Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bein Alfred Swinscoe eru fundin, 56 árum eftir að hann hvarf: „Morðinginn gerði sex börn föðurlaus“

Beitilandið þar sem leifarnar fundust
Beiti­landið þar sem leif­arnar fund­ust

Lögreglan hefur borið kennsl á mannvistar­leifar sem fundust á akri í Sutton-in-Ashfield. Um er að ræða leifar manns sem týndist fyrir 56 árum síðan. Skriða komst á málið eftir opinbert ákall lögreglunnar um upplýsingar um málið varð til þess að barnabarn steig fram.

Lögreglu­fulltrúar voru fyrst kallaðir á vettvang við Coxmoor-veg eftir að vegfarandi fann bein þann 26. apríl síðastliðinn. Lokað var fyrir umferð á svæðinu og allt flug bannað einnig, þar á meðal drónaflug, á meðan lögreglan rannsakar vettvanginn.

Alfred Swinscoe hvarf snemma árs 1967, er barnabarn hans, Russell Lowbridge var aðeins fjögurra ára gamall en Alfred hafði verið á kenderíi á Miners Arms barnum í Pinxton í Derbyskíri. Fjöl­skylda hans hefur beðið í 56 ár eftir svörum um hið dular­fulla hvarf Alfreðs.

Alfred með syni sínum, Gary

Lowbridge, sem nú er sextugur, hafði samband við lögregluna eftir að hún auglýsti eftir upplýsingum um líkams­leifar sem fundust við Coxmoor-veg en hafði ekki verið búið að bera kennsl á enn. DNA-sýni voru borin saman úr Russell og syni Alfreds, sem nú er á áttræðis­aldri. Kom í ljós að DNA-sýnin pössuðu við DNA sem fannst í beinunum.

Lögreglan segist vita hvernig Alfred var myrtur og að teymi dyggra rannsóknar­lögreglu­manna ynnu nú við hlið vísinda­manna við að finna morðingja Alfreds. Swinscoe var sex barna námu­verkamaður og bjó í hinu litla þorpi Pinxton í Derbyskíri er hann týndist. Alfred vann í Langton Colliery námunni frá fjórtán ára aldri en hann sást síðast þann 20. janúar árið 1967. Hann var „skeri“ þekktur fyrir að stjórna vél sem skar stóra klumpa af kolum úr kola­flötinni svo aðrir brotnuðu síðan niður.

Hann var kallaður „Spör­fuglinn“ og var einnig þekktur sem „Dúfu­meistarinn frá Pinxton“ vegna ástar hans á dúfu­kappleik. Fjögur af sex börnum hans eru enn á lífi og þá á hann fjöldi barna­barna.

Síðast sást til hans í Miners Arms í Vestur-Kirkju­stræti í Pinxton, en það var vinsæll bar meðal námu­verkamanna. Knæpan, sem nú hefur verið breytt í íbúðarhús, er staðsett nálægt þeim stað sem bein Alfred fundust.

Fjöl­skylda hans hefur verið sagt frá niður­stöðu DNA-rann­sóknarinnar og hefur hlotið aðstoð sérstak­lega þjálfaðra fulltrúa á meðan á þessari flóknu rannsókn stendur. Lögreglan er nú smá saman að mála upp mynd af lífi Alfreds, hverja hann þekkti og tíma­röðina á atburðum dagins sem hann hvarf.

Það er talið að Alfred hafi setið á drykkju með tveimur sonum sínum og vinum, kvöldið sem hann hvarf. Hann sást síðast klukkan hálf 12 að kvöld, er hann gaf syni sínum pening svo hann gæti keypt næsta umgang. Hann skrapp svo til að nota útikamarinn en snéri aldrei aftur.

Telja rannsóknar­lögreglu­menn að Alfred hafi verið myrtur og grafinn á beiti­landi, sirka fjögur til sex fet ofan í jörðina. Á beina­grindinni fundust nokkrir alvarlegir áverkar, sem verða rann­sakaðir nánar. Þá verða framkvæmdar frekar prófanir til að sjá nákvæmlega hvernig hann var myrtur og hvað hann hefur lengi legið þar sem hann fann. Þá er einnig verið að rannsaka föt sem fundust með beinunum, þar á meðal tveir sokkar og skór.

Aðstoðar­lögreglu­stjórinn Rob Griffin sagði: „Ég get ekki ímyndað mér hversu átakanlegt það hefur verið fyrir fjöl­skyldu Afred að þurfa að bíða í 56 ár eftir svörum. Sumir meðlimir fjöl­skyldunnar eru ekki lengur meðal okkar en þau dóu án þess að vita hvað kom fyrir ástvin þeirra þessa nótt. Það eina sem þau vissu var að Alfred fór á barinn eitt kvöldið og kom aldrei aftur heim. Við vitum að Alfred var myrtur. Við vitum það því það er greinlegt að hver sem gerði þetta gróf hann við Coxmoor-veg í þeirri von um að hann fyndist aldrei. Þrátt fyrir að glæpurinn var framinn fyrir meira en 50 árum, mun það ekki stoppa okkur í að nota öll okkar ráð til að komast að því hver morðinginn er. Við viljum þakka fjöl­miðlum og almenningi fyrir að dreifa beiðni okkar áfram, sem varð til þess að sonar­sonur Alfred steig fram. Í síðustu viku vissum við ekki hver maðurinn í enginu var en vorum búnir að útiloka öll þrjú manns­hvörfin héðan með DNA-rann­sóknum.“

Enn hélt Griffin áfram: „Við vissum að um væri að ræða karlmann á milli 40 til 60 ára í aldri og að hann hefði verið um 165 cm á hæð. Nú erum við með nafnið hans. Ef við getum skilið hvernig lífi hann lifði, þá getum við skilið hvernig hann dó. Rann­sókninni miðar mjög hratt en við viljum aftur biðla til almennings um hjálp. Við viljum heyra í öllum sem hafa einhverjar upplýsingar um Alfred. Þekktir þú hann? Varstu á Miners Arms í Pinxton á sama tíma og Alfred? Ertu með einhverjar upplýsingar sem geta hjálpað okkur að vita hvað gerðist þetta kvöld?“

„Eftir því sem tíminn líður, minnkar tryggðin og við vonum að fólk sem hafði upplýsingar um málið á sínum tíma, muni stíga fram núna. Það er óhugsandi annað en að finna út hvað kom fyrir Alfred, ekki aðeins til að færa fjöl­skyldunni frið, heldur einnig svo hægt sé að sækja þann sem ber ábyrgðina til saka. Morðinginn gerði sex börn föðurlaus. Morðingi hans stal af honum tækifærið á að byggja upp traust og varanleg tengsl sem oft er á milli ömmu og afa og barna­barna. Morðinginn skyldi þau eftir með ósvaraðar spurningar í áratugi, um það hvað kom fyrir ástvin þeirra. Við vonum að almenningur geti hjálpað okkur að finna sann­leikann.“

Nottingham Post skrifaði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár