Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Jón Kr. ætlar að eiga látlausan afmælisdag: „Þekki ekki Bíldudal fyrir sama Bíldudal og ég þekkti“

Jón Kr. Ólafsson
Jón Kr. Ólafsson Mynd: Facebook

Afmælis­barn dagsins er stór­söngvarinn frá Bíldudal, Jón Kr. Ólafsson. Er hann 82 ára í dag þó ekki beri hann aldurinn með sér.

Jón Kr. sló í gegn í hljóm­sveitinni Falcon, árið 1962. Starfaði hljóm­sveitin næstu sjö árin en þekktasta lag þeirra er stór­slagarinn Ég er frjáls. Árið 1983 gaf svo SG-hljóm­plötur út LP-plötuna Ljúfþýtt lag þar sem Jón Kr. söng þekkt einsöngslög við undirleik Ólafs Vignis Alberts­sonar. Í gegnum árin hefur afmælis­barnið sungið inn á þónokkrar hljóm­plötur og komið víða fram við góðar undir­tektir.

Þann 17. júní árið 2000, opnaði Jón Kr. safnið Melódíur minninganna, heima hjá sér á Bíldudal en þar er að finna margar af gersemum tónlistar­sögu Íslands. Enn þann dag í dag, rekur Jón Kr. safnið en árið 2021, gaf hann Rokksafni Íslands part af Melódíu minninganna við hátíðlega athöfn.

Mannlíf heyrði í afmælis­barninu í tilefni dagsins og lá forvitni á að vita hvort og þá hvernig hann ætlaði að fagna deginum.

„Ég segi nú bara eins og vinur minn Raggi Bjarna heitinn, þú ert nice!“ svaraði Jón Kr. þegar blaða­maður Mannlífs hringdi í hann og sagði honum að hann væri afmælis­barn dagsins. Svo svaraði hann spurningunni og reyndar gott betur: „Nei, ég ætla ekki að fagna deginum, ég á bara einn hérna vin heima á Bíldudal, karlinn minn og það er ein kunningja­kona mín í Reykjavík búin að hringja í dag en það er góð vinkona mín sem hringir annað slagið hingað vestur og athugar hvort allt sé í lagi með mig. Svo á ég nú reyndar annan kunningja í Reykjavík sem hringir oft í mig en hef ekki heyrt í honum síðan á fimmtudag en er svona að láta mér detta það í hug að hann hringi í dag. Þó ég vildi fá mér, að gamni mínu í lítið hvítvíns­glas, þá geri ég það ekki, því ég á ekkert slíkt og ég veit ekki með hverjum ég ætti að fá mér það hér á Bíldudal. Ég botna bara ekki í því, skilurðu. Þannig að ætli ég verði ekki að láta þennan dag líða, eins og svo sem alla aðra daga, eins fyrirhafnar­laust og ég get. Ég er nú búinn að reka hér tónlistar­safn á Bíldudal í 23 ár og á nú 60 ára söngferil, sem er enginn smá tími, en það er enginn að spá í það á Bíldudal í dag. Ég verð að segja alveg eins og er, ef ég á að vera alveg hrein­skilinn við þig, þá þekki ég ekki Bíldudal fyrir sama Bíldudal og ég þekkti. Það eina sem ég virkilega þekki á Bíldudal í dag, sjáðu til, það eru fjöllin. Þau breytast ekki.“

Vill Jón Kr., sem ekki er þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum, meina að nú snúist allt á Bíldudal um laxeldi og kalk­þörunga. „Ég hitti útlending í baðhúsinu hér sem ég gat reyndar lítið talað við en hann spurði mig strax um lax. Bíddu við, það er bara talað um laxeldi og kalkþörunga­verksmiðju á Bíldudal í dag. Það er eins og það hafi ekkert skeð á Bíldudal áður. Bíldu­dalur var hér með helling af vinnu og var hér með frægustu niðursuðu­verksmiðju þjóðarinnar sem var vígð 1939. Svo var hér hellings tónlistarlíf og svo var hér öflugt leikfélag. Núna er þetta allt dautt. Þetta er allt dautt. Það er ekkert að ske, það er ekki einu sinni kvenfélag hérna.“

Þetta þótti blaða­manni Mannlífs leitt að heyra en spurði Jón Kr. hvort hann væri enn að koma fram og syngja, verandi eins hress og hann hljómaði í símanum.

„Veistu drengur minn, raun­verulega er ég hættur og er það ekkert skrítið enda þetta full­orðinn, ekki það að vinur minn Raggi Bjarna hætti aldrei. En ég get sagt þér að ég var með kunningja mínum á tónleikum í Jónshúsi í Kaupmanna­höfn síðastliðinn 17. júní. Ég söng reyndar bara þrjú lög en það gekk vel. Og var rosalega gaman. Þetta eru þriðju tónleikarnir sem ég held úti í Kaupmanna­höfn og geri aðrir betur, ég hugsa að það hafi ekki allir gert það, svona af alþýðu­fólki.“

Mannlíf óskar hinum síunga Jóni Kr. innilega til hamingju með afmælið og vonar að einhver laumi á hvítvíns­flösku handa honum og félags­skap á Bíldudal!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá