Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Evert leitar lausna: „Við getum alveg látið fólk borða mat en ekki rusl og látið fólk hreyfa sig“

Evert er með áratuga reynslu þegar kemur að hreysti og líkamsrækt
Evert er með ára­tuga reynslu þegar kemur að hreysti og lík­ams­rækt

„Það getur ekki verið eðlilegt að meira en 70 prósent Íslendinga séu að taka lyf að staðaldri. Ég vil sjá þetta alveg öfugt. Það á að vera minni­hlutinn sem er að taka lyf,’’ segir Evert Víglundsson, eigandi CrossFit Reykja­víkur, í nýjum hlaðvarps­þætti Sölva Tryggva­sonar. Þar ræðir Evert um hin ýmsu mál sem snúa að hreyfingu og heil­brigði.

„Það eru engir peningar í því að gera fólk heilbrigt og það er hluti af vandanum. Við getum breytt þessu öllu, en það verður erfitt á meðan peningarnir eru í því að selja öll þessi lyf. Mörg af stærstu fyrir­tækjum í heiminum eru lyfja­fyrirtæki og það þarf ekki að kafa djúpt til að byrja að spurja spurninga. Þar sem eru svona miklir peningar er stutt í einhvers konar spillingu. Sagan um Oxycontin sem nú er búið að gera sjónvarps­seríu um er eitthvað sem líklega hefur gerst margoft í einhverri mynd. Allir stærstu lyfjarisarnir eru með einhvers konar dóma á bakinu fyrir að ljúga að fólki, sem eitt og sér ætti að fá okkur til að hugsa okkur um. Læknarnir okkar og heilbrigðis­starfs­fólkið er frábært fólk, en það er eitthvað í kerfinu sjálfu sem er ónýtt,“ segir Evert en er hann sann­færður um að Ísland geti orðið heilbrigðasta land í heimi. Til þess að svo verði, verði allir að leggjast á eitt. Unga fólkið líka.

„Við sem samfélag þurfum að leggjast á eitt til að gera okkur öll heilbrigðari og ekki sjá það sem eðlilegan hlut að flestir séu að taka lyf, þó að auðvitað eigi þau rétt á sér. Ísland á að vera heilbrigðasta land í heimi og við sáum það vel í Covid faraldrinum að þegar við viljum, þá getum við öll gengið í takt. Fólk virðist geta farið eftir fyrir­mælum, þannig að það er spurning hvort ekki sé komið að tilmælum og fyrir­mælum um að hreyfa sig, borða hollan mat og hugsa um svefninn. Auðvitað yrði mjög hávær umræða ef við færum að banna sykur og fleira í þeim dúr. En ég tel að við getum alveg látið fólk borða mat en ekki rusl og látið fólk hreyfa sig. Við þurfum bara að finna leiðina til þess. Hvað myndi gerast ef við myndum til dæmis hafa þjóðar­átak þar sem allir myndu ganga í takt í 30 daga til þess að vera besta útgáfan af sjálfu sér? Væri það ekki tilraun sem væri vert að prófa. Það er auðveldara að framkvæma hluti í hóp og þegar aðrir eru að gera sömu hluti.“

Evert segir að Covid hafi haft neikvæð áhrif á lífstíl margra og færri stundi líkams­rækt eftir heims­faraldurinn.

„Ég sé það í CrossFit Reykjavík og veit að það er þannig hjá flestum sem ég hef talað við í þessum geira að hlutirnir hafa verið hægari eftir Covid. Það hafa almennt ekki eins margir verið að mæta í ræktina eftir Covid, enda er ekki nema ár síðan aðgerðir voru í fullum gangi. Við eigum örugglega enn eftir að sjá afleiðingarnar af því hvernig lífsstíll fólks hefur versnað enn meira eftir þetta tímabil,“ segir hann en þáttinn horfa á í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt