Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Logi telur markaðsleiðina henta best fyrir sjávarútveginn: „Svo þjóðin fái það sem hún á skilið“

Logi Einarsson. Mynd/Hallur Karlsson.
Logi Ein­ars­son. Mynd/Hallur Karlsson.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar var gestur Reynis í Mann­lífinu þar sem hann ræddi um árin sín fyrir Norðan, skemmtilegan tíma í hljóm­sveitinni Skrið­jöklum og Samfylkinguna.

Logi er jú að norðan, úr höfuðvígi Samherja. Hvað finnst honum um Samherja­málið?

„Ég held að ég sé á ólíkri skoðun miðað við marga í kjör­dæminu og ekki síst í sjávar­útvegs­málum. Ég hef aldrei farið dult með það að mér finnst sjávar­útvegs­kerfið ósann­gjarnt. Mér finnst sjávar­útvegs­kerfið líka hættulegt, vegna þess að í skjóli þessara ódýru afla­heimilda sem útgerðar­fyrirtækin fá, þá hafa þau getað vaxið gríðar­lega.

Þau hafa getað hreiðrað um sig í alls konar atvinnu­greinum og þau ná hreðja­tökum á samfélaginu hvort sem þau beiti því meðvitað eða ómeðvitað. Vegna þess að völd eru af mörgu tagi; það er til beint vald, en það er líka til áhrifa­vald og það er hættulegt. Þannig að ég er ekkert feiminn við að segja það, að þó að Samherji sé í mínu kjördæmi, þó að Síldar­vinnslan sé í mínu kjördæmi og þó að Brim sé stór leikandi líka á norð­austur­svæðinu, þá telji ég að það þurfi að endur­hugsa þetta kerfi með meira réttlæti í huga, þannig að þjóðin fái meira af auðlindinni.

En af því að þú nefndir Samherja, þá geri ég ráð fyrir að þú sért líka að hugsa um Namibíu­málið. Það mál er í rannsókn en ýmislegt bendir til þess að þar hafi mjög óhuggulegir hlutir verið framkvæmdir.“

Hverju myndi Logi breyta fyrst í sjávar­útvegs­kerfinu, kvóta­kerfinu, ef hann hefði völd til þess?

„Það er þrennt sem þarf að koma inn í stjórnar­skrá fyrir það fyrsta. Það er ákvæði um sjálfbærni og auðvitað þjóðar­eignina. Síðan er það ákvæði um tíma­bindingu afla­heimilda og loks er það ákvæði um gjaldtöku. Ákvæðið sem Katrín lagði ein og sér á borðið síðasta vor talaði meira að segja um það að það mætti taka gjald vegna afla­nýtingar í ágóða­skyni.

Ég vil meina að ef hún er búin að skilgreina gjaldtöku vegna veiða í ábáta­skyni þá eigi ekki að gefa neinn afslátt frá fullu gjaldi. Fólk getur svo deilt um hvaða leið sé best að því. Er það gert með veiði­gjöldum? Ég hallast að því að markaðs­leið sé einna gáfulegust til þess. Þar tryggjum við að minnsta kosti að útgerðirnar borgi nógu hátt verð til þess að það sé einhver trygging fyrir því að þjóðin sé að fá það sem hún á skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá