Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Þröstur Leó lætur stórútgerðirnar heyra það: „Það er sannarlega skítapakk“

Þröstur Leó Gunnarsson
Þröstur Leó Gunn­ars­son Mynd: YouTube-skjáskot

Þröstur Leó Gunnarsson talaði íslensku er hann flutti eldræðu í YouTube-myndbandi í gær í tilefni Sjómanna­dagsins sem haldinn var hátíð­legur í gær.

Íslendingar héldu Sjómanna­daginn hátíð­legan í gær með prompi og prakt. Í flestum sjávar­plássum landsins ef ekki öllum voru hátíðarhöld í tilefni dagsins og var höfuð­borgin ekki undan­skilin í þeim efnum. Skemmtiatriðin voru allskonar og það sama má segja um ræðurnar sem haldnar voru í gær. Ein þeirra vakti þó meiri athygli en aðrar en það er ræða leikarans og sjómannsins Þrastar Leós Gunnars­sonar sem hann flutti á YouTube í gær. Ræðuna kallar hann Ávarp óþekkta sjómannsins en er hún gerð í nafni samtak­anna Við fólkið í landinu.

Í ávarpinu gagnrýnir Þröstur yfirvöld og útgerða­risa á borð við Samherja, meðal annars vegna þess að þeir eiga allan kvótann á meðan strand­veiðimenn hrekjast í land. Þá skálar hann einnig fyrir „frelsinu sem er horfið og gleymt.“ Má með sanni segja að Þröstur hafi gefið útgerða­risunum rækilega á baukinn.

Hér fyrir neðan má lesa ávarpið í heild sinni en fyrir neðan textann má horfa á þessa mögnuðu eldræðu.

„Ágætu landsmenn og félagar mínir á sjó – og ekki síður þeir sem eru í landi, þeir sem hafa hrakist í land og þeir sem eru að reyna að draga fram lífið á strand­veiðum, allir þeir sem þrá að starfa sem sjómenn og hafa til þess reynslu og getu en eiga ekki neinn kvóta, mega ekki róa því þeir eiga ekki fiskinn … sem ætti auðvitað ætti að eiga sig sjálfur, en sem er nú skráður og þing­lýstur sem eign Samherja og félaga. Gleði­legan sjómannadag þið öll.

Skálum fyrir draumi okkar um frelsið út á sjó. Skálum fyrir drauminum um að geta fiskað og með tímanum stækkað bátinn og jafnvel eignast vinnslu í landi, byggt saman upp betra þorp eða betri bæ .. betra land. Skálum fyrir frelsinu sem er horfið og gleymt. Það var gefið öðrum en ykkur.

Skálum fyrir þeim tíma þegar maður gat rifið kjaft og þótt maður væri rekinn gat maður alltaf fundið annað pláss. Skálum fyrir þeim tíma þegar sjómenn létu í sér heyra og áttu öflug félög sem höfðu áhrif, beygðu sig ekki fyrir valdi stór­útgerðarinnar sem í dag ræður öllu. Fjandinn hirði það pakk. Ef hann hefur lyst á því. Það er illur yfir­boðari sem kúgar fólk með launa­tékkanum, hótar fólki að svipta það lífs­afkomunni. Það er sannarlega skítapakk,

Skálum fyrir öllum þeim sjómönnum sem byggðu upp fisk­veiðar hringinn í kringum landið, tóku þátt í því að lyfta Íslandi upp úr fátækt og opnuðu fyrir nútímanum; frelsuðu fólk frá örbirgð, hleyptu inn framförum og velsæld. Skálum fyrir öllum þeim sjómönnum sem fórnuðu lífi sínu við að teygja sig eftir betri afkomu fyrir sig og sitt fólk … og í leiðinni fyrir samfélagið allt. Leiðinlegt að enginn sjómaður hafi fengið veiðirétt, aðeins útgerðar­menn. Það svíður í hjartað, er bölvað óréttlæti. Að framlag þeirra hafa verið einskis virt. Kynslóð fram að kynslóð, sjómenn sem byggðu upp sjávar­byggðir um allt land. Skálum fyrir þeim sem börðust svo við gætum fært út land­helgina, tryggt að afraksturinn af fiskimiðunum færi til að byggja hér upp gott og heilbrigt samfélag. Það er ekki við þetta fólk að sakast þótt allt hafi farið á annan veg, að aðeins örfáir hafi eignast fiskimiðin og noti þau nú til að auðgast og auka enn völd sín … og séu að breyta Íslandi í verstöð sem þau eiga ein. Verstöð þar sem við erum bara verbúðar­fólk og verðum að standa og sitja eins og þau segja.

Skálum líka fyrir stjórnmála­fólkinu sem studdi sjómenn. Skálum fyrir þeim tíma að sjómenn voru á framboðs­listum flokka. Skálum fyrir hugmyndinni um stjórnmála­fólk sem vinnur fyrir almenning en ekki aðeins fyrir hin valda­miklu og ríku. Skálum fyrir sjávar­útvegs­stefnu sem þjónar samfélaginu en ekki aðeins örfáum auðmönnum. Látum okkur dreyma á sjómanna­daginn um stjórn­völd sem endur­heimta fiskimiðin og gefa þjóðinni þau aftur svo arðurinn af þeim geti orðið grunnur að góðu samfélagi. Látum okkur dreyma. Látum okkur dreyma á sjómanna­daginn um hátíðarhöld sem ekki eru kostuð af Brim eða Samherja, þar sem þetta er hátíðisdagurinn okkar og baráttu­dagurinn okkar en ekki þeirra sem hafa sölsað undir allt erfiði okkar. Sjómanna­dagur sem stór­útgerðin heldur hátíð­legan er dagur sem fagnar ástandinu eins og það er; fagnar því að fiskimiðin hafi verið einkavædd, að þau séu eign manna sem nota auð sinn til að auka völd sín og auka þannig enn auð sinn. Þeir fagna því að hafa beygt fólk undir sig, fagna því að hafa þaggað niður í sjómönnum.

Sjómanna­dagur stór­útgerðarinnar er sigur­hátíð hinna fáu yfir fjöldanum. Sá dagur er ekki okkar dagur. Þess vegna sit ég hér og bölva. Þetta þurfti ekki að fara svona. Kerfið sem við búum við er mannana verk og þess vegna gætum við haft það allt öðruvísi, haft það eins og við viljum … og eins og þjóðin vill; því þjóðin vill svo sannarlega ekki að örfáar fjöl­skyldur eigi fiskimiðin og reki sjávar­útveginn eins og alræðis­ríki hinna fáu og freku. Þjóðin á sama draum og við sjómenn, að þegar við siglum út á sjó séum við að sigla inn frjálsan heim þar sem allir eru jafnir og hafa sömu tækifæri en ekki inn í myrka veröld þar sem einn á allt en hinir ekkert. Gleði­legan sjómannadag kæru vinir. Ekki sjómannadag stór­útgerðarinnar heldur daginn okkar. Ef við stöndum saman munum við geta glaðst innilega á komandi sjómanna­dögum. Og á öllum dögum. Skál fyrir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá