Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Dopamine Machine gefur út fyrstu breiðskífu sína: „Óþarfi að festa sig í einni tónlistarstefnu“

Hljóm­sveitin Dopamine Machine gefur frá sér sína fyrstu breið­skífu KÆRULEYSI ER ÆÐRULEYSI þann 18. Nóvember næst­komandi. Platan mun innihalda 10 ný lög sem eru í popp/funk/soul stíl að sögn hljóm­sveitarinnar.

Dopamine Machine hefur verið virk í íslensku tónlistar­senunni síðan 2021 og hefur gefið út þrjár smáskífur. Platan er tekin upp, mixuð og útsett af Róberti Aroni saxófón­leikara hljóm­sveitarinnar ásamt Ívari Andra söngvara og gítar­leikara.

Saga plötunnar

Samkvæmt hljómsveita­meðlimum má segja að vinna við plötuna hafi ómeðvitað hafist sumarið 2020 þegar Ívar Andri og Júlíus Óli, fyrrum hljómborðs­leikari hljóm­sveitarinnar unnu við skapandi sumar­störf á Egils­stöðum. Elstu lögin á plötunni eru frá þeim tíma. Nýrri lög eru samin af Ívari Andra í heima­stúdíói í Reykjavík. Ívar kom svo með demo á æfingar og hljóm­sveitin þróaði það í hljóðheim sveitarinnar í sameiningu. Að sögn þeirra hefur platan marga snertifleti og sækir innblástur í hinar ýmsu tónlistar­stefnur. Þar má nefna soul, sækadelískt rokk og funk svo eitthvað sé nefnt.

„Það er óþarfi að festa sig í einni tónlistar­stefnu þegar það eru svo margar góðar,“ eins og Ívar Andri orðaði það í samtali við Mannlíf.

Um hljómsveitina

Hljóm­sveitin hefur verið starfandi síðan 2019 og má segja að hafi fæðst í Covid faraldrinum. Að sögn Ívars Andra var tíminn vel nýttur í að semja og taka upp efnið sem nú birtist á fyrstu breið­skífu sveitarinnar. Platan er tekin upp og unnin af meðlimum hljóm­sveitarinnar. Dopamine Machine hefur spilað mjög mikið og er þekkt fyrir mikið fjör og líflega sviðs­framkomu. Hljóm­sveitina skipa Hjálmar Karl Guðnason á bassa og söng, Benjamin Haraldsson á gítar, Jóhannes Guðjónsson á raf píanó og hljómborð, Ívar Andri Bjarnason á gítar, söng og hljóð­gervla, Bergsteinn Sigurðarson á trommur og söng, Róbert Aron Björnsson saxófónn ásamt upptöku­stjórn og hljóð­blöndun og Sigurrós Jóhannesdóttir á Trompet og söng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt