um Trump sem fyrr­verandi forseta. Í þættinum er systir Bart, Lisa forseti Banda­ríkjanna. Segir hún á skrif­stofu sinni: „Eins og þið vitið, erfðum við fjármála­kreppu af Trump forseta.“

Líkindin eru ugg­væn­leg.

Sautján árum síðar varð Trump fertugasti og fimmti forseti Banda­ríkjanna.

Árið 2008 sást Homer reyna að kjósa Barack Obama í kosningum en gölluð kosninga­vélin breytti vali hans. Fjórum árum síðar, neyddist kosninga­stjórn í Pennsylvaniu að fjarlægja kosningavél því hún breytti alltaf vali fólks á Obama og yfir í val á andstæðing hans, Mitt Romney.

Game of Thrones

Árið 2017 virðist sem Simpsons-þáttur hafi spáð rétt fyrir um risaplott dreka­móðurinnar Daenerys Targaryen í loka­þáttum Game of Thrones. Fyrir þá lesendur sem ekki hafa enn séð síðustu seríu þáttanna skal ekki minnst á plottið frekar.

En hér er mynd.

2023

Og nú er komin ný spá fyrir árið 2023 og hún er ekkert sérlega falleg.

The Simpsons virðst nú spá kjarnorku­styrjöld milli Banda­ríkjanna og Kína. Í einum þættinum heyrist frétta­maður segja í sjón­varpinu: „Það er með mikilli sorg sem ég tilkynnig ykkur að Ameríka og Kína hafa lýst yfir stríði. Búist er við að massíf kjarnorku­árás nái að ströndum okkar á næsta klukku­tíma!“

Og nú er bara að kross­leggja fingur og vona að spáin rætist ekki en samskiptin milli þjóðanna hafa ekki verið jafn stirð og hún er um þessar mundir, um langt skeið.

Irish Mirror fjallaði um málið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“