Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Johnny Depp svarar áfrýjun Heard með eigin áfrýjun: „Þetta snérist aldrei um peninga hjá hr. Depp“

Johnny Depp
Johnny Depp

Johnny Depp svarar áfrýjun Amber Heard með sinni eigin áfrýjun.

Viku eftir að Amber Heard áfrýjaði dómi sem hún hlaut í máli Johnny Depp gegn henni vegna ærumeiðinga, svarar Camille Vasquez, lögmaður Depp í sjónvarps­viðtali. ETonline.com segir frá málinu. Vasquez settist niður með viðtals­drottningunni Gayle King og ræddi viðbrögð lögfræði­teymis Depp við áfrýjun Heard, en hún segir hana ekki hafa komið á óvart.

Þann 21. júlí síðastliðinn komst ET yfir lagaskjöl sem sýndu að Heard sótti um áfrýjun á dómnum sem hún hlaut þann 1. júní á þessu ári en þar var henni gert að borga fyrrum eigin­manni sínum, Johnny Depp 10 milljónir Bandaríkja­dala í skaða­bætur og 5 milljónir dala í refsibætur. Vegna lögbundins hámarks ríkisins voru refsibæturnar lækkaðar í 350.000 Bandaríkja­dala. Depp var einnig gert að greiða Heard 2 milljónir dala í skaða­bætur sem var partur af niður­stöðu dómsins. Daginn eftir áfrýjaði Depp þeirri niður­stöðu.

„Algjör­lega,“ svaraði Vasquez er King spurði hana hvort lögfræði­teymið væru með einhverja áætlun um það hvernig þau muni bregðast við áfrýjun Heard. „Og við erum búin að bregðast við. Herra Depp endaði á því að áfrýja sjálfur, svo rétturinn fái öll gögnin. Og hún krefst þess að halda áfram með þennan málflutning og við verðum að vernda hagsmuni viðskipta­vinar okkar,“ sagði lögmaðurinn og bætti við: „Við erum bara vongóð um að rétturinn haldi sig við niður­stöður dómsins, sem við teljum réttar niður­stöður og leyfa þannig báðum aðilum að halda áfram með lífið.“

Vasquez sagði King einnig að þau hefðu ekki áfrýjað ef Heard hefði ekki áfrýjað fyrst. „Þetta snérist aldrei um peninga hjá hr. Depp. En til þess að gæta hagsmuna hans og sem lögmenn hans verðum við að bregðast við áfrýjuninni með okkar eigin áfrýjun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt