Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Það fæddist von inn á Vogi: „Ég fór að opna eyrun á mér, ég fór að hlusta á allt“

Guðbjörg Inga Guðjóns­dóttir. Kölluð Gugga. Byrjaði ung að drekka og dópa. Innbrot. Vændi. Ofbeldi. Varð vitni að morði. Hún kynntist ástinni sinni í neyslu og ástin dó síðar úr krabba. Hún syrgir Jóa sinn, en bæði fóru í meðferð og áttu saman nokkur ár edrú. Í dag er hún öryrki og segist vera góð við dýr og menn. Hver eru skilaboð Guggu til þeirra sem eru að prófa? Prófa að drekka. Dópa. „Helst vildi ég að þessir krakkar segðu „nei“.“ Hún ræðir við Svövu Jóns­dóttur, lítur yfir farinn veg og talar í einlægni um það sem á daga hennar hefur drifið.

Gugga segir að það hafi svo fæðst von inni á Vogi.

„Ég fór að opna eyrun á mér, ég fór að hlusta á allt sem var sagt og ég tók þátt í öllu sem mér var sagt að gera. Ég fór á alla AA-fundi og var bara ógeðslega dugleg á Vogi og Vík. Eftir að ég var búin á Vík flutti ég á áfanga­heimili hjá Samhjálp og Sporinu og Jói flutti á annað áfanga­heimili. Ég var í kvenna­meðferð og Jói var í einhverri karla­meðferð og svo vorum við í ráðgjafar­viðtölum hjá Samhjálp og við vorum á morgun­fundum á Sporinu hjá Samhjálp og vorum rosalega dugleg á AA-fundum. Fyrstu fimm árin vorum við bara alltaf á fundum og tókum strætó í allt þegar við áttum ekki bíl. Þá fæddist þessi von að ég gæti kannski orðið edrú og svo fór ég alltaf að trúa því meira og meira.“

Hún talar um fyrstu tvö árin eftir meðferðina á Vogi. „Ég var að læra á nýjar tilfinningar og tala rétt. Maður hafði nátt­úrlega ekki verið innan um neitt nema neyslu og neyslutal.“

  1. maí var Gugga búin að vera edrú í 11 ár.

„Við Jói vorum húsverðir hjá Samhjálp í Stangarhyl og þrifum líka húsið. Fengum að vera í íbúð sem var í sama húsi og Samhjálp, á bak við húsið, og vorum líka í hjálpar­starfi á samkomum. Við vorum hjá þeim frá 2012-2016. Þá seldu þeir húsið og við fluttum á Arnarholt á Kjalarnesi.“

Sorgin

Jói fékk krabba­mein.

„Hann var með skorpu­lifur og lifði með hana í níu ár, en fékk svo 9,6 sentí­metra æxli í lifrina. Og óskurðtækt og ekkert hægt að gera. Hann var bara settur á líknandi meðferð og hann lifði bara í fimm mánuði. Hann dó heima. Nokkrum dögum áður tókum við utan um hvort annað og sögðumst elska hvort annað. Það var það síðasta sem hann sagði við mig.“

Gugga lýsir dauða­stríði Jóa síðustu dagana í lífi hans.

„Það var alveg eins og hann þekkti mig ekki lengur, en hann vissi samt örugglega að hann var heima,“ segir hún svo. „Ég vil trúa því að hann hafi vitað hver ég var.“

Svo kom að jarðar­förinni.

„Ég missti mig þegar ég kom inn í kirkjuna og sá kistuna. Þá brotnaði ég alveg saman og grét. Ég fór held ég í lost. Ég missti ástina í lífi mínu og uppáhalds­manneskjuna mína og besta vin minn. Við vorum svo góð við hvort annað og rifumst ekkert. Við vorum alltaf að segja eitthvað fallegt við hvort annað og ég var svo elskuð og hann var líka svo elskaður.

Við vorum ást­fang­inn á hverjum degi.

Ég og Jói minn áttum fallegustu ást í heimi. Við vorum ástfanginn á hverjum degi og vorum dugleg að segja fallegt við hvort annað. Ég var alltaf að segja honum hvað ég elskaði hann heitt og hvað ég væri þakklát fyrir hann. Okkur fannst líka gaman að fíflast saman og hlæja mikið. Við vorum á AA-fundum saman og í þjónustu og líka í kirkjunni og á samkomum hjá Samhjálp. Við elskuðum að fara út með Enok, hundinn okkar, og hugsa um kisurnar okkar. Nú sé ég um það ein og það gengur vel. Ég hugsa svo vel um þau og elska þau svo mikið. Þau elska mig á móti og leyfa mér að finna það á hverjum degi. Ég á eftir að elska Jóa minn alla tíð og ég sakna hans á hverjum degi. Ég ylja mér við góðar minningar og þær eru margar Ég er svo þakklát í hjarta mínu í dag og alla daga.“

Ég er miklu glað­ari en ég var sett á þung­lynd­is­lyf.

Lesa meira hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá