Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fjarðabyggð neitar að svara spurningum Mannlífs um starfsmannamál: „Ástandið er mjög alvarlegt“

Bæjarskrifstofa Fjarðabyggðar Mynd / Fjardabyggd.is
Bæj­ar­skrif­stofa Fjarða­byggðar Mynd / Fjar­da­byggd.is

Samkvæmt heimildum Mannlífs er mikil ólga hjá starfs­mönnum Fjarða­byggðar en 15 starfs­menn skrif­stofu sveitar­félagsins sögðu upp störfum á síðasta ári. Upplýsinga­fulltrúi Fjarða­byggðar neitar að svara spurningum Mannlífs.

Heimildir Mannlífs herma að nokkur mál hafi komið upp hjá Fjarða­byggð sem illa hafi verið tekið á en 15 starfs­menn skrif­stofu sveitar­félagsins hættu störfum þar á síðasta ári.

Mannlíf sagði nýlega frá máli Jóhanns Valgeirs Davíðs­sonar, íþrótta­kennara á Eskifirði og fyrrum starfs­manns félags­miðstöðvar bæjarins. Jóhann Valgeir var valinn Austfirðingur ársins 2022 fyrir ötula baráttu sína fyrir því að íþróttahús Eski­fjarðar yrði tekið í gegn en þar fannst mygla, eftir að viðtal birtist við Jóhann Valgeir á Rúv. Nokkrum dögum eftir fréttina var hann sendur í leyfi frá störfum í félags­miðstöðinni vegna máls sem furðaði marga. Var honum gefið á sök að hafa sýnt grunn­skóla­krökkum leikinn þátt um raðmorðingjann Jeffrey Dahmer á Netflix, en þátturinn er stranga­lega bannaður börnum undir 16 ára aldri. Hið sanna er þó að krakki setti þáttinn í gang án vitneskju Jóhanns Valgeirs en þar sem hann var eini starfs­maðurinn í félags­miðstöðinni átti hann í erfið­leikum með að fylgjast með öllu því sem þar fór fram. Nýlega skrifaði hann svo upp á starfsloka­samning eftir að honum var boðið að snúa aftur til starfa en með skilyrðum sem hann sætti sig ekki við.

Illa tekið á eineltismáli

Þá var slökkviliðs­manni í sveitar­félaginu sagt upp störfum eftir að tvær konur í slökkviliðinu sökuðu hann um einelti. Kærði maðurinn uppsögnina og vann málið og þurfti Fjarða­byggð að borga honum fjóra og hálfa milljón í skaða­bætur vegna ólögmætrar uppsagnar en hann fékk meðal annars ekki að nýta andmæla­rétt sinn er ásakanirnar komu upp. Önnur kvennanna sem kvartaði undan eineltinu sagði í viðtali við Mannlíf árið 2020, farir sínar ekki sléttar hvað varðaði þáverandi starfsmanna­stjóra sveitar­félagsins. „Ég var búin að senda yfirmanni yfirmanns míns, það er að segja þáverandi starfsmanna­stjóra Fjarða­byggðar, póst um ástandið og setjast á fund með honum og ræða málið. Nátt­úrlega var öllu fögru lofað og talað um hvað það væri frábært að hafa konu í stéttinni og að hann ætlaði að gera allt til þess að laga stöðuna. Ég ítrekaði erindið nokkrum sinnum við starfsmanna­stjóra Fjarða­byggðar en smám saman hætti hann svara og samskiptin fjöruðu út án þess að nokkuð væri gert. Þannig að þetta var bara orðið ókleift fjall sem ég réði ekki við.“ Þessi starfsmanna­stjóri er bæjar­ritari Fjarða­byggðar og nú stað­gengill bæjar­stjóra Fjarða­byggðar sem hætti fyrir tveimur vikum. Þá er hann einnig stað­gengill mannauðs­stjórans sem fékk starfsloka­samning í hendurnar fyrir helgi. Einnig er hann hafnar­stjóri í sveitar­félaginu og sviðs­stjóri umhverfis og skipulags­sviðs.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er gríðarleg óánægja með ástandið í Fjarða­byggð. „Ástandið er mjög alvarlegt. Við erum með starfsmanna­stjóra sem nú er orðinn mannauðs­stjóri, hann er bæjar­ritari, hann er stað­gengill bæjar­stjóra, hann er hafnar­stjóri og hann er sviðs­stjóri umhverfis og skipulags­sviðs líka. Hann er ástæðan fyrir því að sviðs­stjóri umhverfis og skipulags­sviðs er hættur. Sviðs­stjóri framkvæmdar­sviðs er hættur. Bygginga­fulltrúi er hættur og mannauðs­stýra númer tvö er hætt eftir tæpt ár í starfi. Bæjar­stjórinn er hættur,“ sagði einn heimildar­maður Mannlífs um ástandið í Fjarða­byggð en alls hættu 15 á skrif­stofu sveitar­félagsins á síðasta ári , samkvæmt heimildum Mannlífs.

Svara ekki spurningum Mannlífs

Mannlíf sendi fyrir­spurnir á forstöðu­mann stjórn­sýslu- og upplýsinga­mála hjá Fjarða­byggð, Þórð Vilberg Guðmundsson, um málefni sveitar­félagsins en fékk engin svör, ekki heldur eftir að ítrekun var send á hann. Spurningarnar voru eftir­farandi:

1. Hvað hafa margir starfs­menn hætt hjá Fjarða­byggð síðustu 12 mánuði.
2. Hafa komið upp alvarleg eineltismál í Fjarða­byggð? Ef já, hvernig hafa þau verið unnin?
3. Er Fjarða­byggð með starfsmanna­stjóra? Ef svo er, hver er það?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp