Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Prestur fíflaði heitmey biskups og móður – Fékk að finna til tevatnsins hjá bræðrum biskups

Kirkjuleg málefni geta vafist fyrir klerkum. Það varð deginum ljósara á biskups­setrinu í Skálholti í maí árið 1543. Þá rétt slapp séra Eysteinn Þórðarson með líftóruna eftir að hafa túlkað „kirkjuleg málefni“ helst til frjáls­lega.

Þannig var mál með vexti að Gissur Einarsson hafði haldið utan til Kaupmanna­hafnar árið áður. Konungur hafði gert honum boð um að koma þangað til viðræðna og var Gissur vígður Skál­holtsbiskup í október­byrjun það ár.

Áður en Gissur hélt til Kaupmanna­hafnar hafði hann gengið þannig frá sínum málum í Skálholti að séra Jón Héðinsson stól­ráðsmaður skyldi veita forsjá verald­legum málum Skál­holtskirkju og séra Eysteinn Þórðarson yrði umboðs­maður Gissurar um kirkjuleg málefni.

Einnig skyldi Eysteinn hafa tilsjón með móður Gissurar, Gunnhildi Jóns­dóttur, sem þá var komin í Skálholt, og heitmey hans, Guðrúnu Gott­skálks­dóttur, sem hann hafði fastnað sér fyrir siglinguna til Kaupmanna­hafnar.

Heitkona og móðir

Óhætt er að segja að tilsjónin með konunum hafi farið úrskeiðis og heimkoma nývígðs Skál­holts­biskups með öðrum hætti en hann hafði sennilega vænst. Móðir hans lá undir ámæli um að hafa átt vingott við séra Eystein, og ekki bara hún, því Guðrún, festar­kona Gissurar, hafði svo ekki var villst um vermt rekkju­voðir klerksins og var vanfær af völdum hans.

Til að bæta gráu ofan á svart þá var séra Jón Héðinsson látinn og því meira og minna allt í upplausn.

Lesa meira hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá