Einstakt og vel staðsett einbýlishús við Merkurgötu 9 í Hafnarfirði hefur verið sett á sölu á 111,9 milljónir króna.
Um er að ræða fallegt og sjarmerandi timburhús sem reist var árið 1909 og stendur í grónu og vinsælu hverfi í miðbæ Hafnarfjarðar.
Húsið skiptist í kjallara, hæð og ris. Kjallarinn er um 45 fermetrar að stærð en er ekki inn í skráðri heildarfermetratölu eignarinnar. Eignin hefur fengið gott viðhald á síðustu árum, meðal annars hefur verið skipt um glugga á austurhlið hússins og nýtt bárujárn sett á tvær hliðar þess.
Innandyra hefur húsinu verið haldið í upprunalegum og hlýlegum stíl sem endurspeglar vel aldur þess og karakter. Frá stofu er útgengt út á rúmgóðan sólpall þar sem heitur pottur setur svip sinn á útiaðstöðuna.
Merkurgata 9 sameinar sögulegan sjarma og nútímaleg þægindi á eftirsóttum stað í Hafnarfirði og gæti því vakið athygli þeirra sem leita að einstöku heimili með mikla sögu og persónuleika.






Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir