Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Brautryðjendur í að öðlast jafnlaunavottun

Í til­efni þess að fram undan er ráð­stefnan Rétt upp hönd, sem Félag kvenna í atvinnu­líf­inu ásamt sam­starfs­að­ilum standa fyrir 31. októ­ber næst­kom­andi heim­sóttum við Auði Þór­halls­dóttur, sviðs­stjóra mannauðs­mála hjá VIRK. Okkur lék for­vitni á að vita meira um starf­sem­ina og drif­kraft­inn innan fyr­ir­tæk­is­ins sem nú þegar hefur öðl­ast jafn­launa­vottun.

Brautryðjendur í að öðlast jafnlaunavottun

Segðu okkur aðeins frá aðdrag­anda og fram­kvæmd­inni, leið­inni að því að fá jafn­launa­vott­un­ina. „Samkvæmt lög­unum þarf starf­semi eins og VIRK, með 25 til 89 starfs­menn, ekki að ljúka jafn­launa­vott­unar fyrr en í árs­lok 2021. Við settum okkur strax það mark­mið að fá jafn­launa­vottun ÍST 85:2012 eins fljótt og auðið væri eftir að lögin voru sam­þykkt, enda viljum við vera til fyr­ir­myndar í þessu sem og öðru.“ Auður segir að hand­tökin hafi verið hröð og verk­efn­inu hafi strax verið hrundið úr vör. „Við vorum klók og pönt­uðum úttek­ar­dag í mars 2018 um leið og við hófum vinn­una í nóv­em­ber 2017. Það setti á okkur ákveðna pressu og ekk­ert annað í boði en að „spýta í lóf­ana“ og keyra þetta áfram. Í sann­leika sagt hélt ég að þetta yrði ekki skemmti­legt verk­efni en annað kom á dag­inn. Þegar vinnan var komin af stað var þetta bara þræl­skemmti­legt og nauð­syn­legt fyrir fyr­ir­tæki að fara í gegnum þetta mikla lær­dóms­ferli.“

Í sann­leika sagt hélt ég að þetta yrði ekki skemmti­legt verk­efni en annað kom á dag­inn.

Kynbundinn launamunur 1,1% konum í hag

„Loka­út­tekt var svo gerð af BSI á Íslandi þann 6. apríl síð­ast­lið­inn þar sem engin frá­brigði fund­ust og útskýrður kyn­bund­inn launa­munur hjá VIRK var 1,1% konum í hag.  Fyr­ir­tæki fá ekki vottun frá BSI nema kyn­bund­inn launa­munur sé undir 5%. Við erum veru­lega stolt af því að vera braut­ryðj­endur í að öðl­ast jafn­launa­vottun fyrir fyr­ir­tæki af þess­ari stærð­argráðu,“ segir Auður og er stolt af sínu fólki.

Metoo – byltingin hafði áhrif á gerð jafnréttisættisáætlunar

Það má með sanni segja að þið séuð komin með ágætis reynslu á því hvað jafn­launa­vottun gerir fyrir mannauðs­stjórnun í fyr­ir­tækjum, þar sem þið eruð fyrsta fyr­ir­tækið í þessum stærð­ar­flokki sem fékk þessa vottun. Hverju skilar það ykkur í starf­sem­inni? „Segja má að þar sem við vorum með ISO 9001-vottun fyrir þegar vinnan hófst, stóðum við betur að vígi en þau sem ekki eru með neina gæða­vottun. Það þurfti að ráð­ast í að útbúa margar nýjar stefnur og end­ur­nýja aðrar eldri. Einnig þurfti að end­ur­nýja allar starfs­lýs­ingar, flokka störfin sem hér eru unnin og semja svo við­mið, ásamt undir- og yfir­við­miðum. Síðan þurfti að setja pró­sentur og stig á starfa­við­miðin og segja má að þessi þáttur sé sá flókn­asti í vott­un­ar­ferl­inu en jafn­ramt afar mik­il­vægur. Það er einnig gott að í ferl­inu þarf að útbúa jafn­rétt­is­á­ætlun sem Jafn­rétt­is­stofa sam­þykkir sér­stak­lega. Inni í þeirri áætlun er mjög margt sem til dæmis teng­ist Metoo-bylt­ing­unni og skiptir fyr­ir­tæki miklu máli. Þar má nefna kort­lagn­ingu á því hvernig tekið er á málum þegar upp kemur áreiti eða annað slíkt . Ég myndi segja að fyr­ir­tæki standi mjög vel eftir að fara í gegnum þetta ferli og ég hvet fleiri til að drífa í þess­ari vinnu.“

Ímynd og orðspor VIRK skiptir máli

„Okkur finnst mjög mik­il­vægt fyrir orð­spor og ímynd VIRK að vera með jafn­launa­vottun. Meg­in­mark­miðið er auð­vitað að vinna gegn kyn­bundnum launa­mun, ég vil líka segja fjöl­menn­ing­ar­legum, og hver vill ekki vera þar? Það ætti að auka vellíðan starfs­fólks að vita að fag­legt og skýrt ferli sé á bak við ákvörðun launa hjá fyr­ir­tækjum og þar séu gerðar úttekir reglu­lega af hálfu óháðs aðila, það er að segja vott­un­ar­stofu. Það gerir okkur von­andi líka að enn eft­ir­sókn­ar­verð­ari vinnu­stað. Vinnu­staða­menn­ing og líðan starfs­fólks hjá VIRK skiptir okkur öllu máli og þar erum við stjórn­endur mjög sam­stiga sem er svo frá­bært. Við mannauðs­mælum einnig hjá okkur átta þætti annan hvern mánuð og þegar nið­ur­stöður ligga fyrir leggj­umst við stjórn­endur yfir þær, allir sem einn!  Við greinum og leggjum okkur fram við að finna út hvað við getum gert betur. Við förum svo yfir þessar mæl­ingar með starfs­fólki og eigum sam­tal og fáum hug­myndir frá því hvað betur megi fara. Í heild­ina höfum við komið mjög vel út allt þetta ár, sem mikil ánægja er með.“

Meg­in­mark­miðið er auð­vitað að vinna gegn kyn­bundnum launa­mun, ég vil líka segja fjöl­menn­ing­ar­legum, og hver vill ekki vera þar?

VIRK hástökkvari á milli ára

VIRK er eitt fimmtán fyr­ir­tækja sem telj­ast til „Fyr­ir­mynd­ar­fyr­ir­tækja“ í flokki með­al­stórra fyr­ir­tækja árið 2018, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­unar VR en mark­mið hennar er að leita upp­lýs­inga um við­horf starfs­fólks til vinnu­staðar síns. Þar var VIRK hástökkvari milli ára í könnun VR og vænti Auður þess að einn þáttur í því sé að þau höfðu lokið jafn­launa­vott­un­inni með glans. Telur þú að það skili árangri að veita við­ur­kenn­ingar og draga fram í sviðs­ljósið fyr­ir­tæki sem hafa ná mark­miðum Jafn­vægis­vog­ar­innar? „Já, ég tel mjög jákvætt og hvetj­andi að veita fyr­ir­tækjum við­ur­kenn­ingar fyrir metn­að­ar­fulla og fag­lega starf­semi. Við erum mjög „keppnis“ hjá VIRK og fögnum því þegar við náum góðum við­ur­kenn­ingum og settum mark­miðum.“

Vilja fleiri karla til starfa

Getur þú aðeins sagt okkur frá starfs­manna­sam­setn­ing­unni hjá ykkur? Eru margar konur í stjórn­un­ar­stöðum? „Fram­kvæmda­stjór­inn okkar er kona og allir sviðs­stjórar eru konur. Hjá VIRK eru fimm­tíu starfs­menn og þar af eru aðeins fjórir karlar og við erum alls ekki sátt við þennan mikla kynja­halla. Það hefur gengið afskap­lega treg­lega að fá karl­menn til að sækja um, eins og hér er frá­bært að starfa. Við höfum reynt að útbúa starfs­aug­lýs­ingu með þeim hætti að karlar væru sér­stak­lega hvattir til að sækja um, sem skil­aði því miður ekki árangri.  Sem dæmi get ég líka nefnt að nýverið aug­lýstum við eftir ráð­gjafa og í fimm­tíu manna umsókn­ar­hópi var ekki einn ein­asti karl­maður. En við erum virki­lega að berj­ast í því að fá karla til starfa hjá okkur sem upp­fylla mennt­unar- og hæfni­kröfur þeirra starfa sem aug­lýst eru.“

Mynd/ Aldís Páls­dóttir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur