Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Grétar Mar gefur lítið fyrir forystu sjómannasamtakanna: „Skipstjórar hræddir við útgerðarmennina“

Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og fyrr. Alþingismaður
Grétar Mar Jónsson, skip­stjóri og fyrr. Alþing­is­maður

„Það er ákveðin hætta fyrir hendi þegar koma svona aðkomu­menn í rauninni sem Samherji og Síldar­vinnslan eru; hugsanlega bara eftir þeirra geðþótta fara þeir með allan kvótann úr Grindavík,“ segir Grétar Mar Jónsson í hlað­varpinu Sjóaranum þegar hann er spurður hvernig honum lítist á tíðindi dagsins sem eru að Vísir í Grindavík er að renna undir Síldar­vinnsluna og þar með Samherja. Grétar Mar er búinn að vera baráttu­maður fyrir hagsmuna­málum sjómanna um áratuga­skeið, var formaður í skip­stjóra- og stýrimanna­félaginu Vísi í sjö ár og stjórnar­maður í Farmanna­sambandinu á sínum tíma; forseti Farmanna- og fiskimanna­sambandsins.

Núna heyrir maður eiginlega fagnaðar­læti úr Grindavík.

„Já, ég man eftir svona fagnaðar­látum í Sandgerði þegar HB og Miðnes voru sameinuð. Þá átti að bæta við og auka og skapa fleiri störf og konur fengu að sitja við það í eina vertíð að þræða loðnu upp á prik til að þurrka. Svo var búið að taka allan kvótann upp á Akranes úr Sandgerði og engin hafnar­gjöld nátt­úrlega og ekki atvinna heldur. Þetta er bara það sem er innbyggt í þessu blessaða fiskveiði­stjórnunar­kerfi okkar að menn eru alltaf að sameina. Og nú skilst mér meira að segja að þeir séu yfir í þessi 12%, Síldar­vinnslan, með þessu. Og þeir komast upp með það þegjandi og hljóða­laust eða svo virðist vera.“

Og þeir kom­ast upp með það að vera langt yfir öllum mörkum.

En Síldar­vinnslan er nátt­úrlega bara Samherji.

„Í rauninni og auðvitað er kvótaeign Síldar­vinnslunnar búin að vera í nokkur ár 50% í eigu Samherja. Og þeir komast upp með það að vera langt yfir öllum mörkum.

Ég er ekki að segja að þeir muni ekki halda áfram með fisk­vinnslu í Grindavík. En það er alveg viðbúið að það verði breytingar með tíð og tíma þó það skeði ekki á morgun eða hinn.“

Það er ekkert hægt að lofa einhverju svona er það?

„Nei, það er í rauninni ekki hægt. Svo er það bara hvað er best fyrir Síldar­vinnsluna að gera. Er betra að vinna fiskinn fyrir norðan á Dalvík eða á Akureyri eða hvar sem er?“

Það verður ekkert spurt um byggðar­sjónarmið þar?

„Nei.“

Og kannski er það ekkert í raun og veru hægt?

„Nei, þetta er bara afleiðing af þessum fram­seljanlegu veiði­heimildum sem eru í gangi og með öllum þeim göllum sem þeim fylgja. Fiskveiði­stjórnunar­kerfið sem sumir segja að sé besta fiskveiði­stjórnunar­kerfi í heimi hefur aldrei verið að skila okkur neinum árangri. Við munum nú eftir því sem ungir menn þegar okkur var lofað því ef við færum að tillögu Hafró í tvö þrjú ár að þá vorum við farnir að veiða 450-500.000 tonn á ári af þorski.“

Og það hefur ekki ræst úr því.

Það hefur ekkert gerst.

„Og það hefur ekki ræst úr því. Og í rauninni höfum við aldrei farið yfir 267.000 tonn sem var kvótinn á fyrsta kvóta­árinu.“

Þú ert Suður­nesjamaður og bjóst lengst af í Sandgerði en fluttir svo til Hafnar­fjarðar. Það vekur athygli þegar ekið er niður á hafnirnar að þetta er stein­dautt; það er að segja Keflavík. Það er búin öll útgerð þar.

„Þú getur eiginlega byrjað í Vogunum. Útgerðin sem var þar, sem var góð útgerð og hét Valdimar, gerði út þrjá báta á sínum tíma. Þeir sameinuðust Þorbirninum í Grindavík um leið og Fiskanes sameinaðist Þorbirninum og fleiri fyrirtæki. Svo nátt­úrlega er kvóti í Garðinum. Nesfiskur á töluvert af kvóta; gerir út nátt­úrlega bæði í Hafnar­firði frysti­skipið sitt, Baldvin Njálsson, og svo eru bátarnir gerðir út úr Sandgerði að stærstum hluta.“

Miklar afleiðingar

Grétar Mar hefur lengi barist gegn kvótanum. Er þetta allt komið á daginn eins og þetta getur verið verst; eins og hann og fleiri spáðu?

„Ég man eftir því að við skrifuðum einhvern tímann grein, ég og Guðjón Arnar, og bentum á hvað þetta þýddi, frjálsa framsalið sem var sett á 1991. Og það hefur allt komið á daginn sem við sögðum þá hvað myndi gerast.“

Þessir stóru gleypa hina smáu.

„Það er bara lögmálið í þessu á meðan þetta er svona.“

Vísir keypti upp var það ekki Djúpavog? Þingeyri?

„Jú.

HB sameinaðist Miðnesi í Sandgerði sem var með tvo togara og þrjá báta. Eða fjóra. Og svo Keflvíking, loðnubát. Og þetta hefur allt farið saman.“

Svo fór Akranes nátt­úrlega þegar Reykjavík gleypti það.

„Já.“

Er þetta ekki hagkvæmni stærðarinnar?

„Það held ég ekki.“

Þú ert ekki á því.

Á móti kemur að það eru svo miklar afleið­ingar.

„Nei, auðvitað er stærðar­hagkvæmni á mörgum sviðum mjög æskileg og góð en á móti kemur að það eru svo miklar afleiðingar. Ef maður fer yfir sveitar­félögin sem hafa farið illa út úr þessu; þú getur farið á Þingeyri. Þú getur farið á Flateyri. Þú getur farið á Súganda­fjörð. Ísafjörð. Bolungarvík, þó þeir hafa kannski aðeins náð að berjast í þessu. Svo getur þú farið á Drangsnes og Hólmavík. Og svo getur þú farið áfram á Kópasker, Raufar­höfn og Húsavík, Bakka­fjörð og Borgar­fjörð eystri. Þú getur talið endalaust upp. Breið­dalsvík og Stöðvar­fjörð, Reyðar­fjörð og Djúpavog. Þetta er hringinn. Nátt­úrlega er Sandgerði kvótalaus og Þorláks­höfn er held ég með 20% af því sem þeir áttu þegar mest var eða þegar kvóta­kerfið var sett á. Stokks­eyri og Eyrar­bakki: Ekkert þar. Og svona má rekja þetta.“

Grétar Mar er spurður hvað honum finnist um strand­veiðarnar. Er það eitthvað til að jafna þetta? Ballansera þetta?

Það er til dæmis ömur­legt að þeir skuli ekki fá að veiða á sunnu­dögum.

„Það ballanserast ekkert þegar þú ert að tala um kannski 10-15.000 tonn. Eitthvað sem frysti­togari veiðir á einu og hálfu ári. Aflinn sem er í strand­veiðinni; þetta er svo lítið. Það vantar að minnsta kosti 5-6000 tonn inn í strand­veiðarnar þannig að þeir hafi úthald í 48 daga yfir sumarið. En svo nátt­úrlega það versta við strand­veiðarnar eru þessar skerðingar sem eru á þeim; það er til dæmis ömurlegt að þeir skuli ekki fá að veiða á sunnu­dögum því það vantar alltaf afla í fisk­vinnsluna sem er án útgerðar á mánudögum.“

Það er nátt­úrlega hörð andstaða gegn þessu.

„Já, en stór­útgerðin fer alltaf að gráta og grát­kórinn er virkjaður þegar á eitthvað að breyta og gera eitthvað sem væri til bóta fyrir almenning. Það er bara það sorglega við þetta.“

Afskaplega döpur

Baráttu­maður gegn kvótanum og baráttu­maður fyrir réttindum sjómanna. Þurfti Grétar Mar aldrei að gjalda fyrir það? Var aldrei núningur? Kostaði þetta hann ekkert persónu­lega?

„Pottþétt. Það bitnaði á mér. Það gerði það. Og sérstak­lega eftir að ég hætti sem forseti Farmanna- og fiskimanna­sambandsins; var felldur þar. Og þá var ekki um auðugan garð að gresja hjá manni í að fá vinnu,“ segir Grétar Mar sem fór í kjölfarið á milli báta; bæði minni báta „og svo lúðu­veiðar og svona utan­kvótaskrap; meira að segja á sæbjúgu.“

Þú tókst við af Guðjóni A. Kristjáns­syni og varst í tvö ár og þá kom Árni Bjarnason og felldi þig. Það hafa verið átök.

„Nei, ekki kannski átök. Það voru bara 33 held ég með atkvæðis­rétt á Faramanna- og fiskimanna­sambands­þinginu og hann vann mig 18-15.“

En hann er enn.

„Já, það er bara mjög slæmt fyrir sjómenn að hann skuli vera enn því að hann hefur verið hand­ónýtur foringi og í hagsmuna­gæslu fyrir sína menn.“

Öll stétt­ar­fé­lög sjó­manna eru afskap­lega döpur.

Er það Samherji?

„Ég veit það ekki. Hann kom beint frá Samherja, var stýri­maður og afleysinga­skipstjóri hjá Samherja. Í fyrstu kjara­samningum sem þeir gerðu eftir að ég var settur af þá tóku þeir þátt í því að lækka skipta­prósentuna á nýjum skipum sem leið­réttist sjálfsagt aldrei. Og annað í þeim dúr sem þeir gerðu. Öll stéttar­félög sjómanna eru afskaplega döpur. Sama má segja bæði um Sjómanna­sambandið og eins Vélstjóra­félagið.“

Hefur þá ekki tekist að lemja á þeim ef menn eru orðnir mátt­lausir?

„Það er í fyrsta skipti núna þegar kemur að úthlutun eða tillögur að úthlutun hjá sjávar­útvegs­ráðherra í 20 ár sem skip­stjórar koma fram á sjónar­sviðið og tjá sig um þessi mál. Og þá sérstak­lega tveir norð­lenskir skip­stjórar hjá Fisk Seafood og svo Eiríkur Jónsson á Akranesi sem er hjá Brym. Þeir eru að tala um að það sé ekkert vit í karfa­úthlutuninni en í gegnum tíðina, á síðustu 20 árum, hafa skip­stjórnar­menn ekkert þorað að tjá sig um þetta.“

Það er svolítið einkennilegt af því að skip­stjórinn er alvaldur um borð eða svoleiðis og þetta er venjulega aðal­töffarinn um borð. Svo æmta þeir ekki né skræmta þegar komið er í land.

Þeir eru bara hræddir við útgerð­ar­menn­ina.

„Nei, þeir eru á þokka­legum launum, jafnvel bara mjög góðum launum. Og þeir eru ekki að hugsa um annan stýrimann, fyrsta stýrimann eða strákana sem eru um borð. Þeir eru bara hræddir við útgerðar­mennina. Það er bara þannig.“

Þeir fá bara order

Faðir Grétars Mars var skip­stjóri og útgerðar­maður og segist hann fyrst hafa farið á norður­sjóinn með föður­bróður sínum. „Maður var alinn upp við þetta. Það var alltaf verið að tala um fisk og fiskgengd og fiskerí og góða sjómenn,“ segir Grétar Mar sem var á sjó í 42 ár og skip­stjóri í 34 ár.

Þetta er búið að taka allan sjarma af þessu.

Saknar þú ekkert þessara tíma?

„Ekki þegar þetta kvóta­kerfi var farið að virka svona eins og flestir skip­stjórar fá í dag; þeir fá bara order um hvað megi veiða í næstu veiðiferð. Svo verður að fara úr þorski, ef þú ert í mokþorskveiði, til að sækja ufsa eða jafnvel karfa eða eitthvað annað. Svo er þér sagt að fara út og veiða karfa eða ufsa. Þetta er búið að taka allan sjarma af þessu.“

Grétar Mar er spurður hvað sé minnis­stæðast af ferlinum.

Og svo vestur á „brjál­aða hrygg“.

„Skemmtilegustu árin voru fyrir daga kvóta­kerfisins þegar menn máttu bara bjarga sér og reyna að ná í sem mestan afla. Ég þarf reyndar ekkert að kvarta. Ég var hjá góðum útgerðar­manni sem hét Jakob Sigurðsson í Sjófangi. Ég var á Sæborginni sem hann átti í níu ár. Var á síld á haustin og rækju á sumrin þó ég hafi ekki mikið verið á rækjunni Mér fannst þetta leiðinlegur veiði­skapur. Ég var svo aftur á netum alltaf á vertíðunum og reri þá úr Sandgerði. Mest úr Sandgerði. Maður fór nátt­úrlega austur fyrir land eða austur á Höfða sem við köllum, Ingólfs­höfða. Og svo vestur á „Brjálaða hrygg“. Maður var út um allar trissur.“

Hvar er „Brjálaði hryggur“?

„90 mílur í Látra­bjarg og 90 mílur í Snæfells­jökul.“

Þetta voru góðir tímar.

„Það var margt skemmtileg sem skeði þar. Ég var einu sinni að fiska þarna á „brjálaða hryggnum“. Það var svo mikið í netunum að við þurftum eiginlega að gilsa inn. Þá bara flutu trossurnar. Maður hélt að maður væri búinn að slíta færið því þá var bara trossan að koma upp og drekinn og allt neðan í. Við drógum sjö trossur og fengum rúm 80 tonn af slægðu ofan í lest og vorum eiginlega búnir að fylla. Ég lagði sjö trossur og ég gat ekki dregið nema þrjár fyrir daginn. Það voru einhver 40 tonn af slægðu í þrjár trossur. Ég lagði sjö og dró þrjár fyrsta daginn, dró svo þrjár annan daginn og fékk bát til að draga yfir mig eina; sjöundu trossuna.“

Þá varstu búinn að fylla og rúmlega það kannski.

„Það var eitthvað smotterí eftir. Við fórum bara suður.“

Ég kallaði „brot“

Grétar Mar var afla­kóngur. Hvað þarf til að menn fái þessa tilfinningu eða öðlist þessa visku sem þarf til að hitta á fisk?

„Maður var með frábæran mannskap og maður kíldi á þetta af miklum krafti. Mann­skapurinn hjá mér átti hverja krónu skylda sem hann hafði í hlut. Þetta var bara mikið púl og heilu vertíðirnar var þetta þannig að mann­skapurinn fékk að sofa kannski þrisvar sinnum tvo og hálfan til þrjá tíma. Landstími, útstími og svo kannski í land í tvo þrjá tíma. Það var bara verið að kíla á þetta.“

Það var verið að djöflast áfram.

„Í dag er þetta auðveldara hjá mönnum. Menn eru að fiska í 15 mílna radíus frá sinni heimahöfn kannski yfir 1000 tonn. Jafnvel á mánuði.“

Grétar Mar segir að það hafi verið lang­skemmtilegast að vera á nótinni; síld og loðnu. „Ég var eina loðnuertíð á Berg Vigfús, sem var gamli Keflvíkingur, og svo var ég þrjú sumur á norsk-íslensku síldinni í síldar­smugunni. Svo var ég á Sæborginni nokkur haust á síld fyrir austan. Það var skemmtilegasti veiði­skapurinn.“

Bara allt á bólakaf.

Grétar Mar segist ekki hafa lent í háska en segir þó: „Ég lenti einu sinni í því í kolvitlausu veðri; suðvestan sjö átta vindstig og svo gerði hviður og þá bætti hann í. Ég fór fjóra róðra og var úr Sandgerði og út í trossurnar var alltaf beint á móti og ég var í fimm tíma út í trossur sem átti ekki að taka nema tvo og hálfan til þrjá tíma. Það bara gekk ekkert á móti veðrinu. Ég lagði trossurnar bara undan veðrinu. Bara lensaði. Sæborgin var mjög gott skip, sérstak­lega á lensi. Svo einu sinni þegar ég var að leggja og þeir voru að láta seinni drekann detta þá sá ég að það var skafl fyrir aftan mig. Og allir strákarnir úti á dekki. Ég kallaði „brot“ út um gluggann. Svo kom bara fylla fram eftir dekkinu. Bara allt á bólakaf. Þeir voru nú búnir að koma sér eitthvað í var og einn fór á bak við mastrið. Svo fór ég að telja þegar fór að renna út af honum aftur. Þá vantaði mig einn. Ég nátt­úrlega varð skelfingu lostinn. Ég verð bara að segja eins og er. Þá hafði hann náð að skjóta sér inn í ganginn og loka dyrunum. Það var miklu fargi af manni létt þegar maður sá að þetta var í lagi. En ég fór ekki á sjó daginn eftir. Það var sams konar veður. Þetta var orðið gott.“

Það er mikil gæfa að hafa verið skip­stjóri í öll þessi ár og sleppa áfalla­laust.

„Já, þegar maður lítur til baka er maður voðalega montinn að hafa fiskað þetta mikið en þá er þetta það sem er gulls ígildi.“

Svo ef maður slítur af sér veið­ar­færi eða slasar fólk þá er maður vit­leys­ingur eða asni.

Menn gleyma því aldrei ef þeir missa mann.

„Nei. Það held ég ekki. Ég held að það hefði verið rosalega þungt. Það er oft svo stutt á milli hláturs og gráturs í þessu. Við erum hetjur, við róum í vitlausum veðrum og fáum einhvern afla en svo ef maður slítur af sér veiðar­færi eða slasar fólk þá er maður vitleysingur eða asni.“

Þá ertu skúrkur.

„Þá ertu skúrkur. Og það er oft svo stutt þarna á milli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt