Nýútgefin skýrsla, sem The Guardian fjallar um, sýnir að kettir munu skapa tæplega 19 milljarða Bandaríkjadala, eða um 2,6 milljarða króna, í veltu í japanska hagkerfinu á þessu ári. Þetta mikla efnahagslega framlag tengist gæludýraþjónustu, ferðaþjónustu, kaffihúsum og sölu á varningi. Fyrirbærið hefur fengið efnahagslega hugtakið „catnomics“ (kattarhagfræði).
Áhrif kattanna ná langt út fyrir heimilin. Þau sjást greinilega í helgidómum, á ferðamannastöðum og í rekstri staðbundinna fyrirtækja um allt land. Sérfræðingar telja að þessi þróun muni halda áfram að styrkja innlenda neyslu.
Kettir hafa verið vinsælustu gæludýr Japans í áratug, en áætlað er að um 8,8 milljónir þeirra búi á heimilum um allt land. Áhrif þeirra má sjá alls staðar, allt frá ferðamannastöðum og musterum til bókmennta, minjagripa og fyrirtækja.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir