Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Þekktur læknir frá Gaza í lífshættu í ísraelsku fangelsi

Dr. Hussam Abu Safiya
Dr. Hussam Abu Safiya Abu Safiya seg­ist ekki eiga langt eftir Mynd: Skjáskot

Einn þekktasti læknir Gaza, Hussam Abu Safiya, er nær óþekkjanlegur eftir alvarlega áverka sem hann er sagður hafa hlotið í haldi í Ísrael. Lögmaður hans segir líf hans vera í bráðri hættu eftir 18 mánaða gæslu­varðhald án ákæru eða réttar­halda, að því er fram kemur í frétt Guardian.

Abu Safiya hitti lögmann sinn, Nasser Odeh, þann 2. júlí eftir að hafa verið fluttur í lok júní í neðan­jarðar­fangelsið Rakefet í Ísrael.

Samkvæmt Odeh átti læknirinn erfitt með öndun og tal, var svo mátt­farinn að hann gat vart setið uppréttur og virtist ítrekað vera við það að missa meðvitund.

Abu Safiya, sem stýrði áður Kamal Adwan-sjúkra­húsinu á norður­hluta Gaza þar til ísraelskir hermenn handtóku hann, sagðist óttast að hann myndi ekki lifa fanga­vistina af.

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig. Ég sé ekki fyrir mér að ég lifi þetta af. Þetta er endirinn,“ hefur Odeh eftir honum í sameiginlegri yfir­lýsingu með Physicians for Human Rights Israel, sem ásamt fleiri samtökum krefjast tafar­lausrar lausnar hans úr haldi.

Segja árásir á heilbrigðiskerfið hluta af stærra mynstri

Milena Ansari hjá Physicians for Human Rights Israel segir fangelsun Abu Safiya hluta af víðtækara mynstri árása Ísraels á heilbrigðis­kerfi Palestínu.

Á sama tíma greindi fjöl­skylda fjögurra mánaða palestínsks drengs, Ahmad Maarouf Zaid, frá því að hann hefði látist eftir að ísraelskir hermenn hefðu komið í veg fyrir að fjöl­skyldan kæmist að sjúkrabíl við eftirlitsstöð á Vestur­bakkanum.

Að sögn fjöl­skyldunnar þurftu þau sjálf að aka barninu um ógreið­færa fjallvegi til Ramallah, sem tafði meðferð þess um rúma klukku­stund.

„Fréttir af nýbura sem deyr eftir tafir við eftirlitsstöð, handtaka læknis sem veitti heilbrigðis­þjónustu og síversnandi mannúðar­ástand á Gaza eru ekki einangruð atvik,“ sagði Ansari. „Þau endur­spegla kerfis­bundið mynstur þar sem grafið er undan forsendum fyrir rétti Palestínu­manna til heil­brigðis.“

Barinn daglega

Fyrir handtöku sína varð Abu Safiya eitt helsta andlit heilbrigðis­starfsmanna á Gaza sem reyndu að sinna sjúklingum meðan þjóðar­morð stóð sem hæst.

Hann er í hópi þúsunda palestínskra óbreyttra borgara sem eru í haldi án dóms og laga. Ísraelsk mann­réttinda­samtök hafa sakað fangelsis­yfirvöld um að reka fangelsi sem jafngildi pyntinga­búðum.

Lögmaður hans segir að Abu Safiya hafi í lok maí verið fluttur í einangrun í Ganot-fangelsið án skýringa. Þar hafi fanga­verðir ráðist á hann með hömrum og kylfum skömmu eftir að hann kom fram í gegnum fjarfundar­búnað við málflutning fyrir hæstarétti vegna gæslu­varðhalds síns.

Síðar hafi hann verið fluttur í Rakefet-fangelsið þar sem heilsu hans hafi hrakað verulega.

„Ég hef heimsótt dr. Abu Safiya nokkrum sinnum frá því hann var hand­tekinn, en sá maður sem ég hitti nú var ekki sami einstaklingur og áður,“ sagði Odeh og kallaði eftir tafar­lausri óháðri læknis­skoðun.

Samkvæmt lögmanninum sagðist Abu Safiya hafa verið barinn daglega í Rakefet og misst meðvitund nokkrum sinnum vegna áverka sinna.

Ísraelsk fangelsisyfirvöld hafna ásökunum

Rakefet-fangelsið, þar sem fangar sjá aldrei dagsljós, var reist á níunda áratugnum fyrir háttsetta skipulagða glæpamenn en síðar lokað þar sem það þótti ómannúðlegt. Fangelsið var opnað á ný að fyrir­skipun þjóðar­öryggis­ráðherra Ísraels, Itamar Ben-Gvir.

Aðrir palestínskir fangar sem þar hafa verið í haldi hafa einnig lýst loftleysi og köfnunar­tilfinningu í yfir­fullum og óloft­ræstum klefum.

Talsmaður ísraelskra fangelsis­yfirvalda hafnaði ásökunum Odeh og sagði þær „rangar og algjör­lega án stað­reynda“, en vildi ekki tjá sig um heilsufar Abu Safiya og vísaði til persónu­verndar.

„Hin endanlega niðurlæging“

Eins og segir frá hér fyrir ofan var dauði hins fjögurra mánaða gamla Ahmads tilkynntur á sunnudags­kvöld. Drengurinn fæddist eftir margra ára glasa­frjóvgunar­meðferð og hafði verið við góða heilsu þar til hann fékk háan hita á sunnudags­morgun.

Fjöl­skyldan kallaði eftir sjúkrabíl sem beið við hlið Ein Ayoub-hliðsins í flóttamanna­búðunum Deir Ammar.

Frá 7. október 2023 hefur Ísrael reglulega bannað ökutækjum, þar á meðal sjúkra­bílum, að fara um þessa leið sem er helsta tengingin við Ramallah og sjúkrahús borgarinnar.

Að sögn fjöl­skyldunnar stöðvuðu fjórir ísraelskir hermenn foreldrana þegar þau reyndu að komast að sjúkra­bílnum, þrátt fyrir ítrekaðar bænir þeirra um að fá að fara í gegn.

Frændi barnsins, Arafat Ahmad Zaid, sagði að drengurinn hefði þurft súrefni og að lífi hans hefði hugsanlega verið bjargað ef hann hefði komist tímanlega á sjúkrahús.

Ísraelski herinn neitar því að hafa komið í veg fyrir að fjöl­skyldan fengi læknis­aðstoð.

„Það eru engin orð til að lýsa sárs­aukanum við að horfa á eigið barn deyja í fanginu á sér og vita að ekkert sé hægt að gera til að bjarga því. Það er hin endanlega þjáning. Það er hin endanlega niður­læging,“ sagði Arafat Ahmad Zaid.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár