Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Stjörnurnar slaufa þjóðhátíðardeginum: „Sjálfstæðisdagurinn, nema þú sért með leg“

Allmargar stjörnur ákváðu að slaufa þjóð­hátíðardegi Bandaríkja­manna í gær, 4. júlí, ef marka má færslur þeirra á samfélags­miðlum. Konur á borð við Kim Kardashian, Katy Perry, Kris Jenner, Jessica Chastain og fleiri létu það skýrt í ljós að þær ætluðu sér ekki að fagna neinu sjálf­stæði, á meðan sjálf­stæði þeirra væri fótum troðið í heima­landi þeirra, og vísuðu þar með til nýlegs dóms Hæstaréttar Banda­ríkjanna um viðsnúning Roe gegn Wade, sem gerir ríkjum kleift að takmarka rétt kvenna til þungunar­rofs.

Þann 4. júlí ár hvert fagna Bandaríkja­menn sjálfstæðis­yfirlýsingu landsins og kallast dagurinn Sjálfstæðis­dagurinn, eða Independence Day á ensku.

Margar þessara kvenna deildu sömu mynd á samfélags­miðlum sem á stóð:
„4. júlí hefur verið slaufað vegna skorts á sjálf­stæði. Kær kveðja, konur.“

Leikkonan Jessica Chastain birti mynd af sér á Instagram þar sem hún sendi Banda­ríkjunum fingurinn – reyndar tvo. „Gleði­legan „sjálfstæðisdag“ frá mér og æxlunar­réttindum mínum,“ skrifaði hún við myndina. (Blaða­maður mun halda sig við orðið æxlunar­réttindi, og þykir það ansi gott.)

Katy Perry skrifaði færslu þar sem hún gagnrýndi skert réttindi bandarískra kvenna harkalega. „Lagið Baby You’re a Firework er tía, en konur í Banda­ríkj­un­um hafa færri rétt­indi en raketta.“

Jameela Jamil skrifaði: „Sjálfstæðis­dagurinn, nema þú sért með leg. Þá máttu bara fokka þér og okkur er sama hvort þú fokking deyrð eða við afvega­leiðum framtíð þína og geðheilsu, geri ég ráð fyrir? Flott..“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt