Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“

Gunnar Gíslason lög­maður sakar lög­regl­una á Norð­ur­landi eystra um að hafa farið offorsi gegn 19 ára skjól­stæð­ingi sínum

Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri, rafbyssa og Sjúkrahús Akureyrar
Páley Borg­þórs­dóttir lög­reglu­stjóri, raf­byssa og Sjúkra­hús Akur­eyrar Mynd: Samsett

Gunnar Gíslason lög­maður sakar lög­regl­una á Norð­ur­landi eystra um að hafa farið offorsi gegn 19 ára skjól­stæð­ingi sínum sem hand­tek­inn var á Akureyri aðfara­nótt fimmtu­dags. Rafbyssu var beitt við hand­tök­una en lög­regla taldi pilt­inn hættu­legan sjálfum sér og öðrum.

Í færslu sem Gunnar hefur birt segir hann skjól­stæð­ing sinn hafa upp­lifað „mikið ein­elti“ af hálfu lög­reglu frá jan­úar 2025. Frá þeim tíma hafi 68 mál verið skráð um hann í kerfi lög­reglu.

„Afskiptin hafa ýmist verið að ósekju eða þá að allar með­al­hófs­reglur hafa verið brotnar,“ segir Gunnar.

Hann segir sér­sveit hafa farið inn á heim­ili pilts­ins og móður hans sex dögum áður en raf­byss­unni var beitt.

„Nú er skjól­stæð­ingur minn bless­un­ar­lega ekki kom­inn á sama stað and­lega en ofbeldi LSNE hefur tekið mjög á hans and­legu heilsu,“ segir Gunnar.

Að sögn hans var úti­dyra­hurð brotin niður og pilt­ur­inn hand­tek­inn þar sem hann lá sof­andi í rúmi sínu. Tilefni hand­tök­unnar hafi ekki verið kynnt honum fyrr en síðar. Gunnar telur eðli­legra að boða hefði átt pilt­inn í skýrslu­töku.

Hann lýsir því jafn­framt að pilt­inum hafi liðið mjög illa aðfara­nótt fimmtu­dags. Hann hafi brotnað niður, grátið og lagst á umferð­ar­eyju. Þegar lög­regla kom á vett­vang hafi hann orðið hræddur og reynt að hlaupa á brott.

„Skjól­stæð­ingur minn hætti hlaupum eftir stutta stund, er hann átt­aði sig. Lög­reglu­maður greip þá upp raf­byssu og skaut skjól­stæð­ing minn, án nokk­urrar aðvör­unar, í búk­inn,“ segir Gunnar og tekur fram að pilt­ur­inn hafi verið óvopn­aður.

Gunnar veltir upp hvort með­al­hófs hafi verið gætt og telur mögu­legt að lög­reglu­mað­ur­inn hafi gerst sekur um brot í starfi.

Pilt­ur­inn var vistaður í fanga­klefa eftir hand­tök­una. Gunnar segir að beiðni hans um að fá sig sem verj­anda hafi í fyrstu verið virt að vettugi. Eftir skýrslu­töku var honum sleppt og móðir hans sótti hann.

„Hún ákvað að fara með hann á sjúkra­húsið á Akureyri, til skoð­unar. Þar fyrir utan sjúkra­húsið missti hann með­vit­und,“ segir Gunnar. Pilt­ur­inn var í kjöl­farið fluttur á bráða­mót­töku og lagður inn.

Gunnar beinir að lokum harðri gagn­rýni að Páleyju Borg­þórs­dóttur, lög­reglu­stjóra á Norð­ur­landi eystra. Hann segir „ekk­ert eðli­legt“ við fram­göngu lög­regl­unnar og telur tíma­bært að lög­reglu­stjór­inn axli ábyrgð á því sem hann kallar ómenn­ingu innan emb­ætt­is­ins og láti af störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu