Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Vinkonurnar mögulega sendar til Hvíta-Rússlands: „Það er ekki vafi í mínum huga“

Daria og Alina
Daria og Alina Mynd: Björgvin Gunnarsson

Hvít-rússnesku vinkonurnar Alina Kaliuzhnaya og Daria Novitskaya sem Mannlíf tók viðtal við á dögunum, gætu verið sendar til Hvíta-Rússlands, fái þær ekki stöðu flótta­manna.

Útlendinga­stofnun hefur tvívegis neitað konunum um hæli á Íslandi sem pólitískir flótta­menn en nýverið var ákveðið að taka mál þeirra til efnislegrar skoðunar, í ljósi þess að Pólland er í engri stöðu til að taka við þeim aftur vegna stríðsins í Úkraínu. Eins og fram kom í viðtalinu höfðu þær vinkonur ríka ástæðu til að flýja heima­landið en báðar þjást þær af sjaldgæfum sjúkdómum og hafa sætt ofsóknir af hendi yfirvalda Alexanders Lukashenko forseta eftir að þær tóku þátt í mótmæla­göngum vegna spillingar forsetans. Daria þurfti að dúsa 15 daga í fangelsi þar sem hún varð fyrir andlegu ofbeldi og pyntingum. Flúðu þær því til Íslands með pólskri vegabréfs­áritun.

Sjá einnig: Pólitískar flótta­konur frá Hvíta-Rússlandi senn sendar úr landi – Veikar og óttast fram­haldið

Í samtali við Mannlíf sagði lögmaður Alinu, Jón Sigurðsson að afar sjaldgæft væri að fólk frá Hvíta-Rússlandi fái mál sitt tekið til efnislegrar skoðunar en vegna stríðsins í Úkraínu var ákveðið að gera það. „Þetta er sjaldgæft land til að hljóta efnis­meðferð en þær fengu það bara vegna ástandsins í Póllandi, það eru svo margir flótta­menn þar núna.“

En hvað er efnis­meðferð? „Þær sem sagt fara í viðtal hjá Útlendinga­stofnun á næstunni og í kjölfarið verður það metið hvort þær uppfylli skilyrði fyrir því að kallast flótta­menn,“svaraði Jón og bætti við að „ef að það endar í neikvæðri niður­stöðu, þá gætu yfirvöld komist að þeirri niður­stöðu að það eigi að senda þær aftur til Hvíta-Rússlands.“ Bætti hann einnig við að það sé kannski ekki beint hægt að segja að það standi til en gæti orðið raun­veruleikinn ef allt fer á versta veg.

Að lokum spurði blaða­maður Mannlífs hvort hann væri bjartsýnn á jákvæðri niður­stöðu fyrir vinkonurnar sagðist Jón auðvitað aðeins geta svarað fyrir hönd Alinu. „Ég tel að Alina uppfylli skilyrðin til þess að vera flótta­maður, það er ekki vafi í mínum huga en yfirvöld eru stundum ósammála.“

Málið verður tekið fyrir á allra næstu dögum.

Hafin er undir­skrifta­söfnun til stuðnings Alinu og Dariu, til að krefjast þess að þær fái að búa hér á landi. Hægt er að skrifa undir hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur