Viðtal„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“ Mummi Týr Þórarinsson er eilífðartöffari sem djöflaðist í gegnum fyrri hluta ævinnar í drykkju, dópi og veseni og var með sjálfsmorðshugsanir í mörg ár. Hann man enn eftir bragðinu af hlaupi haglabyssunnar þegar hann ætlaði að ljúka þessu. En hann hætti við. Betra og fallegra líf beið hans. Hann sagði skilið við neysluna fyrir rúmum 30 árum og í áraraðir var hann forstöðumaður Götusmiðjunnar, meðferðarheimilis fyrir krakka í vanda, og nokkur þúsund ungmenni fengu þar hjálp. Svo heyrðust óánægjuraddir og ásakanir sem tóku þungt á hann og í kjölfar þeirrar atburðarásar var Götusmiðjunni lokað. Mummi Týr upplifði þunglyndi og kvíða í kjölfarið og fékk hvergi vinnu. Það birti þó til og í dag býr hann ásamt eiginkonu sinni, ástinni í lífi hans, í Róm þar sem hún vinnur hjá Sameinuðu þjóðunum. Mummi Týr er kominn á eftirlaun og þrátt fyrir veikindi á undanförnum árum nýtur hann lífsins á mótorhjólinu sínu og í göngutúrum. Á svölunum er einfætta dúfan Magga sem hann gefur reglulega að éta. Og hann hugsar enn um þá sem minna mega sín.
FólkEdda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum „Gyða sagði að vísu að þeir væru allir þarna með lítinn“
FólkKylfingur í Golfklúbbi Þorlákshafnar óð út í tjörn til bjargar „Þau eru ekki mörg, sem ná fugli á fyrsta golfhring sínum“
FólkTengja krónískan kvíða á fullorðinsárum við óörugga æsku: 4 ráð til að jarðtengja þig Líkamsmiðaðar aðferðir losa um gamla streitu