Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Endurskoðandi sem elti drauminn

Endurskoðandi sem elti drauminn

Gunnar Freyr er íslenskur Dani eins og hann orðar það, fæddur og upp­al­inn í Danmörku. Hann lauk masters-gráðu í við­skipta­fræði og end­ur­skoðun og starf­aði sem end­ur­skoð­andi og ráð­gjafi hjá Price Waterhouse Cooper í Danmörku og vann mikið þar til hann var orð­inn leiður á skrif­stofu­vinn­unni.

„Þetta voru bara jakka­föt og bindi allan dag­inn“ segir Gunnar en hann seg­ist alltaf hafa verið góður drengur sem taldi sig vera að gera það rétta í líf­inu þar til hann upp­götv­aði að hann vant­aði lífs­fyll­ingu.

Árið 2014 ákváð hann ásamt sam­býl­is­konu sinni, Kasiu, að þau myndu segja upp störfum sínum í Danmörku til þess að elta drauma sína. Kasia vann skrif­stofu­vinnu líkt og Gunnar en hún er mennt­aður heim­spek­ingur og almanna­teng­ill. Þau seldu allar eigur sínar og keyptu sér flug­miða til Suð­austur Asíu þar sem þau ferð­uð­ust um þriggja mán­aða skeið. Gunnar hefur verið áhuga­samur um ljós­myndum frá 2007 en í ferð­inni til Asíu ákvað hann að fara alfarið út á þá braut. Eftir dvöl­ina í Asíu keyptu þau flug­miða til Íslands en ein­gungis aðra leið en Gunnari hafði alltaf langað til þess að prófa að búa á Íslandi þar sem ræt­urnar lágu.

Eftir kom­una til Íslands var ekki aftur snúið. Hann stofn­aði Instagram reikn­ing undir heit­inu „icelandic_explorer“ en á þeim tíma voru fáir Íslend­ingar virkir not­endur. Fylgj­enda­hóp­ur­inn stækk­aði ört og beiðnir um verk­efni fylgdu í kjöl­farið. Í dag er Gunnar svo­kall­aður sendi­herra Canon á Norð­ur­slóðum og eru fylgj­endur hans á instagram orðnir 261 þús­und tals­ins og fer stækk­andi.

Gunnar er með mörg járn í eld­inum en sem stendur er hann í ævin­týra­ferð um Grænland með hópi af áhuga­ljós­mynd­urum í átta daga leið­angri um Scoresbysund á tveggja mastra segl­skipi frá Norð­ur­sigl­ingu. Ekkert net­sam­band er á svæð­inu en áhuga­samir geta fylgst með Gunnari á instagram því myndir frá Græn­landi munu birt­ast þar að ferð lok­inni.

Nýtt Hús og híbýli er komið í versl­anir.

Mögnuð ljós­mynd eftir Gunnar Frey fylgir með sept­em­ber­blaði Húsa og híbýla og ber myndin heitið Mark­ar­fljóts­gljúfur. Um mynd­ina segir Gunnar:

„Gljúfrið er með stærstu og lengstu gljúfrum á Íslandi en það er allt að 200 metra djúpt. Ég kom þangað fyrst árið 2016 og svo aftur núna í sumar. Ég hafði beðið lengi eftir að geta farið þangað aftur og þá með dróna en þegar ég kom þangað í sumar var mikið rok, skýjað og rign­ing. Alls ekki bestu aðstæð­urnar til þess að fljúga dróna. Ég ákvað hins vegar að taka slag­inn og fljúga drón­anum þrátt fyrir veðrið og nið­ur­staðan varð þessi mynd. Þetta er staður sem margir Íslend­ingar hafa aldrei séð þótt að flest okkar fari yfir Mark­ar­fljót á leið um Suð­ur­landið“.

Myndin sem fylgir nýjasta hefti blaðs­ins Hús og híbýli.

Ekki missa af sept­em­ber­blaði Húsa og híbýla og þess­ari flottu ljós­mynd eftir Gunnar Frey. Smelltu hér til að ger­ast áskrif­andi að Húsum og híbýlum.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni