Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Silfurborgin við Norðursjó

Borgin Aberdeen er full af fal­legum almenn­ings­görðum, söfnum og stór­brotnum arki­tektúr.

Silfurborgin við Norðursjó

Aberdeen er krútt­leg borg í Skotlandi sem líkja má við Akureyri okkar Íslend­inga, hún hefur sjarma smá­bæjar en er með allt það sem finna má í stór­borgum.

Í borg­inni er stór­brot­inn arki­tektúr. Hér sést Aberdeen háskóli.

Aberdeen er þriðja stærsta borg Skotlands og oft nefnd granít­borgin, eða Silver by the Sea, enda nán­ast allar bygg­ingar á svæð­inu byggðar úr hinum níð­sterka og fal­lega efni­við, graníti. Olíu­vinnsla í Norð­ur­sjó skipar stóran sess í sam­fé­lag­inu og í Aberdeen er stærsti þyrlu­flug­völlur í Evrópu. Í borg­inni eru margir fal­legir almenn­ings­garðar, stór­brot­inn arki­tektúr og skemmti­leg söfn, enda á borgin sér margra alda sögu.

Aðal­versl­un­ar­gatan heitir Granite Mile og er hluti af Union Street en þar eru meira en 800 versl­anir, veit­inga­staðir og barir. Stærsta versl­un­ar­mið­stöðin heitir Union Square og þar má finna H&M, Zöru, Michael Kors, Apple og fleiri þekktar búðir. Versl­un­ar­mið­stöðv­arnar Bon Accord og St Nicholas eru sam­tengdar skammmt frá en þar er einnig H&M-verslun, Karen Millen, L‘Occitan, Marks & Spencer og fleiri. Í Trinity Center er svo meðal ann­ars Deb­en­hams og Primark.

Óhætt er að mæla með Scene-hót­el­unum í mið­borg Aberdeen sem bjóða upp á öll nútíma­þæg­indi. Hótelin eru þrjú og eru rekin af Scene-fjöl­skyld­unni. Hótelin eru í sam­starfi við nokkra veit­inga­staði víðs vegar um Aberdeen þar sem hægt er að borða og bæta á hót­el­reikn­ing­inn. Hótelin eru einnig í sam­starfi við tvær lík­ams­rækt­ar­stöðvar. Fyrsta hót­elið var stofnað árið 1979 og starf­semin hefur vaxið hægt og bít­andi síðan. Álman á einu hót­el­inu var áður kirkja sem var gerð upp sem hótel, virki­lega sjar­mer­andi.

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn, stofn­andi keðj­unnar og fram­kvæmda­stjóri, Charles Skene, leggur mik­inn metnað í rekst­ur­inn og hefur forð­ast að láta fyr­ir­tækið verða of stórt eða hluta af alþjóð­legum keðjum. Fyrir nokkrum árum var hann sæmdur OBE, Order of the British Empire sem er eins konar fálka­orða þeirra Breta, fyrir störf sín.

Í sambýli við Trump

Aberdeen og nágrenni er golf­para­dís en þar eru fimm­tíu og sjö 18 holu golf­vellir. Skammt norðan við Aberdeen er golf­völlur í eigu Donalds Trump sem kall­ast ein­fald­lega Trump International Golf Links. Hann er byggður innan um miklar sand­öldur við aust­ur­strönd Skotlands sem gerir völl­inn ein­stakan. Sand­öld­urnar, sem voru látnar halda sér á milli teiga, brauta og flata, eru í hlut­verki hind­r­ana og ekki er um aðrar hindr­anir að ræða.

Aberdeen og nágrenni er golf­para­dís en þar eru fimm­tíu og sjö 18 holu golf­vellir.

Golfarki­tekt­inn Dr. Martin Hawtree hann­aði völl­inn sem var opn­aður árið 2012 eftir nokkra bar­áttu en ekki voru allir á eitt sáttir um fram­kvæmd­ina. Trump þurfti að kaupa land af nokkrum aðilum til að geta byggt þennan drauma­völl en ekki voru allir sem vildu selja. Einn eig­and­inn býr til dæmis enn á svæð­inu og golf­völl­ur­inn var byggður í kringum býli hans. Sagan segir að sam­býlið gangi ekk­ert allt of vel.

Gamlt höfð­ingja­setur sem Trump keypti gegnir hlut­verki hót­els og veit­inga­staðar sem er sér­stak­lega ætlað golf­urum. Sérstök svíta þar er kennd við Trump og hann dvelur í henni þegar hann er sjálfur á svæð­inu. Þessa svítu er svo hægt að leigja fyrir þónokkur pund. Við golf­völl­inn er svo glæsi­legur golf­skáli, veit­inga­staður og verslun.

Í kast­al­anum sjálfum er flott her­bergi í gam­al­dags stíl en í gam­alli hlöðu og úti­húsum á móti er búið að inn­rétta flott nútíma­leg her­bergi.

Meldrum House Country Hotel and Golf Course er í um fjöru­tíu og fimm mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Aberdeen. Hótelið er í gömlum kast­ala sem upp­haf­lega var byggður á þrett­ándu öld en hefur tekið tölu­verðum breyt­ingum í gegnum tíð­ina síðan. The Cave Bar er einn af elstu hlutum húss­ins eða um 800 ára gam­all og þar er meðal ann­ars eitt stærsta safn af Glen Garioch-viskíi og gaman að fara í viskís­mökkun. Í kast­al­anum sjálfum er flott her­bergi í gam­al­dags stíl en í gam­alli hlöðu og úti­húsum á móti er búið að inn­rétta flott nútíma­leg her­bergi. Golf­völl­ur­inn er mun hefð­bundn­ari en Trump-völl­ur­inn, með trjám, tjörnum og sand­gryfjum.

Fór næstum í flóði

Skosku hálöndin ættu allir að heim­sækja ein­hvern tím­ann á ævinni. Þau eru svo fal­leg, full af dýrð­ar­ljóma og sögu. Þau eru meðal ann­ars þekkt fyrir þá fjöl­mörgu kast­ala sem þar eru. Einn þeirra er Crathes Castel; það er ævin­týri lík­ast að fara í túr um kast­al­ann, skoða hvern krók og kima og kynn­ast sögu hans. Í kringum kast­al­ann er stór garður og í raun helj­ar­stórt úti­vist­ar­svæði sem er vin­sælt meðal bæði heima- og ferða­manna. Þar er hægt að velja um sex mis­mun­andi göngu­leiðir og til­valið fyrir fjöl­skyld­una að njóta dags­ins með nesti og nýja skó eða kíkja á veit­inga­stað­inn sem er skammt frá kast­al­anum.

Ekki langt frá Crathes-kast­al­anum, með­fram ánni River Dee, er Banchory Lodge Hotel. Áin komst í heims­frétt­irnar eitt sinn mikil flóð urðu í henni og eyðilögðu meðal ann­ars næstum því heilan kast­ala sem stendur á árbakk­anum. Flóðið náði alveg upp að veggjum hót­els­ins í Banchory Lodge en það slapp við stór­felldar skemmdir. Talsmenn hót­els­ins sögðu að það hefði verið ógn­vekj­andi að sjá stærð­ar­innar hjól­hýsi fljóta fram hjá. Banchory Lodge Hotel er fal­legt sveita­hótel sem býður upp á flott hót­el­her­bergi með fal­legu útsýni. Á staðnum er frá­bær veit­inga­staður með mjög góðum mat og hægt að sitja úti á palli þegar veðrið er gott. Mikið er um að þarna séu haldnar veislur, ekki síst brúð­kaups­veislur, enda frá­bær aðstaða til slíks og svo geta allir gest­irnir gist á staðnum.

Vatnsdropar í viskíið

Viskí er eitt af ein­kenn­is­táknum Skotlands og í land­inu eru fram­leidd yfir 2.200 vöru­merki af þessum eðal­drykk. Viskíhér­uðin í land­inu eru sex tals­ins og þar með teg­und­irnar því þær hafa mis­mun­andi karakter eftir því á hvaða svæði þær eru fram­leiddar. Vinsælt er að fara í

Viskí er eitt af ein­kenn­is­táknum Skotlands og í land­inu eru fram­leidd yfir 2.200 vöru­merki af þessum eðal­drykk.

viskís­mökkun og skammt frá Meldrum House Country Hotel er viskíverk­smiðjan Glen Garioch þar sem boðið er upp á viskís­mökkun og skoð­un­ar­ferð um húsa­kynnin. Fyr­ir­tækið hefur í rúm 200 ár fram­leitt hand­unnið og ókald­hreinsað malt­viskí.

Til að finna karakt­er­inn í viskíinu eru oft settir nokkrir dropar af vatni út í það en við það verður ilm­ur­inn og bragðið fyllra, líkt og þegar nýbúið er að rigna þá finnst lyktin af gróðri miklu betur.

Upplifun fólks af styrk­leika viskís er per­sónu­bundin, það er sem sagt mis­jafnt hversu sterkt fólk á að hafa viskíið sem það drekkur. Ef það finnur fyrir bruna í háls­inum þegar það tekur sopa er drykk­ur­inn of sterkur. Dropum af vatni er þá bætt við þangað til viskíið verður pass­lega sterkt. Til er sér­stakt vatn til að setja út í viskí frá mis­mun­andi stöðum í Skotlandi og bragðið verður mis­mun­andi eftir upp­runa vatns­ins.

Litríkt fiskiþorp

Óhætt er að mæla með leið­sögn um borg­ina og fá þannig sög­una og helstu perlur stað­ar­ins beint í æð. Litla fiski­þorpið í mynni hafn­ar­innar í Aberdeen er sér­stak­lega áhuga­vert. Það er kallað Footdee eða Fittie og sam­anstendur af tveimur svæðum með litlum húsum sem byggð eru í fer­hyrn­ing. Í gamla daga bjuggu sjó­menn og fjöl­skyldur þeirra í hús­unum. Þó að margar af þessum fjöl­skyldum búi þarna enn þá er fiskilífið á miklu und­an­haldi. Á árum áður mátti sjá eig­in­kon­urnar sitja við úti­dyrnar að gera við net og skipt­ast á sögum við nágrann­ana. Fiskinet voru víðs vegar þar sem greiða þurfti úr flækjum og hengja þau til þerris. Þessi litlu hús og garð­arnir hafa þó fengið að halda sér. Húsin hafa öll sinn sjarma, eru lit­rík og marg­vís­lega skreytt. Sumum er vel haldið við, öðrum ekki. Þarna er dásam­legt að vera og svo­lítið eins og að koma inn í nýja ver­öld úr ys og þys borg­ar­lífs­ins.

Skosku hálöndin ættu allir að heim­sækja ein­hvern tím­ann á ævinni. Þau eru svo fal­leg, full af dýrð­ar­ljóma og sögu. Þau eru meðal ann­ars þekkt fyrir þá fjöl­mörgu kast­ala sem þar eru.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur