Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Í góðum málum/Í slæmum málum

Ríkisstjórn Íslands er í slæmum málum.
Rík­is­stjórn Íslands er í slæmum málum. Mynd: forseti.is

Í góðum málum

Sýklar eru í blússandi góðum málum um þessar mundir eftir að veirur og bakteríur hafa legið í dvala í tvö ár. Það er að segja fyrir utan einu stóru veiruna sem kennd er við kórónu. Undan­farnar vikur og mánuði hafa mýmargir Íslendingar, börn sem gamalmenni og allir þar á milli, legið í flensu og kvefpest svo dögum skiptir. Er talað um faraldur í fjöl­miðlum. Dæmi eru um flensu­einkenni sem endast í nokkrar vikur, sem eru góðar fréttir. Þá á ég við að það séu góðar fréttir fyrir sýklana sem valda veikindunum, ekki fólkið sem fyrir þeim verður. Nú þegar landsmenn gleðjast yfir því að Covid-faraldurinn sé nánast horfinn halda sýklarnir partí í líkama landans sem liggur í valnum á meðan. Nú eða þrjóskast áfram eins og sönnum víkingum sæmir og dreifa þannig partíinu til allra í kring. Og nú berast fréttir um nýjan og bráð­huggulegan faraldur, eða hitt þó heldur. Þá er ég að tala um apakatta­bóluna (e. Monkeypox) sem ranglega hefur verið kölluð apabólan. Hún hefur sem betur fer ekki borist til landsins enn þá, en miðað við fjölda ferða­manna sem væntanlegir eru til landsins á næstunni má nær örugglega fullyrða að um tíma­spursmál sé að ræða. Og þá gleðjast sýklarnir aldeilis á meðan við hin leggjumst í gamal­kunnar veikinda­stellingar og einangrum okkur fyrir framan Netflix. 

Í slæmum málum

Ríkis­stjórn Íslands er í slæmum málum, ég held að það leynist engum. Undan­farnar vikur og mánuði hefur hvert rekaldið komið í netið hjá þjóðar­skútunni, ef svo má að orði komast. Ef ég sleppi að slá um mig með kjána­legum mynd­líkingum get ég sagt að hvert hneykslunar­málið á eftir öðru hefur komið upp hjá ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur undan­farin misseri. Fyrst var það brot Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra á sóttvarnar­lögum, er hann mætti í yfirfulla veislu í Ásmundarsal rétt fyrir síðustu jól. Þá voru það ásakanir um rasisma hjá Sigurði Inga Jóhanns­syni innviða­ráðherra. Þá var hann staddur í veislu Framsóknar­flokksins til heiðurs Bænda­samtökunum þar sem hann átti að taka þátt í þeim sérkenni­lega gjörningi að halda á Vigdísi Häsler, framkvæmda­stjóra Bænda­samtakanna, fyrir myndatöku. Eins og frægt er orðið viðurkenndi hann að hafa spurt hvort hann ætti að halda á „þessari svörtu“. Næsta fíaskóið var svo salan á hlut ríkisins í Íslands­banka. Þar kom í ljós að góðkunningjar Sjálfstæðis­flokksins, sumir hverjir „hrunsmenn“, fengu að kaupa hlut á niður­greiddu verði. Meira að segja keypti pabbi Bjarna Ben hlut, svo ófor­skömmuð var salan. Næst var það svo sú frétt að senda ætti 200 hælis­leitendur út á Guð og gaddinn (eða Satan og hitann) í Grikk­landi, nú eða beint til Hvíta-Rússlands eða Sómalíu. Vakti það athygli er Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnu­markaðs­ráðherra mætti í beina útsendingu í frétta­tíma RÚV þar sem hann furðaði sig á fyrirætlun Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra. Nýjasta málið (er þetta er skrifað) er opinbert rifrildi Bjarna Ben og Lilju Alfreðs­dóttur menningar­mála­ráðherra vegna frumvarps hennar um endur­greiðslur vegna kvik­myndagerðar. Jafnvel þó að ráðherrunum hafi hingað til tekist að komast upp með allt sem upp er talið hér að framan, hafa vinsældir ríkis­stjórnarinnar dalað hægt en örugglega undan­farin misseri og hlýtur það að valda Katrínu og Bjarna áhyggjum, þótt þau segi annað í fjöl­miðlum.

Sjá má blaðið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá