Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lík Julian Sands er fundið: „Hann var besti göngumaður sem ég þekkti“

Búið er að staðfesta að lík sem fannst í fjall­lendi í Kaliforníu, er lík breska leikarans Julian Sands, sem hefur verið saknað frá því hann lagði upp í göngu í janúar.

Göngumenn fundu líkið á laugar­daginn að sögn lögreglu en nú hefur sem sagt fengist staðfest að um Julian Sands er að ræða.

Hinn 65 ára Sands er best þekktur fyrir hlutverk sitt í Óskars­verðlauna­myndinni A Room With a View og sjónvarps­þættina 24 og Smallville. Þá muna eflaust margir eftir honum í kvik­myndunum Boxing Helena, Aracnophobia og The Girl with the Dragon Tattoo, þar sem Sands lék á móti Daniel Craig.

Julian Sands á sínum yngri árum

Leikarinn hvarf þann 13. janúar síðastliðinn þegar slæmt veður skall skyndi­lega á Baldy Bowl-svæðið í San Gabríel-fjöllum. Leit, bæði á jörðu sem og himni, gekk illa framan af vegna afar slæms veður, auk ísingar og snjóflóða­ógnar.

Skrif­stofa lögreglu­stjórans í San Bernardino-sýslu staðfesti að líkið sem fannst er af hinum týnda leikara. „Enn er verið að rannsaka dánar­orsök en beðið er eftir niður­stöðum rannsókna. Við viljum þakka öllum sjálfboða­liðunum sem unnu þreytu­laust við að finna herra Sands,“ segir í yfir­lýsingu lögreglunnar.

Í síðustu viku þakkaði fjöl­skylda leikarans yfir­völdum í Kaliforniu fyrir tilraun þeirra til að finna hann. „Við erum afar þakklát leitar­flokkunum og skipuleggjendum leitarinnar, sem hafa unnið dag og nótt við að leita að Julian. Við munum halda áfram að geyma Julian í hjörtum okkar með björtum minningum um hann sem yndislegs föðurs, eigin­manns, land­könnuðar, náttúru- og list­unnanda og sem frumlegs og samvinnu­þýðs leikara.“

Í lok janúar sagðist bróðir Julian, Nick Sands, sem býr í Norður Jórvíkur­skíri, þar sem hann, Julian og þrír aðrir bræður þeirra ólust upp, vera þá þegar búinn að kveðja.

„Ég er búinn að sætta mig við þá staðreynd að hann sé dáinn og þannig hef ég tekist á við þetta,“ sagði hann.

Sands var áhuga­samur göngu­maður en helsti göngu­félagi hans, Kevin Ryan sagði að fjall­ganga hefði verið helsta ástríða hans og bætti við: „Hann var besti göngu­maður sem ég þekkti“.

Julian Sands lætur eftir sig eigin­konuna Evgenia Citkowitz, rithöfund og þrjú börn.

BBC fjallaði um líkfundinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár