Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Egill Ólafsson skrifar umsögn um plötu Kára Egilssonar: „Lagasmíðar eru margar hverjar mjög fínar“

Kári Egilsson er afar efnilegur tónlistarmaður.
Kári Egilsson er afar efni­legur tón­list­ar­maður.

Egill Helgason birtir færslu á Facebook-síðu sinni að sjálfur Egill Ólafsson hafi skrifað umsögn um plötu sonar hans, Kára.

Egill Helgason er stoltur af syni sínum og má vel vera það.

„Kári Egilsson er ungur íslenskur músíkant, sem ég hef áður heyrt spila listavel á sitt djassaða klavier – en nýlega gaf hann út, á Spotify, nýja músík með eigin lögum og textum. Útgáfan nefnist „Palm Trees In The Snow“ en, þar kveður við annan og óvæntan tón.“

Egill segir að „hér birtist Kári ekki aðeins sem laga­smiður og texta­höfundur, heldur einnig sem söngvari. Stíllinn á lögunum er stundum létt – poppaður, með hip hop hryni og á stundum má greina létt áhrif frá djassi og milli-músík.

Egill Ólafsson er ánægður með plötu Kára Egils­sonar.

Laga­smíðarnar eru margar hverjar mjög fínar og minna um sumt á eldri tónsmiði eins og; Jimmy Webb og Bacharach og á stundum má greina áhrif frá Gunnari Þórðar­syni. Þetta er sagt unga tónskáldinu til hróss – ekki ónýtt að fara í smiðju til snillinga og gera það vel og fallega.“

Egill líkir Kára að sumu leyti við sjálfan Burt Bacharah.

Egill nefnir að „þetta á til dæmis við um eitt af bestu lögum safnsins, að mínu mati; „Something Better“ Textar Kára, eru yfirleitt mjög fínir og engu líkara en þar fari mun eldri maður en Kári – en ungir menn taka út þroska með öðrum hætti í dag en mín kynslóð gerði og er það vel.“

Meistari Egill Ólafsson endar grein sína á þessum orðum:

„Þessi útgáfa sannar fyrir mér fjöl­breytta hæfileika Kára, sem kunnáttu­manns í lagasmíð og textagerð. Sem söngvari tekst honum ekki alltaf jafn vel upp, en hann á það til að „glissa“ eða renna sér full mikið upp og niður að og frá tónunum, fyrir minn smekk, eins og t.a.m. „Moonbeam“. Annað lætur honum betur að syngja; „Something Better“ er til dæmis vel sungið hjá Kára.

Áfram Kári – hér er að ferðinni laga­smiður sem vert er að gefa gaum. Um leið og ég mæli með því besta á „Palm Trees In The Snow“sem er vísbending um makalaust þroskað verklag – vil ég segja; til hamingju með þig Kári – áfram til stjarnanna! (í mars 2023 / egill ólafsson).“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt