Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Gruna Ísraela um skemmdarverk á hjálparbáti á leið til Gaza

„Þeir sem standa á bak við þetta geta tafið okkur, en þeir stöðva okkur ekki.“

Handala
Handala Aðgerð­ar­sinn­arnir eru lagðir af stað til Gaza Mynd: GIOVANNI ISOLINO/AFP

Aðgerða­sinnar sem standa að Frelsis­flotanum segja bát þeirra hafa verið vísvitandi skemmdan í þeirri viðleitni að hindra för hans til Gaza. Báturinn Handala, sem ætlað er að sigla með hjálpar­gögn til stríðs­hrjáðra Palestínu­manna og brjóta þar með gegn hafnbanni Ísraels á Gaza, varð fyrir ítrekuðum árásum sem skipuleggjendur telja vera skemmdar­verk.

Aðgerðar­sinnarnir 19 sem eru um borð í Handala, með hjálpar­gögn fyrir hungraða og særða Gaza-búa, eru nú lagðist af stað í átt að Gaza en þeir lögðu af stað frá Ítalíu. Í síðasta mánuði var annar bátur á vegum Frelsis­flotans stöðvaður og allir áhafnar­meðlimir hand­teknir ólöglega af ísraelska hernum og að lokum sendir heim. Til stóð að Handala færi fyrr af stað en þá kom í ljós tvær tilraunir til skemmdar­verka.

Að sögn skipuleggjenda var taug vafinn utan um skrúfuna í því skyni að valda bilun, auk þess sem ætandi vökvi var settur í vatnstank bátsins í stað fersk­vatns – sem gæti stefnt bæði skipi og áhöfn í hættu.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem flotinn verður fyrir árásum,“ segir í yfir­lýsingu hópsins. Þar er vísað til fyrri atvika:

  • 2010 – Mavi Marmara: Fjölmörg skip í flotanum urðu fyrir dular­fullum bilunum áður en ísraelskar sérsveitir gerðu árás á Mavi Marmara, þar sem 10 óvopnaðir borgarar voru drepnir.
  • 2011 – Freedom Flotilla II: Skipin Juliano og MV Saoirse urðu fyrir skemmdum fyrir brottför, og þá sökuðu skipuleggjendur Ísrael beint um verknaðinn.
  • 2025 – Conscience: Lenti í dróna­árásum á alþjóð­legu hafsvæði. Enn á ný voru grun­semdir bornar upp gegn Ísrael.

„Þetta er mynstur, kerfis­bundin og úthugsuð tilraun til að stöðva frið­samlega borgara sem ætla að færa hjálp og samstöðu til hungraðs og inni­lokaðs fólks,“ segir í yfir­lýsingunni.

Skipuleggjendur kalla árásirnar „hugleysi og örvæntingu“ en segja þær ekki muni brjóta þá niður:

„Þeir sem standa á bak við þetta geta tafið okkur, en þeir stöðva okkur ekki.
Við siglum til Gaza.
Við siglum fyrir réttlæti.
Frjáls Palestína.“

Hér má fylgjast með stað­setningu Handala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu