Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gulla arkitekt hannar einstaka glæsiíbúð

Gulla arki­tekt seg­ist heill­ast af hóg­værum glæsi­leika og arkti­tektúr með list­rænu ívafi.

Gulla arkitekt hannar einstaka glæsiíbúð

Guðlaug Jóns­dóttir, arki­tekt og hönn­uður, hefur búið í borg englana, Los Angeles, í næstum þrjá­tíu ár og getið sér gott orð sem arki­tekt. Gulla, eins og hún er alltaf kölluð, hefur hannað tvær sér­lega smart hús­gagna­línur sem eru ein­ungis seldar í lista­gall­er­íum og má segja að þessi hús­gögn hennar séu oft meira í ætt við lista­verk eða skúlp­túr en hefð­bundin hús­gögn.

Guðlaug Jóns­dóttir, arki­tekt og hönn­uður, hefur búið í borg englana, Los Angeles, í næstum þrjá­tíu ár og getið sér gott orð sem arki­tekt

Gulla hefur líka hannað mörg flott hótel víða um heim og veit­inga­staði sömu­leiðis og nýlega tók hún að sér að hanna glæsi­í­búð í hæstu íbúð­ar­bygg­ingu heims í stór­borg­inni New York, nánar til­tekið 432 Park Avenue-skýja­kljúfr­inum sem lokið var að byggja í enda árs 2015. Afrakst­ur­inn er algjör veisla fyrir augað. Þetta heim­ili er sann­ar­lega ein­stakt, fágað og glæsi­legt en um leið líka hlý­legt og tíma­laust.

Við hittum Gullu þegar hún var stödd hér á landi í jóla­fríi og spurðum hana út í þessa íðil­fögru íbúð en þess má geta að Gulla fékk nýlega hönn­un­ar­verð­laun Interior Design Magazin; Best resort design 2017 og voru verð­launin fyrir lúx­us­hótel sem hún hann­aði í Kína en þessi verð­launin eru eins og Óskarinn í hönnun og því mik­ill heiður að fá þau. Við óskum Gullu til ham­ingju með enn eina rós­ina í hnappa­gatið því þetta eru aldeilis ekki fyrstu verð­launin sem hún fær fyrir hönnun sína.

Íbúðin er staðsett í hæstu íbúðabyggingu heims

Íbúðin er eins og fyrr segir í hæsta íbúð­ar­hús­næði heims og Gulla segir að húsið sé 90 hæðir og 425,5 metra hátt. Og þá langar okkur að vita hversu hátt upp með lyft­unni hún hafi farið þegar hún vann að þessu verk­efni? ,,Íbúðin er á 55. hæð og hún er um 350 fer­metrar,“ segir hún og bætir við að loft­hæðin sé tæpir fjórir metrar. „Það eru hjón sem eiga þetta og þau eru til að mynda hvort með sitt bað­her­bergið.“Hennar bað­her­bergi er með frístand­andi bað­keri sem er stað­sett við stóran glugga og það er því ein­stakt útsýni yfir borg­ina þegar legið er baði þarna uppi á 55. hæð. Hann er með sturtu á sínu bað­her­bergi þannig að þau eru ekki eins.

Þarna er stórt opið aðal­rými sem telur stofu, borð­stofu og eld­húsið, inn af því er annað ,,vinnu­eld­hús“, þvotta­her­bergi og annar inn­gangur. Auk þess er líka eitt her­bergi sem er sér­hannað til að spila backgammon, eða kotru, eins og það heitir á íslensku því herra­mað­ur­inn sem þarna býr spilar gjarnan kotru við félaga sína og þá er ekki ama­legt að vera með þetta flotta spila­rými.

Þessi glæsi­lega íbúð prýðir for­síðu nýjasta tölu­blaðs Húsa og híbýla og þar má sjá fleiri fal­legar myndir og við­talið við Gullu í heild sinni.

Texti / Sigríður Elín Ásmunds­dóttir
Myndir / Art Gray

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni