Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag pípulagningameistara sameinast SI: „Saman ætlum við að ráðast í mörg krefjandi verkefni“

Árni Sigurjónsson, formaður SI, og Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður FP, skrifa undir samkomulagið í Húsi atvinnulífsins
Árni Sig­ur­jóns­son, for­maður SI, og Böðvar Ingi Guð­bjarts­son, for­maður FP, skrifa undir sam­komu­lagið í Húsi atvinnu­lífs­ins

Félag pípu­lagninga­meistara, FP, hefur gengið til liðs við Samtök iðnaðarins, SI, en samkomulag þess efnis var undir­ritað í Húsi atvinnu­lífsins í dag.

Með samkomlaginu verða allir félags­menn Félags pípu­lagninga­meistara sem stunda atvinnu­rekstur félags­menn í Samtökum iðnaðarins og þar með í Samtökum atvinnu­lífsins. Þannig bætast 140 nýir félags­menn Félags pípu­lagninga­meistara í hóp þeirra 1.400 fyrir­tækja sem eru nú þegar í Samtökum iðnaðarins. Inngöngu í Félag pípu­lagninga­meistara hafa þeir einir sem hafa meistara­réttindi og löggildingu í pípu­lögnum.

Með inngöngu Félags pípu­lagninga­meistara verða í fyrsta sinn öll meistara­félög iðngreina í bygginga- og mannvirkja­iðnaði hér á landi innan vébanda Samtaka iðnaðarins. En fyrir eru meistara­félög í blikk­smíði, dúklögn- og vegg­fóðrun, innréttinga- og húsgagna­smíði, skrúð­garðyrkju, húsasmíði, málaraiðn, múraraiðn og rafverk­töku.

Frá und­ir­ritun sam­komu­lags milli Félags pípu­lagn­inga­meist­ara og Samtaka iðn­að­ar­ins sem fram fór í Húsi atvinnu­lífs­ins, talið frá vinstri, Magnús Björn Bragason, stjórn­ar­maður FP, Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri SI, Jóhanna Klara Stef­áns­dóttir, sviðs­stjóri mann­virkja­sviðs SI, Árni Sig­ur­jóns­son, for­maður SI, Sigurður Reynir Helgason vara­maður FP, Böðvar Ingi Guð­bjarts­son, for­maður FP, Kári Sam­ú­els­son, gjald­keri FP, Almar Gunn­ars­son, vara­for­maður FP, og Ársæll Páll Ósk­ars­son, rit­ari FP.

Árni Sigurjónsson, formaður SI: „Við fögnum því að fá pípu­lagninga­meistara til liðs við okkur og hlökkum til samstarfsins. Þetta er stórt skref sem er stigið nú þegar allar iðngreinar sem tilheyra bygginga- og mannvirkja­iðnaði eru saman­komnar undir hatti Samtaka iðnaðarins. Með þessu eflum við samtökin og rödd þessara mikilvægu atvinnu­greina enn frekar.“

 Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður FP: „Félags­menn okkar samþykktu aðild að Samtökum iðnaðarins í rafrænni kosningu og verðum við þar með þátt­takendur í stærstu og öflugustu hagsmuna­samtökum atvinnu­rekenda á Íslandi. Við eigum samleið með öðrum meisturum í bygginga- og mann­virkjagerð. Framundan er því spennandi samstarf en saman ætlum við að ráðast í mörg krefjandi verkefni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá