Rán í skartgripaverslun náðist á myndband sem birt var í síðustu viku en samkvæmt Breskum fjölmiðlum hefur ránum af þessu tagi fjölgað töluvert á síðustu árum.
Á myndbandinu sést bifreið bakka inn í verslunina Danyaal Jewellers af miklum krafti en þar á eftir birtast grímuklæddir menn, einn þeirra vopnaður öxi.
Átti ránið sér stað um hábjartan dag í Birmingham en á myndbandinu sést einn ræningjanna ógna gangandi vegfaranda og heyrist hann öskra: ,, „Hvað, hvað, hvað, farðu inn í helvítis búðina!“.
Enginn slasaðist við ránið en íbúum Birmingham er brugðið eftir atburðinn.
Myndbandið má sjá hér að neðan.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir