Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Þórdís Jónsdóttir bróderar blóm í púða og myndir: „Ég leyfi mér að fara út af sporinu“

Þórdís Jónsdóttir
Þórdís Jóns­dóttir

„Þegar ég var stelpa var ég í skátunum og þar var tenging við náttúruna meðal annars fólgin í alls kyns útiveru; göngu­ferðum og útilegum allt árið um kring og þar var okkur kennt að bera virðingu fyrir nátt­úrunni og vera vakandi fyrir fegurð landsins og breyti­leika. Í uppvextinum voru foreldrar okkar duglegir að fara með okkur systkinin í bílferðir og fegurð landsins skoðuð. Ég minnist þess að ég átti litlar bækur, en ég tíndi villt blóm og pressaði og þurrkaði þau í bókinni og lagði á minnið hvað blómin hétu. Kannski það hafi verið upphafið að blóma­áhuga mínum, því síðar fór ég að bródera blóm í púða og myndir,“ segir Þórdís Jóns­dóttir sem í mörg ár hefur vakið athygli fyrir gull­fallega púða sem hún hannar og saumar og nú á lengsta degi ársins blómstra blómin í nátt­úrunni sem og á púðunum hennar.

„Þegar grunn­skólagöngu minni lauk var ég svo guðs­lifandi fegin að þeim kafla í lífi mínu væri lokið og ég gat ekki hugsað mér að halda áfram á þeim vegi svo ég réð mig til starfa í blómabúð og að vera innan um ilmandi blóm þótti mér gleðilegt. Að ganga inn á vinnu­staðinn að morgni og finna ilminn af afskornu blómunum er ljós­lifandi minning. Ég hugsaði stundum um það á þessum tíma mínum í blóma­búðinni að það gæti verið gaman að læra blóma­skreytingar, en það að þurfa að setjast aftur á skólabekk ýtti þessari hugmynd út af borðinu. Þannig að nú bródera ég blóm; þó ekki ilmandi, en litfögur og svei mér ef ég kannski bara finn ekki ilminn af þeim þegar ég sit í eigin heimi og sé þau spretta í rólegheitunum, spor eftir spor, þar til fullvaxið blóm er komið á textíl.“

Þórdís segir að hugmyndirnar komi úr öllum áttum. „Ég er kannski að hjóla úti í nátt­úrunni og þá fer hugurinn á flug um hvað verði næsta verkefni og þá er bara spennandi að koma heim og setjast við verkið.“

Á gráum rign­ing­ar­dögum er til dæmis gaman að hafa glaða liti á nál­inni.

Hvað með litaval?

„Litavalið í verkin mín ræðst stundum bara þegar ég er búin að teikna mynstrið. Á gráum rigningar­dögum er til dæmis gaman að hafa glaða liti á nálinni. Annars finnst mér allir litir fallegir og gefa mér góða orku.“

Meira líf

Þórdís Jóns­dóttir á ekki langt að sækja áhugann á útsaumi, en þess má geta að systur hennar eru Margrét Jóns­dóttir, leir­listakona á Akureyri, og María Jóns­dóttir list­málari en viðtal við hana birtist á mannlif.is 20. júní.

„Ömmur mínar voru miklar handa­vinnukonur og móðuramma mín bjó í næsta húsi við fjöl­skylduna þannig að mér þótti svo gott að fara til ömmu og sitja hjá henni og sjá hvað hún var að gera í höndunum. Stundum hlustaði hún á tónlist eða síðdegis­söguna í útvarpinu og það var alltaf eitthvað svo góð ró yfir. Svo fór ég að fá að sauma út líka og þannig held ég að þessi kunnátta mín hafi síast inn ómeðvitað því að ég hef aldrei farið og sótt mér kunnáttu í útsaum í formi námskeiða eða skóla.

Það fyrsta sem ég byrjaði að bródera og selja voru litlar myndir, en svo um 1998 fórum við mágkona mín í samstarf við að framleiða flís­fatnað á börn og svo seinna bættum við fullorðins­peysum og sjölum fyrir konur inn í línuna okkar. Verka­skiptingin var þannig að ég sá um útsauminn og mágkona mín meira um hönnun á sniðum og vélsauminn. Þetta var skemmtilegur tími og enn þann dag í dag erum við að sjá þessar flíkur í notkun, sem gleður okkur og segir okkur líka að við vorum með gæðavöru. En svo kom að því að við snerum okkur báðar að öðrum verkefnum, en hver veit nema við eigum eftir að gera eitthvað saman í fram­tíðinni.

Svo var það 2007 sem að ég byrjaði á púða­saumnum. Þá saumaði ég nokkra púða fyrir veitinga­stað sem var verið að opna á Akureyri, en þá óraði mig ekki fyrir hvað boltinn á þessu sviði ætti eftir að rúlla. Ég hef eiginlega ekki lagt frá mér nálina síðan ef svo má segja. Ég áttaði mig alls ekki á því lengi vel að ég væri að gera eitthvað sem alls ekki allir gætu gert. Mér fannst eins og allir kynnu að bródera en ég hef áttað mig á því núna að ég fékk þessa góðu vöggugjöf sem ekki er öllum gefin og ætla aldeilis að nýta mér hana áfram. Og það er gaman að sjá hve margir listamenn eru farnir á grípa í útsaum í verkum sínum. Auðvitað tek ég mér pásur, en það er alltaf eftir­spurn; fólki finnst gaman að færa blómin inn í híbýli sín í formi púða eða mynda og þessi blóm standa um ókomna tíð. Ég hef reynt að velja gæðaefni í verkin mín svo þau haldi sér vel og standist tímans tönn og mér finnst gott þegar ég heyri að púðarnir frá mér séu alltaf eins og nýir. Ég nefnilega segi oft við fólk að auðvitað eigum við að nota púðana sem stuðning við bakið, hrista þá svo bara til eftir notkun og þá eru þeir eins og nýir. Hvað er betra en leggja höfuðið á útsaumaðan púða og láta sig dreyma?“

Útsaum­ur­inn er meðal ann­ars kannski orð­inn frjáls­ari.

Hvernig hafa verkin þróast?

„Mynstur hafa þróast í áranna rás og útsaumurinn er meðal annars kannski orðinn frjálsari. Ég leyfi mér meira að fara út af sporinu og þá finnst mér ég ná meira lífi í verkin.“

Handverksmaður ársins

Hvað gefur sauma­skapurinn Þórdísi?

„Það að velja grun­nefnið, ákveða mynstrið og svo lita­samsetninguna veitir mér mikla gleði og ég er alltaf jafn spennt að byrja á nýju verkefni. En stundum legg ég af stað í verkið, en finn að ég ætti kannski að hafa eitthvað öðruvísi og þá er bara að finna aðra liti og láta sköpunar­kraftinn ráða ferðinni. Það þarf stundum ekki nema nokkra þræði af öðrum lit til að breyta og ná meiri dýpt. Auðvitað hætti ég ekki fyrr en ég er fullkomlega sátt við útkomuna og ég get stolt látið verkin mín af hendi á nýtt heimili.“

Ég fékk eitt árið útnefn­ing­una „hand­verks­maður árs­ins“ og annað ár fékk ég Hvatn­ing­ar­verð­laun árs­ins.

Þórdís selur ekki verkin sín í neinum verslunum. „Það hefur gefið mér mest að taka þátt í sýningum, meðal annars á vegum Handverks og hönnunar sem hefur verið haldin í Ráðhúsi Reykja­víkur og einnig á Handverks­hátíðinni í Eyja­fjarðar­sveit þar sem ég fékk eitt árið útnefninguna „handverks­maður ársins“ og annað ár fékk ég Hvatningar­verðlaun ársins. Svona útnefningar gleðja og hvetja mann til að halda áfram því sem ég hef verið að gera. Ég hef eignast góðar vinkonur sem eru að vinna við hönnun og handverk og höfum við haldið nokkra hönnunar- og handverks­markaði á Eyja­fjarðar­svæðinu og hafa þeir viðburðir verið vel sóttir. Við hittumst reglulega og skiptumst á hugmyndum og hvetjum hver aðra áfram í því sem við erum að vinna að. Það er góð vinátta sem hefur myndast hjá okkur.“

Gömlu útsaumshefðirnar

Þórdís segist yfirleitt vinna að einum púða í einu. „Mér hefur fundist það henta mér best. En meðan ég vinn þann púða þá vakna yfirleitt hugmyndir að þeim næsta og jafnvel þeim sem kæmi þar á eftir og litavali og mynstri sem ég hef í huga. En hugurinn vinnur hraðar en hendurnar og þegar maður hefur bara tvær hendur til að vinna þetta verk þá er bara um að gera að njóta hvers spors. Því það er þannig með útsauminn að það er ekkert hægt að flýta sér, þetta tekur sinn tíma og ég nýt hvers spors sem ég sting niður og sem fetar sig í átt að full­sprottnum blómum. Ég teikna öll mín mynstur sjálf; ég hef þó aldrei verið góð að teikna en blómum og mynstrum hefur mér tekist að skila frá mér. Ég er held ég bara betri að teikna með nál og þræði. Mynstrin í íslenska kven­búningnum hafa heillað mig og ég hef unnið nokkuð út frá þeim mynstrum. Svo fæ ég hugmyndir að mynstrum úti í nátt­úrunni og víða svo sem af öðrum útsaums­verkum. Ég reyni að halda í gömlu útsaums­hefðirnar en þó með mínum hætti til að gera hvert verk að mínu.“

Fallegir litir hafa góð áhrif á mig.

Þórdís segir að útsaums­þræðir hennar liggi til fortíðar. „Handverks­hefðir formæðranna eru mér ofarlega í huga þegar ég þræði nálina og byrja á nýju verki. Það að sjá litskrúðug blóm verða til við hvert spor sem ég sting niður nálinni með litfögru garni veitir mér lífsgleði. Fallegir litir hafa góð áhrif á mig og ég fæ aldrei leiða á að sitja og bródera. Það sem kannski er verst er að stundum er vinnu­gleðin svo mikil að ég gleymi mér og átta mig ekki á því hvað ég hef setið lengi; fyrr en ég ætla að standa upp en þá er smástífni í baki og herðum sem þarf að mýkja upp.“

Algerlega í núinu

Þórdís situr heima og saumar og hún segir sér líða vel að vera heima hjá sér með sínu góða fólki.

„Ég er svo heppin að ég á góða fjöl­skyldu sem ég nýt að hafa nálægt mér. Við hjónin eigum þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn og allar samveru­stundir með þeim eru kærkomnar. Svo kem ég úr stórum systkina­hópi; við erum sex systkinin og erum mjög samrýmd og góðir vinir þannig að samvera með stór­fjöl­skyldunni er alltaf gleðileg.“

Þessi hreyf­ing tel ég að geri það að verkum að ég hef getað sinnt útsaumnum eins lengi og mikið og ég geri.

Hver eru áhugamál konunnar sem situr svo oft með nálina og býr til listaverk?

„Hjól­reiðar á sumrin eiga hug okkar hjóna; það er gott að eiga áhugamál með maka sínum. Við förum bæði í stuttar og lengri ferðir á hjólunum. Stundum bara við tvö en svo eigum við góða vini sem við ferðumst með og þá eru hjólin tekin með og landið skoðað frá öðrum víddum því að það er allt annað að skoða landið úr bíl eða á hjóli. Þegar maður hjólar þá sér maður landið í öðru ljósi og finnur ilminn af nýslegnu grasi, blóma­angan og lyktina af hestunum á túninu sem hjólað er fram hjá og heyrir hnegg og jarm og allur fugla­söngurinn fyllir mann ótrúlegri gleði. Þetta eru yndislegar stundir. Á þessum stundum er maður algjör­lega í núinu og nýtur lífsins til fulls. Með þessu áhugamáli hefur vinahópur okkar stækkað til muna og undan­farin ár höfum við farið erlendis að hjóla með stórum hópi og er fyrir­huguð ferð í lok ágúst til Króatíu og er tilhlökkunin mikil. Svo á veturna tek ég fram göngu­skíðin og fer í ræktina. Þessi hreyfing tel ég að geri það að verkum að ég hef getað sinnt útsaumnum eins lengi og mikið og ég geri. Svo eigum við sumar­bústað með tengda­fjöl­skyldunni. Hann er í sælureit í Fnjóska­dalnum og þangað er gott að koma og njóta nátt­úrunnar og fegurðar dalsins en þar er fegurð allt árið um kring.“

Tekur á

Þórdís hitti ástina í lífi sínu, Sigurð Sigurðsson, þegar hún var 16 ára og hann 17 ára.

„Saman höfum við gengið lífsins veg og náð að þroskast saman og erum góð tvenna. Við vinnum vel saman að því sem þarf að gera og njótum þess að vera saman. Við eignuðumst eldri son okkar ung, ég nítján og hann tvítugur, og mér fannst ég svo algjör­lega fullkomlega tilbúin í móður­hlutverkið, enda hafa börn alltaf átt stóran stað í hjarta mínu. Ég passaði mikið krakka þegar ég var stelpa og fannst ég alveg tilbúin að verða móðir þegar að því kom þótt ung væri. Svo seinna eignuðumst við dóttur og annan son. Þannig að við erum rík og stolt af þeim og þeirra fjöl­skyldum og því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur. Ég er svo heppin að lífið hefur verið mér gott og ég vakna alla daga þakklát fyrir það. Ég er lífsglöð kona og held að allir þessir litríku litir sem ég vinn með hjálpi bara við að halda við gleðinni.“

Hvað er það erfiðasta sem Þórdís hefur gengið í gegnum?

„Móðir mín greindist með Alzheimer og tekur það sannarlega á að sjá sjúk­dóminn vera að ná henni inn í annan heim þar sem ekki er rúm fyrir okkur, ástvini hennar. Við erum samt heppin að enn þá þekkir mamma okkur og gleðst þegar við heim­sækjum hana þó svo að orðunum fækki en ástúðin og hlýjan í augunum hennar gefur manni mikið. En þá kemur aftur að því hvað gott er að eiga góða stór­fjölskyldu sem hjálpast að og við styðjum við hvert annað og reynum að styðja við pabba okkar sem hefur staðið sig svo vel í þessari erfiðu stöðu.“

Maður hefur þurft að horfa á eftir ást­vinum fara allt of fljótt.

Hverjir eru draumarnir varðandi bæði lífið og listina?

„Lífið hefur kennt manni að það er ekki sjálf­gefið að fá að eldast. Maður hefur þurft að horfa á eftir ástvinum fara allt of fljótt. Tengda­mamma mín lést úr krabba­meini rúmlega sextug og mikið vildi ég að við hefðum fengið að hafa hana í lífi okkar mikið lengur. Ég á mér þann draum og ósk að maður verði svo heppinn að hafa góða heilsu og hamingju sem ferða­félaga ásamt öllum þeim sem ég elska. Hvað listina varðar þá vona ég að ég haldi áfram að þróast og njóta áfram að gera það sem mér finnst gaman.“

Hefur Þórdísi dreymt púða?

„Mig hefur ekki dreymt púða í svefni en dagdraumar eru góðir og þá fæðast oft góðar hugmyndir sem ég fylgi svo eftir þegar ég sest niður til að bródera.“

https://www.facebook.com/Handbr%C3%B3dera%C3%B0ir-p%C3%BA%C3%B0ar-%C3%9E%C3%B3rd%C3%ADs-J%C3%B3nsd%C3%B3ttir-274758459224705/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá