Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vinaleg Gautaborg

Birna Ágústs­dóttir segir frá flottum stöðum í Gauta­borg.

Vinaleg Gautaborg

Birna Ágústs­dóttir hefur búið í Gauta­borg í 36 ár ásamt fjöl­skyldu sinni. Birna starfar sem túlkur í Gauta­borg og nágrenni auk þess að vinna innan íslensku kirkj­unnar í Gauta­borg, mest með kirkju­skól­ann, og er for­maður safn­að­ar­nefndar. Hún er gift, á fjögur börn, þrjú barna­börn og nokkur bón­us­börn. Það sem henni líkar einna helst við búset­una ytra er að þar er ekk­ert lífs­gæða­kapp­hlaup, engin verð­tryggð lán, vina­legt og hjálp­samt fólk og ekki það stress sem stundum finnst í stór­borgum. Við fengum hana til að segja okkur frá nokkrum flottum stöðum á svæð­inu.

Liseberg

Tívolíið Liseberg hefur upp á margt að bjóða. Fyrir utan öll tæki sem maður getur farið í þá er þessi garður alveg stór­feng­legt lista­verk. Þeir sem koma hingað verða að gefa sér tíma til að ganga um allan garð­inn og upp­götva allar þær gróða­lindir sem eru víðs­vegar um garð­inn, sér­stak­lega á „efra“ svæð­inu. Það getur verið hrein unun að bara fara inn og fá sér kaffi og með því og njóta umhverf­is­ins. Beint á móti aðal­inn­gangi Liseberg er hótel sem heitir Gothia Towers og í einum af turn­unum er veit­inga­hús uppi á 23. hæð sem er með rækju­brauð­sneiðar sem eru með þeim bestu sem til eru. Þaðan er líka dásam­legt útsýni.

Botaniska Trädgården

Þessi jurta­garður er stór­feng­legur, þar eru plöntur víðs­vegar úr heim­inum sem búið er að rækta frá grunni svo þær aðlag­ist sænsku veð­ur­fari. Hver árs­tími hefur upp á eitt­hvað sér­stakt að bjóða. Þar geta verið lista­sýn­ingar eða annað bæði í garð­inum og gróð­ur­hús­inu, einnig er hægt að fá sýn­ingar með leið­sögu­manni. Hinum megin við göt­una er Slott­skogen þar sem er að finna lít­inn dýra­garð með sænskum dýrum þar á meðal „barna­dýra­garð“ þar sem börn geta farið inn og klappað dýr­unum. Þar er einnig flottur leik­völlur sem heitir Plikta þar sem börn geta unað sér í langan tíma.

Hér er mikið af smá­versl­unum, frá­bærum kaffi­húsum og þar á meðal eitt sem er þekkt fyrir stærstu kanilsnúð­anna í Gauta­borg. Á haustin eru þar bænda­mark­aðir á laug­ar­dögum og í des­em­ber eru þar jóla­mark­aðir.

Saluhallen við Kungstorget

Salu­hal­len við Kungs­torget er stór mat­ar­mark­aður. Húsið var tekið í notkun 1889, er 14.000 fer­metrar, rýmdi 92 „versl­anir“ og er byggt úr járni og gleri. Þarna er hægt að kaupa í mat­inn frá stórum hluta heims­ins, bæði til­búin mat en líka það sem maður vill laga heima. Fiskur, kjöt, ostar, græn­meti, sæl­gæti, kaffi­hús, litlir veit­ing­ar­staðir með meiru, allt undir sama þaki. Oft eru líka sölu­tjöld úti á torg­inu þar sem bændur frá nágrenn­inu koma og selja sínar afurðir.

Hverfið Haga

Hér áður þótti ekki fínt að búa í þessu hverfi og var byrjað að rífa það niður í kringum 1980. Þegar upp­götv­að­ist að borg­ar­myndin breytt­ist tölu­vert var hætt að rífa og sum af hús­unum héldu gamla bygg­ing­ar­stíl­unum. Hér er mikið af smá­versl­unum, frá­bærum kaffi­húsum og þar á meðal eitt sem er þekkt fyrir stærstu kanilsnúð­anna í Gauta­borg. Á haustin eru þar bænda­mark­aðir á laug­ar­dögum og í des­em­ber eru þar jóla­mark­aðir.

Skerjagarðurinn

Gaman er að taka strætó­bát frá Salt­hol­men út á eyj­arnar, helst að fara alla leið út á Vrångö sem er lengst burtu.

Annars er sama hvaða eyju farið er í land á til að skoða. Það er hægt að kaupa dag­skort í strætó og þá getur maður farið á milli og skoðað allar eyj­arnar.

Þetta gildir kannski meira á sumrin, það er lítið gaman að flakka þar þegar er rok og rign­ing.

Vesturströndin

Síðast en ekki síst, ef maður hefur bíl til umráða, þá er frá­bært að skoða vest­ur­strönd­ina. Þar eru margir skemmti­legir staðir svo sem Nordens Ark-dýra­garður þar sem unnið er að vernda dýr í útrým­ing­ar­hættu, Smögen sem er lítið fiski­þorp þar sem ver­búð­unum hefur verið breytt í versl­anir og veit­inga­staði.

Ekki langt þaðan er Fjällbacka sem bæk­urnar hennar Camilla Läckberg fjalla um og svo er hægt að keyra upp að gömlu Svinesund-brúnni, leggja bílnum og ganga yfir til Noregs. Það þarf bara að fara út á hálfa brúnna, þar er merk­ing sem stendur Svíþjóð og svo Noregur.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur