Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Breytt veðurfar og þétting byggðar – Fjölbreytt verkefni skrúðgarðyrkjumeistara

Guðmundur Atli Pálmason
Guð­mundur Atli Pálmason

„Við lifum á tímum þar sem lögð er mikil áhersla á umhverfið og að vinna hlutina á sem umhverfisvænastan hátt og það er mikil áskorun hjá okkur skrúð­garðyrkju­meisturum,“ segir Guðmundur Atli Pálmason sem rekur fyrir­tækið GAP sf. ásamt eiginkonu sinni, Þórveigu Benedikts­dóttur.

„Önnur áskorun tengist breytingum í veðurfari sem veldur til dæmis því að töluvert meiri úrkoma fellur í einu en þekkst hefur áður og því þarf að losna við yfirborðs­vatn á einhvern hátt og það þarf að koma því inn í hönnun garða. Ég held að framtíðin í þessu sé mjög björt fyrir okkur skrúð­garðyrkju­meistarana, því að fólk er alltaf að verða meðvitaðra um umhverfi sitt og hvernig það vill að líti út í kringum sig.“

Guðmundur Atli segir að fyrir­tækið starfi mikið fyrir sveitar­félög og að markmiðið sé að vinna vandaða vinnu sem skilar sér til lengri tíma.

„Það eru áskoranir í tengslum við þéttingu byggðar. Það eru færri og minni opin svæði og þá skiptir máli að þau séu vel gerð og að gróðurinn sé miðaður við þær skugga­myndanir sem hafa orðið.“ Fyrir­tækið vinnur einnig á einstaklings­markaði, en þó minna en áður.

„Fyrirtæki okkar er með tæki sem þarf til að vinna garðinn frá a til ö. Við komum að verkefnum á mismun­andi stigi. Við sjáum til dæmis um jarðvegs­skipti, hellulögn, hleðslur, gróður og gras. Í sumum tilfellum komum við að hönnun garða þegar um léttari hönnun er að ræða og þar sem ekki er verið að leysa mjög flókin viðfangs­efni. Fyrirtæki mitt kemur yfirleitt mjög snemma inn í ferlið. Ég veiti einnig oft faglega ráðgjöf um gróður og úrbætur garða.“

Viðhald og notkun

Guðmundur Atli segir að áður en framkvæmdir við garð hefjist sé nauðsynlegt að hugsa til þess hversu auðveldur hann á að vera í viðhaldi. „Þetta er eitt af þeim atriðum sem mikilvægt er að gera ráð fyrir í upphafi sem og aðgengi í garðinum og notagildi hans. Erum við að tala um að nýta hann mikið eða lítið? Vill fólk til dæmis geta haldið veislur í garðinum eða er hann hugsaður sem bara vin fyrir heimilis­fólk? Þetta eru allt þættir sem þarf að hugsa um. Ef fólk er ekki að hugsa um einfalda útfærslu þá myndi ég í öllum tilfellum mæla með því að fólk leitaði til garð­hönnuða eða landslags­arkitekta til þess að fá örugglega það sem það vill fá. Svo er mikilvægt að leggja áherslu á að allt sé vel unnið; að undir­búnings­vinnan sé góð og að jarðvegs­skipti séu góð til þess að garðurinn standi sem lengst.“

Þegar búið er að ákveða hvernig garðurinn á að vera fær fólk tilboð varðandi hvern verkþátt fyrir sig. „Það er misjafnt hvort framkvæmdir séu gerðar af fleiri en einum aðila eða hvort sami aðili sjá um allt frá a til ö, svo sem jarðvegs­skipti, smíða­vinnu, hellulögn og gróður­setningu. Það er mismun­andi hvort menn séu með þetta allt á sinni könnu eða ekki; það fer eftir fyrir­tækjunum.“

Guðmundur Atli nefndi að í sumum tilfellum hanni skrúð­garðyrkju­meistarar garða. „Þarna komum við einmitt inn á hver notkun garðsins eigi að vera. Þarf til dæmis að byggja skjól og hvernig er það gert, er það gert með timbur­veggjum eða gróðri? Þetta fer svolítið eftir því hvernig á að nota garðinn. Á að halda útsýni eða ekki? Hvað á að setja mikið viðhald í garðinn? Hvað treystir fólk sér til að setja mikinn tíma í garðinn eða ætlar það að kaupa þá þjónustu? Svæðin eru svo svolítið byggð út frá þessum þáttum. Það er auðvitað mikilvægt að byggja svæði innan garðsins sem er aðal­notkunar­svæðið, hvort sem þar á að vera heitur pottur eða pallur til að grilla á. Þetta eru fyrstu þættirnir sem þarf að huga að. Og ef fólk er að hugsa um alla þessa þætti, þá ráðlegg ég því að leita til landslags­arkitekta.“

Hvað gróður varðar segir Guðmundur Atli að mikilvægt sé að hann sé hugsaður til lengri tíma. „Ég til dæmis hef alltaf lagt áherslu á að gróður­setja bæði plöntur sem eru ungar og svo einnig sterkari og stærri plöntur til að fólk fái strax þá lyftingu sem það vill í gróðrinum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá