Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Helga um neysluna: „Þá tekur bara við einhver brútal neysla þar sem er ekki klukkutíma stopp“

„Síðan þegar ég dett í það, í síðasta skiptið, þá gjör­samlega missti ég stjórnina aftur.“ Þetta segir Helga Lilja Óskars­dóttir í viðtali við Stundina um bardaga sinn við neysluna sem hún flúði í til að deyfa vanlíðan sína en einnig til að finna félags­skap. Eftir að hafa orðið edrú þegar hún gekk með barnið sitt missti hún fótanna aftur og sökk djúpt.

Helga Lilja Ósk­ars­dótt­ir flúði í neyslu til að deyfa van­líð­an sína en einnig til að finna fé­lags­skap fólks sem var utangátta eins og hún. Það var ekki fyrr en hún átt­aði sig á því hversu al­gjör­lega neysl­an tók af henni stjórn­ina að hún varð hrædd og fann hjá sér eig­in vilja til að verða edrú. Áð­ur hafði hún hins veg­ar misst stjórn­ina al­gjör­lega og far­ið á bólakaf.

Glímdi við alkahólisma og þunglyndi

Helga ræðir um æskuna sína og segist hafa alist upp við erfiðar aðstæður í æsku. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára gömul en faðir hennar glímdi við alkahólisma og þunglyndi meðal annars. Eftir að faðir hennar kynntist annarri konu og hóf að búa með henni hafi hins vegar sigið á ógæfu­hliðina. Sú kona hafi líka glímt við fíkn eins og faðir Helgu og töluvert mikil neysla hafi því verið inni á heimilinu.

Þrátt fyrir veikindi föður hennar voru þau feðgin náin segir Helga.

„Það er alveg gaman stundum að vera í kringum fullt fólk þegar maður er krakki. Það var oft alveg næs en oft líka slæmir tímar. Þetta var samt ekki hið týpíska dópista­líferni, þau voru rosalega góð en veik“

Var send í fóstur

Helga segir að það besta sem fyrir hana hafi komið hafi verið að vera send í fóstur, árin þar hafi verið frábær og henni liðið vel. Enn hafi þó komið til árekstra í skóla enda andinn í sveita­skólanum á Klepp­járns­reykjum verið annar en hún átti að venjast og hún ekki passað inn enda hafi hún ekki haft áhuga á „samkvæmis­dansi eða hestum“ eins og hún orðar það.

En þó henni hafi liðið betur í Borgar­firðinum segir Helga að vanlíðan hennar hafi verið svo djúpstæð að hún hafi verið tilbúin að leita hvaða leiða sem var til að láta sér líða betur. Hún hafi fyrst drukkið áfengi í kringum tólf ára aldur og síðan prófað að neyta kannabis­efna um þrettán, fjórtán ára aldurinn. Í lok 10. bekkjar, eftir að hún kom heim til Reykja­víkur úr fóstri í Borgar­firðinum, hafi hún farið að reykja kannabis daglega.

Brútal neysla

„Þá tekur bara við einhver brútal neysla þar sem er ekki klukku­tíma stopp“

Faðir Helgu féll frá þegar hún var sextán ára. Þrátt fyrir hans bresti segir hún að þau feðgin hafi verið náin og andlát hans hafi verið henni áfall.

„Þá varð mér bara alveg sama um allt og þá tekur bara við einhver brútal neysla þar sem er ekki klukku­tíma stopp. Það var bara stopp þegar maður varð að sofa. Ég held að það lengsta sem ég hafi verið vakandi hafi verið allt upp í tíu daga sko. Það er erfitt en þegar þú ert kominn á þriðja dag geturðu sigrað heiminn. Þú ert beyglaður og ruglaður en þú hefur ekki vitneskjuna um að þú sért beyglaður og ruglaður.“

Varð edrú barnshafandi

Helga fiktaði við ýmis efni en man það óglöggt. „Ég man hins vegar eftir því þegar ég notaði e-pillu fyrst, þá byrjaði boltinn að rúlla.“ Neyslan var bæði til að deyfa tilfinningar en líka leit að félags­skap. Félags­skap annarra sem ekki pössuðu inn, rétt eins og Helga upplifði með sjálfa sig.

Helga var í neyslu um nokkra hríð, allt þar til hún varð ólétt af sínu fyrsta barni, þá sautján ára gömul. Þegar hún uppgötvaði að hún væri með barni fór hún í meðferð og var edrú á meðan að á meðgöngunni stóð og í nokkra stund eftir að barnið kom í heiminn. Einhverjum mánuðum eftir að Helga átti barnið sitt fór hún að fara á djammið um helgar og þá voru jafnvel allar helgarnar undir. Hún bjó heima hjá móður sinni sem sinnti barninu. Nokkru síðar fór hún inn í AA-samtökin og var þá edrú í um tíu mánuði.

Ég dett algjörlega inn í þetta – það er enginn millivegur

„Síðan þegar ég dett í það, í síðasta skiptið, þá gjör­samlega missti ég stjórnina aftur. Það var samt bara svona tveir mánuðir,“ segir Helga. Hún áttaði sig strax á því að hún væri að fara mjög djúpt í neyslu. „Ég dett algjör­lega inn í þetta, það er enginn milli­vegur. Eftir fyrsta kvöldið hringi ég í mömmu mína og segi: Ég er dottin í það, ég þarf einhvern veginn að koma mér inn í meðferð og þú verður að vera með barnið á meðan því ég ætla ekki að vera í kringum hann í þessu ástandi.“

Helga komst aftur inn í meðferð um tveimur mánuðum síðar. Eftir að hafa komist í meðferð á þessum tíma, árið 2012, hefur Helga haldið sig á beinu brautinni. Hún segir að ástæðan fyrir því að hún hafi komist úr neyslu hafa verið að þá hafi hana virkilega langað það sjálfa, að verða edrú. „Ástæðan var sú að það hræddi mig hvað þetta tekur stjórnina algjör­lega.“

HÉR er hægt að hlusta og lesa viðtalið við Helgu í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá