Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjölskylduvænt Jótland

Hrönn Helga­dóttir segir frá stöð­unum á Jótlandi sem fjöl­skyldan heim­sækir mest.

Fjölskylduvænt Jótland
Hrönn Helga­dóttir ásamt fjöl­skyld­unni.

Hrönn Helga­dóttir býr í Horsens, ásamt eig­in­manni og tveimur börnum, og starfar sem hár­snyrtir. Hún segir að bær­inn sé frekar rólegur og stutt í alls­konar skemmti­lega afþr­ey­ingu. Hún segir okkur frá stöð­unum sem þau heim­sækja mest en það eru staðir sem henta vel fyrir börnin.

„Hverfið sem við búum í er aðeins fyrir utan mið­bæ­inn en samt er ég bara um 5-7 mín­útur að hjóla í vinn­una í mið­bænum. Umhverfið í kringum okkur er frá­bært. Við erum með skóg og tjörn og rétt hjá okkur er stór almenn­ings­garður með leik­velli, grill­að­stöðu og alls­konar afþr­ey­ingu. Þangað er ynd­is­legt að hjóla á sumrin með nesti og sleikja sól­ina. Við hjólum allan árs­ins hring og það er frá­bært hvað vet­ur­inn er mildur og sum­arið langt. Jótland hefur upp á margt að bjóða en þeir staðir sem við höfum sótt eru aðal­lega skemmti­garðar og barn­vænir staðir. Svo höfum við líka farið nokkra túra til Þýsklands. Það tekur ekki nema rúma klukku­stund að keyra til Flens­borgar héðan. Það er mik­ill kostur að geta farið á bílnum í frí til Evrópu í stað þess að fljúga allt eins og þegar við bjuggum á Íslandi. Við vorum t.d. í Þýska­landi um pásk­ana og stefnum á túr um Evrópu fljót­lega.“

Lalandia er við hliðin á Legol­andi og er inn­an­dyra vatna­ver­öld, ásamt skauta­svelli, skíða­braut, keilu, og ýmis­legu fleiru. Þangað förum við mest yfir vetr­ar­tím­ann, helst til að fara í baðlandið.

Djurs Sommerland

Djurs er okkar upp­á­halds­staður, við höfum keypt okkur árspassa í garð­inn síð­ustu tvö ár og stefnum á að gera það sama í ár. Við erum rúman klukku­tíma að keyra þangað, förum að morgni með nest­i­s­pakka eða kjöt á grillið og komum heim að kvöldi. Garð­ur­inn er blanda af vatns­renni­brauta- og skemmti­garði, risa­stór með fjöl­breyttum gras­flötum þar sem hægt er að sitja og njóta. Einnig er fjöld­inn allur af grill­stæðum. Nóg er af tækjum og afþr­ey­ingu fyrir alla ald­urs­hópa og við for­eldr­arnir skemmtum okkur alveg jafn­vel og börnin. Það sem hann hefur fram yfir aðra garða er að maður finnur ekki eins mikið fyrir fjöld­anum og rað­irnar verða ekki eins langar.

Lalandia

Lalandia er við hliðin á Legol­andi og er inn­an­dyra vatna­ver­öld, ásamt skauta­svelli, skíða­braut, keilu, og ýmis­legu fleiru. Þangað förum við mest yfir vetr­ar­tím­ann, helst til að fara í baðlandið. Maður fær svo­lítið á til­finn­ing­una að vera á sól­ar­strönd; það er heitt þarna inni og sól­bekkir úti um allt. Svo fer maður bara á sund­fötum og kaupir sér að borða eða ís, mjög kósí. Þarna er fjöld­inn allur af renni­brautum, öldu­laug, smá­barna­laug og barna­ver­öld. Einnig eru heitir pottar og gufu­böð.

Randers Regnskov

Í Randers sem er í fjöru­tíu mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Horsens er flottur inn­an­dyra regn­skógur sem skipt­ist í þrjár hvelf­ingar; Asíu, Suður-Ameríku og Afríku. Þar er hægt að sjá helstu dýrin sem lifa í þessum regn­skógum. Mínum börnum finnst fiðr­ilda­ver­öldin skemmti­leg­ust en þar fljúga fiðr­ildi í öllum stærðum, gerðum og litum allt í kringum mann. Fyrir utan er hefð­bundið skáta­leik­svæði með alls konar þrautum. Fræðandi og skemmti­leg upp­lifun fyrir bæði börn og full­orðna.

Saksild strand

Legoland er frá­bær garður og margt mjög skemmti­legt að sjá.

Hér í Horsens er lítil strönd í nán­ast göngu­færi við okkur og þar finnst krökk­unum meðal ann­ars svaka­lega gaman að fara á krabba­veiðar. Ef veðrið er virki­lega gott þá pökkum við í kæli­boxið og keyrum á einn af mínum upp­á­halds­stöðum, Saksild-strönd­ina, sem er dásemd með alger­lega hreinni strönd og blá­grænum sjó. Þar getur hit­inn orðið mik­ill og okkur líður oft eins og við séum á Spáni. Sjórinn er grunnur langt út, þannig að börnin geta vaðið eins og þau vilja meðan for­eldr­arnir liggja í leti. Stundum förum við nokkrar fjöl­skyldur saman og tökum grillið með og förum ekki heim fyrr en sólin sest. Þarna eru líka veit­inga­staðir og ísbúðir. Þetta er ódýr og frá­bær fjöl­skyldu­skemmtun.

Givskud ZOO

Rétt hjá okkur er skemmti­legur dýra­garður sem bæði er hægt að keyra í gegnum og rölta um. Þar er hægt að sjá allt frá fiskum og músum upp í fíla, ljón og gíraffa. Einu sinni sáum við þegar ljónin fengu sebra­hest að éta og það er upp­lifun sem börnin gleyma seint. Okkur finnst alltaf gaman að ganga í gegnum apa­garð­inn þar sem aparnir eru svo­lítið að stríða og við sáum einu sinni apa taka snuð af barni, setja það upp í sig og hlaupa í burtu. Ég mæli með því að þeir sem eru að ferð­ast á Jótlandi gefi sér tíma til þess að kíkja í Giveskud sem er ekki í nema fimmtán mín­útna akst­ursleið frá Legol­andi. Á öllum bíla­stæð­unum í garð­inum eru nestis- og grill­að­stæður og ég mæli með að fólk taki með sér nesti eða eitt­hvað á grillið í garð­ana því verðið á mat og drykk þar inni er í hærri kant­inum.

Legoland

Legoland þekkja senni­lega flestir en það er staður sem allir þurfa auð­vitað að heim­sækja þegar þeir koma hingað. Þar er alltaf rosa­lega margt fólk og langar biðraðir í öll tæki. Sér­stak­lega á háanna­tíma. Við mælum með því við okkar gesti að koma frekar í júní eða eftir miðjan ágúst til þess að fá sem mest út úr heim­sókn­inni. Legoland er frá­bær garður og margt mjög skemmti­legt að sjá. En takið með ykkur drykki og nesti, alla­vega eitt­hvað af því. Því tíu­þús­und­kall­arnir eru fljótir að hverfa í mat og drykk þarna inni.

Sonja Bríe og Helgi Sævar (7 og 5 ára á mynd­inni) á Saksild-strönd­inni á Jótlandi.

Mynda­texti: Sonja Bríe og Helgi Sævar (7 og 5 ára á mynd­inni) á Saksild-strönd­inni á Jótlandi.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Hrönn Helga­dóttir og www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur