Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Ágústa Sverrisdóttir: „Óskar er með ólæknandi krabbamein – Þetta er búið að dreifa sér“

Ágústa Sverrisdóttir
Ágústa Sverr­is­dóttir

„Hann er með ólæknandi krabba­mein. Við fengum að vita það í lok september.“

Þögn

„Þetta er búið að dreifa sér.“

Þetta segir Ágústa Sverris­dóttir en eigin­maður hennar, Óskar Gústaf Ingjaldur Ólafsson, sem er 39 ára, greindist með ristil­krabbamein 7. desember í fyrra. Á morgun verður akkúrat eitt ár liðið.

„Desember­mánuður í fyrra fór svolítið í óvissu af því að það eru allir þessir rauðu dagar í desember, frí hjá læknum og svona. Á Þorláks­messu fór hann í segulómun þar sem lifrin var skoðuð betur. Okkur var sagt að taka því rólega um jólin en það var erfitt. Við vorum í mikilli óvissu sem er ekki alveg það besta yfir hátíð­arnar. 4. janúar fengum við svo að vita að það sem hafði áður sést á tölvu­sneiðmynd reyndist vera krabba­mein sem dreifst hafði í lifrina.“ Óskar byrjaði í geisla­meðferð í lok janúar og segir Ágústa að hann hafi farið 25 sinnum í geisla. Svo tóku lyfja­meðferðir við og fór hann á þriggja vikna fresti í lyfja­gjafir. Þá voru það mynda­tökur inn á milli.

4. jan­úar fengum við svo að vita að það sem hafði áður sést á tölvu­sneið­mynd reynd­ist vera krabba­mein sem dreifst hafði í lifr­ina

Í júní fór hann í aðgerð þar sem hluti af lifrinni var tekinn og segir Ágústa að það hafi verið stærri partur af lifrinni en haldið var í fyrstu. „Sú aðgerð gekk vel og var talað um að Óskar þyrfti að bíða í fimm vikur til að jafna sig áður en hann gæti farið í aðra aðgerð þar sem taka átti æxlið í ristlinum. Svo var sumarfrí hjá skurð­læknum og við fjöl­skyldan fórum vestur á firði og vorum hjá foreldrum hans í góðu yfirlæti,“ segir Ágústa en Óskar er frá Suðureyri í Súganda­firði. Hjónin hafa búið á Eyrar­bakka síðan árið 2014.

„Í lok ágúst hné Óskar niður inni á baðherberginu og kom ég að honum meðvitundar­lausum. Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík og kom í ljós að hann var með stóra blóðtappa í báðum lungum. Það var tekin ákvörðun á staðnum þegar við vorum á slysó að gerð væri þræðing og var farið í gegnum nárann og náð handvirkt í stærstu tappana og svo áttu blóðþynningarlyf að vinna á restinni. Ég sat á meðan í herbergi fyrir aðstand­endur og var farin að skipuleggja jarðar­förina í huganum. Ég vissi ekkert hvernig þetta gengi og var búið að segja við mig að það gæti komið blæðing hvar sem er í líkamanum og þess vegna í heilanum og þá fór maður að hugsa um verstu mögulegu útkomu.“

Hann var fluttur á sjúkra­hús í Reykja­vík og kom í ljós að hann var með stóra blóð­tappa í báðum lungum

Aðgerðin gekk vel og fékk Ágústa að hitta manninn sinn á gjörgæslu­deild þar sem hann lá í tvo daga. Hann var síðan færður á lungna­deild þar sem hann lá í átta daga og má geta þess að á þeim tíma kom upp Covid-smit á deildinni en hann smitaðist þó ekki.

Hjónin gerðu svo ráð fyrir að Óskar færi í aðgerðina á ristlinum þremur mánuðum eftir blóð­tappann. Ágústa segir að í lok september hafi þeim verið tilkynnt að krabba­meinið hefði dreift sér í eitla nálægt nýrum. Einn þeirra væri of nálægt stórri slagæð til að hægt væri að skera þetta í burtu.

„Læknirinn sagði að aðgerðin á ristlinum væri hættuleg og af því að þeir gætu ekki tekið allt vildu þeir ekki framkvæma aðgerðina og töldu sig ekki vera að gera Óskari neinn greiða með að framkvæma hana. Það væri líka mikil hætta á að hann fengi blóðtappa aftur. Þá var það úr sögunni. Þetta var þvílík blaut tuska í andlitið. Maður veit ekki hvað maður á að gera við svona upplýsingar. Við töluðum nokkrum dögum síðar við krabbameins­lyfja­lækninn sem útskýrði þetta betur fyrir okkur og sagði að fólk í þessari stöðu gæti alveg átt gott líf en það væri ekki hægt að segja til um neinn tíma sem eftir væri.“

Óskar fór á líknandi meðferð og fær lyfjagjöf á tveggja vikna fresti. „Lyfin hægja á krabbameins­frumunum og halda þessu í skefjum. Hversu lengi er svo persónu­bundið en það verður aldrei hægt að lækna hann og ekki skera þetta í burtu.“

Óskar fór á líkn­andi með­ferð og fær lyfja­gjöf á tveggja vikna fresti

Áfallastreituröskun

Ágústa segist lengi hafa verið kvíða­manneskja en að kvíðinn hafi aukist eftir að Óskar greindist með krabba­meinið og að hún sé búin að glíma við áfalla­streitu­röskun eftir að hún fann hann meðvitundar­lausan á baðherbergis­gólfinu vegna blóð­tappanna.

„Þetta er búinn að vera rosalegur tilfinninga­rússíbani. Þetta er allt búið að reyna á. Stundum átta ég mig ekki á því hvernig mér líður en á sama tíma er ég að leita mér hjálpar. Við fáum aðstoð hjá Ljósinu og Krafti þar sem við höfum talað við gott fagfólk sem þar starfar. Þjónustan sem við sækjum er ekki bara tengd Óskari. Við höfum bæði sótt þar viðtöl – þá helst í gegnum fjarfunda­búnað. Það er stundum eins og ég fyllist miklum krafti og eins og ég fái eitthvað „boozt” sem ýtir mér áfram þegar ég þarf að redda og gera.“

Stundum átta ég mig ekki á því hvernig mér líður en á sama tíma er ég að leita mér hjálpar

Ágústa segir að hún hafi áður fyrr verið feimin en að þessi reynsla hafi kennt sér að þora. „Maður þarf líka að vera ákveðinn og tala við starfs­fólk ýmissa stofnana eins og sjúkra­húsa og ég þarf að hringja og fylgja eftir hlutum. Ég er farin að vera svolítið meira á hnefanum.“ Hjónin eiga fjögurra ára gamlan son og segir Ágústa að hann taki eftir að foreldrum hans líði öðruvísi en áður og að pabbi hans finnur oft til auk þess sem hann er búinn að vera mikið á sjúkra­húsi. „Við getum ekki útskýrt þetta fyrir honum nema upp að vissu marki og fáum við hjálp við það frá fagfólki hvernig best sé að útskýra þetta fyrir honum en við eigum ekki að halda þessu leyndu fyrir honum. Börn skilja og skynja miklu meira en maður heldur. Þetta mun alltaf hafa áhrif á son okkar sama hversu mörg ár hann á með pabba sínum. Það þarf ekki að gera merkilega hluti til að búa til minningar.“

Sonur þeirra hefur spurt að ýmsu sem tengist veikindunum. „Hann spurði pabba sinn um daginn hvort hann hafi dottið út af því að hann hefði verið með Covid. Það er svo mikið verið að tala um Covid í þjóð­félaginu, eðlilega.“

Hann spurði pabba sinn um dag­inn hvort hann hafi dottið út af því að hann hefði verið með Covid

Ágústa og Óskar giftu sig 21. desember í fyrra. „Við höfðum talað um það áður að gifta okkur en við gerðum það svo í flýti; við ákváðum það þá um morguninn. 21. desember er afmæli­dagur mömmu og ég hringdi í hana og spurði hvort hún vildi koma austur og verða vottur fyrir okkur. Það skiptir máli að hafa þessa hluti í lagi pappírs­lega séð til að vera með allt á hreinu ef illa færi. Á þessum tíma­punkti vissum við ekki mikið um stöðu sjúk­dómsins. Við getum haldið brúðkaups­veislu seinna en það þarf ekkert endilega að halda veislu. Við fengum okkur pítsu um kvöldið á veitinga­stað.“

Óskar hafði í mörg ár unnið sem öryggis­vörður hjá Securitas og segir Ágústa að hann hafi nokkrum mánuðum áður en hann greindist verið sagt upp vegna skipulags­breytinga og var hann atvinnu­laus þegar hann greindist. Ágústa vinnur hálfan daginn á leikskóla á Stokks­eyri. „Ég er búin að vera mikið frá vinnu vegna sjúkra­leyfis. Ég er byrjuð að mæta aðeins meira en ég næ ekkert að sofa mikið á nóttunni. Að minnsta kosti ekki neinn gæðasvefn. Ég hef oft fengið martraðir eftir að Óskar greindist. Ég er endalaust þreytt.“

Nágranni hjónanna stakk upp á að hafin yrði söfnun vegna þeirra og geta þeir sem vilja styrkja hjónin á þessum erfiðu tímum lagt þeim þannig lið.

Kt.: 190688 2089

Reikningsnúmer: 0325 26 203

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu