Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bubbi spyr hvort hann ætti að þora að spila blús aftur: „Hvítingjablús er samt hræðileg tónlist“

Bubbi Morthens veltir fyrir sér hvort hann ætti að „þora“ að spila blús aftur í nýrri færslu á Facebook.

„Ætli maður þori að spila blús framar ef maður skildi móðga einhvern,“ skrifaði þessi vinsæli tónlistar­maður og ljóðskáld, Bubbi Morthens og bætti við þremur hlátur­körlum. Ekki útskýrði hann frekar hvað hann meinti með þessum orðum sínum en þó nokkrir skrifuðu athuga­semdir við færsluna.

Hall­grímur Helgason rithöfundur svaraði Bubba: „Hvítingja­blús er samt hræðileg tónlist.“

Þessum orðum Hallgríms svaraði Bubbi um hæl: „Nei en hann hefur annað nafn sem er kántrí, Bólu Hjálmar er einn sá rosalegasti blúsmaður sem sögur fara af hvítir menn hafa margir náð að túlka sárs­aukann feikna vel.“

Hjálmar Hjálmarsson leikari, sem hefur reyndar leikið Bubba af stakri snilld í nokkrum áramóta­skaupum skrifaði sína athugasemd: „Ísbjarnar­blús sleppur…held ég…“

Magnús nokkur taldi enga hættu á að einhverjir móðguðust: „Engin hætta á því… blúsinn er alheims­eign og upplifun allra… Ekki bara túlkun tregans sem slíks heldur alls tilfinninga­litrófsins! Amen!“

Rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson átti síðasta orðið: „Ég er alltaf að bíða eftir því að þú gerir blúsplötu. Þú með gítarinn. Ég er með stórt blússafn á Spotify. Þar eru bara tveir hvítir blús­söngvarar. Þú ert annar þeirra.“ Ekki fylgdi það með hver hinn hvíti blúsarinn er en Bob Dylan kemur sterklega til greina en Bubbi er einmitt mikill aðdáandi þeirrar lifandi goðsagnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt