Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þýskur karlmaður formlega grunaður í máli Madeleine McCann: Dæmdur barnaníðingur og eiturlyfjasali

Madeleine McCann
Madel­eine McCann

Formleg tilkynning hefur borist frá yfir­völdum í Portúgal um mann sem grunaður er í tengslum við hvarf Madeleine McCann árið 2007. Maðurinn er Þjóðverji og hefur verið orðaður við málið áður. Þetta er í fyrsta sinn sem portúgölsk yfirvöld hafa tilkynnt að einhver hafi formlega stöðu grunaðs í málinu, allt frá því að foreldrarnir, þau Kate og Gerry McCann, lágu sjálf undir grun lögreglunnar árið 2007. Þau voru síðar hreinsuð af öllum grun.

Í tilkynningu saksóknara í Portúgal er maðurinn ekki nefndur en tekið fram að það hafi verið þýsk yfirvöld sem bentu þeim portúgölsku á hann.

Maðurinn sem um ræðir heitir Christian Brueckner og er 45 ára dæmdur barna­níðingur og eiturlyfja­sali. Þýsk lögreglu­yfirvöld sögðu frá því í júní árið 2020 að Madeleine McCann væri mjög sennilega látin og að Brueckner bæri að öllum líkindum ábyrgð á dauða hennar. Hann hefur þó ekki verið kærður í tengslum við hvarf hennar síðan þá. Hann situr núna í fangelsi í Þýska­landi fyrir að hafa nauðgað konu á sama svæði í Algarve og Madeleine hvarf frá fyrir 15 árum síðan.

Samkvæmt Reuters hefur Brueckner neitað því að eiga þátt í hvarfi McCann. Samkvæmt saksóknara hafa bæði bresk og þýsk yfirvöld tekið þátt í rann­sókninni.

Brueckner bjó í Algarve á milli ársins 1995 og 2007. Þar stundaði hann innbrot inn á hótel og í orlofsíbúðir. Hann falsaði einnig vegabréf og var tekinn við að stela dísel-olíu úr portúgalskri höfn.

Ekki er vitað fyrir víst hvers vegna portúgölsk yfirvöld ákváðu að láta til skarar skríða núna og nefna grunaðan mann formlega. Það er þó talið geta tengst fyrningu brota í réttar­kerfi Portúgals. Fyrningar­tími brota þar sem hámarks­refsins er 10 ára fangelsi eða meira, er 15 ár. Í næsta mánuði verða einmitt komin 15 ár frá hvarfi Madeleine McCann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall