Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Dauðarefsingin á undanhaldi í BNA

Rangar sakfellingar og umdeildar aftöku­aðferðir eru meðal þess sem hefur gert það að verkum að sífellt fleiri ríki í Banda­ríkjunum ákveða að stöðva aftökur um óákveðinn tíma eða banna dauða­refsinguna. Samkvæmt nýrri könnun vilja 60% Bandaríkja­manna heldur dæma fólk í ævilangt fangelsi en til dauða.

Mynd / EPA
Mynd / EPA

Færri en 30 voru teknir af lífi og undir 50 dæmdir til dauða í Banda­ríkjunum í ár, fimmta árið í röð. Stuðningur við dauða­refsinguna hefur ekki mælst minni þar í landi í nær 50 ár en á síðustu árum hefur 166 föngum á dauða­deild verið sleppt eftir að dómum í málum þeirra var snúið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í árskýrslu samtak­anna Death Penalty Information Center, sem berjarst gegn dauða­refsingunni. Þar segir einnig að New Hampshire hafi orðið 21. ríki Banda­ríkjanna til að banna dauða­refsinguna en Kalifornía bættist í hóp þeirra ríkja sem hafa ákveðið að stöðva framkvæmd hennar um ótiltekinn tíma.

Alls voru 22 teknir af lífi 2019 í Banda­ríkjunum í sjö ríkjum; Alabama, Flórída, Georgíu, Missouri, Suður-Dakóta, Tennessee og Texas. Þá voru 33 dæmdir til dauða en athygli vekur að dómarnir féllu í 28 sýslum, sem samsvarar minna en 1% af sýslum landsins. Washington Post hefur eftir Brandon Garrett, laga­prófessor við Duke-háskóla, að þar sem lang­fjölmennustu dauða­deildirnar sé að finna í Kaliforníu, muni stöðvunin þar hafa gríðarleg áhrif á fjölda aftaka. Alls bíða 2.656 fangar þess að verða teknir af lífi í Banda­ríkjunum en þeir voru 3.593 árið 2000. Þá sitja 729 á dauða­deild í Kaliforníu.

Réttlætinu fullnægt?
Samkvæmt nýrri Gallupkönnun kjósa um 60% Bandaríkja­manna heldur dæma fólk í ævilangt fangelsi án möguleika á reynslu­lausn heldur en til dauða. Þar hefur eflaust áhrif mikil umræða um hina umdeildu banvænu innspýtingu sem aftöku­aðferð og sívaxandi fjöldi einstaklinga sem er látinn laus, sumir eftir áratuga­langa fangelsis­vist, þegar dómum er snúið. Á árinu vakti ekki síst athygli mál tveggja bræðra, sem báðir eru nú frjálsir eftir að hafa setið á dauða­deild í langan tíma. Corey Atchison, 48 ára, var sleppt í Tulsa eftir að hafa dvalið 28 ár í fangelsi fyrir morð árið 1990. Yngri bróðir hans, Malcolm Scott, var frelsaður árið 2016 eftir að dómi í óskyldu morðmáli var snúið.

Tveir menn voru teknir af lífi á árinu á meðan enn lék verulegur vafi á sekt þeirra. Lögmenn Larry Swearingen höfðu reynt að bjarga honum í mörg ár með því að benda á ýmis atriði sem stóðust ekki skoðun, t.d. að sýni sem voru tekin undan nöglum konunnar sem Swearingen var dæmdur fyrir að myrða hefðu ekki passað við hann. Swearingen, sem var tekinn af lífi í Texas, hélt ávallt fram sakleysi sínu. Þá var Domineque Ray tekinn af lífi í Alabama, eftir að hafa verið dæmdur til dauða árið 1999 fyrir að nauðga og myrða unglings­stúlku. Kvið­dómnum í málinu tókst ekki að komast að einróma niður­stöðu þar sem engar áþreifanlegar sannanir voru fyrir hendi í málinu.

Ljótasta málið, samkvæmt Guardian, var hins vegar mál Tiffany Moss. Hún varð á árinu fyrsta manneskjan til að vera dæmd til dauða í Georgíu í fimm ár. Þrátt fyrir að vera með stað­festan heila­skaða, var Moss leyft að sjá um eigin málsvörn en hún lagði ekki fram nein sönnunar­gögn til stuðnings sakleysi sínu, hvorki þegar dómur var kveðinn upp né refsing ákveðin.

Saklausir á dauða­deild?
Mál tveggja fanga á dauða­deild sem rötuðu til Hæstaréttar Banda­ríkjanna á árinu vöktu gríðar­mikla athygli. Báðir eru svartir og segir Robert Dunham, framkvæmda­stjóri DPIC, þau til marks um arfleifð aftaka án dóms og laga sem svartir máttu þola á árum áður.

Dómstóllinn snéri síðustu niður­stöðu í máli Curtis Flowers, sem komst fyrst í kastljós fjölmiðla eftir að um hann var fjallað í hlað­varpinu In the Dark. Þar var greint frá því að réttað hefði verið í máli Flowers sex sinnum en í hvert sinn sem hann var fundinn saklaus, eða fyrri dómur ógiltur af áfrýjunar­dómstól, gaf saksókn­arinn í málinu út nýja ákæru. Flowers var upphaf­lega fundinn sekur um að hafa myrt fjóra í húsgagna­verslun í Missis­sippi árið 1996 en Hæstiréttur komast að þeirri niður­stöðu að saksókn­arinn í málinu hefði ítrekað beitt öllum brögðum til að sjá til þess að sem fæstir svartir sætu í kvið­dómnum. Flowers var sleppt gegn tryggingu en hann bíður þess enn að saksókn­arinn taki ákvörðun um hvort hann kjósi að ákæra Flowers í sjöunda skipti.

Kim Kardashian og Oprah Winfrey voru meðal þeirra sem vöktu athygli á máli Rodney Reed en aftöku hans var frestað á ögur­stundu þegar stuðnings­menn hans kröfðust prófana á erfðaefni sem þeir telja að geta sýnt fram á sakleysi Reeds. Reed var ákærður og sakfelldur fyrir að hafa nauðgað og myrt hina 19 ára Stacey Stites, hvíta konu sem var trúlofuð lögreglu­manni. Reed hefur ávallt haldið því fram að hann og Stites hafi átt í leynilegu ástar­sambandi og að unnusti hennar hefði myrt hana í reiði vegna fram­hjáhaldsins.

Fimm á dauða­lista stjórn­valda
Engir alríkis­fangar voru teknir af lífi í ár, þrátt fyrir að stjórn­völd hefðu ákveðið að hefja aftökur að nýju eftir nærri 20 ára hlé. Dómsmála­ráðuneytið hefur gefið út raun­verulegan dauða­lista yfir þá fimm einstaklinga sem taka á af lífi en þeir eiga það sameiginlegt að hafa pyntað og myrt börn.

Alls 13 aftökum hefur verið frestað í Ohio vegna deilna um „ágæti“ banvænnar innspýtingar sem aftöku­aðferð en þrír fangar á dauða­deild létust á árinu skömmu áður en aftökur þeirra áttu að fara fram.

Nærri 100 manns voru teknir af lífi árið 1999 og á árunum fyrir síðustu aldamót voru um 300 dæmdir til dauða á ári hverju.

Þúsundir teknar af lífi í Kína
Amnesty International gefur árlega út tölur um aftökur á heimsvísu en árið 2018 voru að minnsta kosti 690 teknir af lífi í 20 löndum. Flestar aftökur voru framkvæmdar í Kína, Íran, Sádi-Arabíu, Víetnam og Írak.

Aftökurnar í Kína eru ekki inni í tölunni 690; þarlend stjórn­völd eru talin standa fyrir fleiri aftökum en öll önnur ríki samanlagt en engar upplýsingar eru gefnar um þær og gríðar­lega erfitt að reyna að ná yfirsýn yfir fjöldann. Mann­réttinda­samtök gera ráð fyrir að aftökurnar nemi þúsundum.

Að minnsta kosti 253 voru teknir af lífi í Íran árið 2018, 85 í Víetnam og 52 í Írak. Í lok ársins 2018 höfðu 106 ríki tekið dauða­refsinguna úr lögum og 36 ríki til viðbótar látið af því að dæma menn til dauða.

Cornell-háskólinn í Banda­ríkjunum heldur utan um nýjustu tölur yfir dauða­refsingar á heimsvísu. Þær voru síðast uppfærðar 18. desember en samkvæmt þeim hafa 26 verið teknir af lífi í Egypta­landi það sem af er ári, 232-256 í Íran, að minnsta kosti sex í Norður-Kóreu, 14 í Pakistan og 139 í Sádi-Arabíu.

Aftöku­aðferðir eru afhöfðun, raflost, henging, banvæn innspýting, byssuskot og grýting.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár