Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Nýjar upplýsingar um hvarf X Factor-stjörnu: „Ég veit ekki hverju ég á að trúa lengur“

Síðasta myndskeiðið af Levi Davis
Síðasta mynd­skeiðið af Levi Davis

Lögreglan hefur gefið upplýsingar um leit sína að X Factor stjörnunni Levi Davis sem týndist fyrir sjö mánuðum.

Levi Davis

Levi, 24 ára rugby-leikmaður, týndist þann 29 október eftir að hann yfirgaf Bretland og ferðaðist einn síns liðs til Barcelona á Spáni. Hann sást síðast á lífi á öryggis­myndavél þar sem hann sést yfirgefa bar í borginni.

Móðirin leitar svara

Lögreglan sagði móður hans, Julie, að fjórir starfs­menn skemmtiferða­skips hafi séð einhvern í sjónum, öskra á hjálp á ensku, aðeins um klukku­tíma eftir að hann sást á mynd­skeiðinu, um klukkan hálf sjö að morgni. Sögðu þau manninn hafa verið klæddan í ljósan bol, líkur þeim sem Levi klæddist.

Levi og móðir hans Julie

Björgunar­hring var kastað í sjóinn en hvorki lögreglan né Landhelgis­gæslan fann nokkurn mann í sjónum.

Nú eru kafarar lögreglunnar að leita að vísbendingum um Levi en þeir hafa eitt síðustu 15 dögum í leit við höfnina í Barcelona. Gerir lögreglan ráð fyrir því að leitin muni taka upp undir mánuð.

Lögreglu­fulltrúar sögðu að þeir séu enn að safna sönnunar­gögnum í leit sinni en hingað til hefur hún einungis fundið vegabréf Levi, sem fannst 20 dögum eftir hvarf hans.

Móðir Levi, Julie Davis, ferðaðist til Barcelona í apríl til að feta í fótspor sonar síns, ef svo má að orði komast en rann­sakendur hafa sagt henni að þeir telji að hann hafi drukknað.

Julie sagði í apríl: „Af hverju eru þessar upplýsingar um áhöfn skemmtiferða­skips að koma núna, mánuðum seinna? Ég veit ekki hverju ég á að trúa lengur.“ Segir móðirin að enn sé mörgum spurningum ósvarað en að hún sé orðin afar vonsvikin yfir skort á svörum lögreglu.

Bætti hún við: „Það sem sönnunar­gögnin benda til eru ekki góðar fréttir en án líks er bara engin leið til að vita hvað hefur gerst.“

Sló í gegn í X Factor

Levi kom fram í X Factor árið 2019 sem partur af söng tríóinu Try Star en hann lék einnig rugby fyrir Bath.

Try Star

Hið skyndi­lega hvarf hans, eftir að hann yfirgaf vini sína til að ferðast með báti, hefur leitt til ýmissa kenninga en móðir hans hefur meðal annars haldið því fram að hann hefði verið kúgaður fjárhags­lega.

Levi birti myndband rétt áður en hann týndist þar sem hann sagðist vera skotmark eftir að „vafasamar “ljós­myndir voru teknar af honum. Í febrúar sagði spænska lögreglan að Levi hefði látið sig hverfa sjálf­viljugur en sagði svo móður hans að henn hefði líklega drukknað.

Móðir hans sagði að Levi hefði verið að jafna sig eftir liðbanda­meiðsl og hafi verið dapur og því ákveðið að ferðast til útlanda til að „hreinsa hugann“.

Mirror fjallaði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár