Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jóhann Valgeir hafði rétt fyrir sér – Mygla greindist í íþróttahúsinu

Eskifjörður – Myndin tengist fréttinni ekki beint –
Eski­fjörður – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd: Fjarðarbyggð

Bæði húsnæði grunn­skóla Eski­fjarðar og íþróttahús bæjarins innihalda myglu. Hefur þetta nú verið staðfest en sýni voru tekin þar fyrir áramót. Vinnur nú Fjarða­byggð að nánari greiningum og viðbrögðum á niður­stöðunum.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að mygla hafi verið staðfest bæði í grunn­skóla Eski­fjarðar sem og íþrótta­húsi af verkfræði­stofunni Eflu en íþrótta­kennarinn Jóhann Valgeir Davíðsson hafði bent á slæmt ástand og mögulega myglu í fjöldi ára án viðbragða. Það var ekki fyrr en að Rúv gerði frétt um kvartanir Jóhanns Valgeirs að skriður komust á málið.

Sjá einnig: Starfs­maður félags­miðstöðvar í Fjarða­byggð sendur í leyfi nokkrum dögum eftir gagnrýni á myglu

Fjarða­byggð sendi frá sér tilkynningu í gær, meðal annars í kjölfar fyrir­spurnar Austur­fréttar en þar kemur fram að í skólanum hafi greinst mygla í fundar­herbergi, andyri á annarri hæð skólans og kennslu­stofu 312 sem er á þriðju hæð. Í haust hafði kennslu­stofan verið tekin úr notkun vegna myglu­gruns.

Mygla greindist svo í suðaustur­vegg íþrótta­hússins, sem stendur við skólann en ekki í öðrum sýnum.

Samkvæmt upplýsingum sem Austur­frétt fékk frá Fjarða­byggð í gær voru starfs­menn framkvæmda­sviðs Fjarða­byggðar að fara nánar yfir skýrsluna til að átta sig almennilega á umfangi myglunnar og þeirra aðgerðir sem þarf að fara í.

Unnið verður í nánu samstarfi við sérfræðinga Eflu, segir í tilkynningunni, sem og skóla­stjórnendur, foreldra, nemendur og starfs­fólk skólans. Funda á í næstu viku með starfs­fólki og sérfræðingum Eflu.

Myglu­tegundir í byggingum geta verið gríð­armargar en í Foss­vogsskóla greindust á sínum tíma 11 tegundir myglu­svepps, þar af gátu sjö þeirra haft slæm áhrif á heilsu fólks. Þess skal getið að nú þremur árum eftir að mygla greindist í Foss­vogsskóla, er skólinn nú laus við myglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp