Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Bryndís klagar Gunnar Hrafn til Landlæknis: Sökuð um falskar minningar um meint ofbeldi Fjölnis

Bryndís Ásmundsdóttir
Bryndís Ásmunds­dóttir Mynd: Thormar V Gunnarsson

Alls hafa tíu mæður sent kvörtun til embættis Land­læknis vegna vinnu­bragða matsmanns í forsjár­máli: Ein þeirra er Bryndís Ásmunds­dóttir, leik- og söngkona.  Hún segir í kvörtun sinni að áður­nefndur matsmaður geri henni upp falskar minningar varðandi ofbeldi af hálfu barns­föður síns, Fjölnis Þorgeirs­sonar:

Fjölnir Þor­geirs­son

„Lýsir föður í raun saklausan, með vísan til fram­burðar hans, og þrátt fyrir lögreglu­skýrslur, framburð vitna og vitnis­burð annarrar barns­móður föður um ofbeldi.“

Ofantalið kemur fram í tilkynningu frá Líf án ofbeldis sem sagt var frá í síðustu viku; þar kom fram að tíu mæður hafa sent kvörtun til embættis Land­læknis vegna þess sem þær ófagleg viðbrögð og „hlut­drægni sálfræðinga sem taka að sér hlutverk dómkvaddra matsmanna; og sérfróðra meðdómsmanna í forsjár­málum.“

Sálfræðingarnir eru þrír talsins: Guðrún Odds­dóttir, Gunnar Hrafn Birgisson og Ragna Ólafs­dóttir. Óskað hefur verið eftir viðbrögðum frá þeim vegna kvartananna: Engin svör hafa borist frá þremenningunum.

Gunnar Hrafn Birg­is­son

Afrit af kvörtununum tíu fylgdu tilkynningunni frá Líf á ofbeldis, sem eru baráttu­samtök mæðra og uppkominna barna, sem krefjast þess að börn séu vernduð gegn ofbeldi í umgengnis- og forsjár­málum. Kvörtunin, sem greint er frá hér að ofan, frá Bryndísi Ásmunds­dóttur vegna starfa Gunnars Hrafns sem matsmanns í forsjár­máli – var send til embættis land­læknis 26. ágúst í fyrra.

„Áfengis­saga föður er nefnd en í niður­stöðu kafla er hann sagður vera edrú, án þess að neitt sé í matsgerð sem styðji þá full­yrðingu og fær faðir því ólíka meðferð hjá matsmanni sem á að vera hlutlaus fagaðili,“ segir í kvörtun Bryndísar, og telur hún matsmann vera mjög hlut­drægan í mati sínu:

„Þá virðist almennt mikið gert úr mínum brestum á meðan lítið er gert úr brestum föður og matsmaður því alls ekki óhlutdrægur í mati sínu. Matsmaður svarar ekki spurningum um hvort barn sé beitt eða gæti verið beitt ofbeldi hjá föður, þar sem hann ræðir ekki við önnur börn hans og spyr ekki drenginn sem um ræðir hvort faðir hafi beitt hann ofbeldi eða hvort óregla eða rifrildi sé á heimilinu; þrátt fyrir að í málinu liggi fyrir hljóð­upptaka þar sem tveir synir föður ræða saman um framkomu föður við þá.“

Hér að neðan má lesa í heild kvörtun Bryndísar vegna starfa Gunnars Hrafns:

Matsmaður er hlut­drægur í mati sínu, en þar sem aðilar fá svipaða niður­stöðu á prófum eru þær settar fram á mjög ólíkan hátt.

Niður­stöður föður eru settar fram á mun jákvæðari hátt en niður­stöður mínar, jafnvel þó svo að niður­stöður aðila séu þær sömu.

Þá virðist almennt mikið gert úr mínum brestum á meðan lítið er gert úr brestum föður og matsmaður því alls ekki óhlutdrægur í mati sínu.

Þá gengur matsmaður það langt að hann sest í raun í dómara­sætið varðandi ofbeldi föður gagnvart mér þar sem hann lýsir föður í raun saklausan, með vísan til fram­burðar hans og þrátt fyrir lögreglu­skýrslur, framburð vitna og vitnis­burð annarrar barns­móður föður um ofbeldi.

Hann lætur þó ekki þar við sitja heldur gerir mér upp falskar minningar um ofbeldið sem er órökstutt með öllu og með öllu ófagleg greining þar sem falskar minningar eru í besta falli umdeilt hugtak; auk þess sem fram­burður minn um ofbeldi af hálfu barns­föður styðst við framburð vitna hjá lögreglu og framburð annarrar barns­móður hans.

Ekki eru kannaðar frásagnir annarra um ofbeldi og er alfarið skv. framburði mínum.litið framhjá framburði fyrrum barns­móður sem varð fyrir ofbeldi og ekki rætt við son hans sem varð fyrir ofbeldi af hans hálfu

Þá er í matsgerð áberandi lítið af mæli­tækjum; ekki eru notaðir skimunar­listar sem mæla þung­lyndis- og kvíða­einkenni og heldur ekki mælitæki sem meta einkenni persónuleikaraskana – en matsmaður leyfir sér samt sem áður að greina mig með persónu­leika­röskun, en tilgreinir ekki hvaða persónu­leika­röskun ég er með.

Matsmaður túlkar mikið út frá persónu­leika­prófi sem er úrelt og mjög umdeilt og er ekki notað neins staðar nema í forsjár­málum af sumum mats­mönnum. Það er ekki staðlað á Íslandi og er með mjög slakan innri áreiðanleika. Einnig er innbyggð kynja­skekkja á mæli­kvarða sem mælir hvort fólk sé að fegra sig á prófinu (L-kvarði).

Varðandi neyslu þá gerir matsmaður þá ályktun að ég sé í neyslu lyfja út frá framburði barns­föður en lítur framhjá því að Barna­vernd taldi enga neyslu eða áfengis­neyslu í gangi hjá mér og að geðlæknir minn telji mig ekki eiga í vandræðum með lyfja­notkun.

Matsmaður svarar ekki spurningum um hvort barn sé beitt eða gæti verið beitt ofbeldi hjá föður, þar sem hann ræðir ekki við önnur börn hans og spyr ekki drenginn sem um ræðir hvort faðir hafi beitt hann ofbeldi eða hvort óregla eða rifrildi sé á heimilinu, þrátt fyrir að í málinu liggi fyrir hljóð­upptaka þar sem tveir synir föður ræða saman um framkomu föður við þá; aðeins er rætt við dreng í gegnum föður og á heimili hans, en ekki á heimili mínu sem er jafnframt lögheimili drengsins.

Þá fékk ég ekki tækifæri til þess að fara yfir og staðfesta þær upplýsingar sem fram koma í matsgerð líkt og staðhæft er í matinu og hafði hann rangt eftir mér í mats­gerðinni. Þrátt fyrir að hafa leitast eftir því sjálf í tölvu­pósti.

Auk þess sem að einhverju leyti er rangt haft eftir þeim aðilum sem matsmaður ræddi við vegna matsins.

Þá var ekkert rætt við skóla barnins.

Ekki sóttist matsmaður eftir nýjustu gögnum frá barna­verndar­nefnd, heldur var aðeins stuðst við gömul gögn þrátt fyrir vitneskju um að nýleg gögn væri að vænta.

Framkvæmd matsins var ekki í samræmi við góða starfs­hætti þar sem ekki var tekið tillit til veikinda minna og ekki tekið tillit til þessa álags sem fylgdi því að fara í gegnum svona mat. Þar sem mats­maðurinn var á mínu heimili í 9 klst. þar sem ég var látin þreyta próf í framhaldi af löngu samtali við matsmann, þar sem farið var yfir mjög erfiða sögu, þar á meðal erfiða æsku og ofbeldi af hálfu maka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá