Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ljúfur angan

Nokkur góð ráð varð­andi val á ilm­vatni til að auka end­ingu.

Ljúfur angan

Hvernig við skynjum ilm og hvaða ilmur okkur þykir góður er afar per­sónu­bundið. Þess vegna er mjög áhættu­samt að gefa ein­hverjum ilm­vatn að gjöf, það er, ef við­kom­andi hefur ekki valið sér það sjálfur. En þegar við höfum loks­ins fundið rétta ilm­inn fyrir okkur þá viljum auð­vitað að hann end­ist sem lengst á okkur. Hér eru nokkur góð ráð varð­andi val á ilm­vatni til að auka end­ingu og hvernig sé best að geyma þau.

Yfir­leitt er mikil vinna lögð í hönnun ilm­vatsnglasa og því er til­valið að stilla þeim fal­lega upp á snyrti­borði eða kommóðu.

1. Ilmvötn hafa tak­mark­aðan líf­tíma síðan fer lyktin að breyt­ast og dofna. Ákveðnir þættir geta haft áhrif á og tak­markað líf­tím­ann, þá sér­stak­lega hiti, birta og raki. Þess vegna er óráð­legt að geyma ilm­vötn inni á bað­her­bergi eða úti í glugga­kistu og mælst er til að geyma þau frekar á þurrum og skugg­sælum stað. Það þýðir þó ekki að þú þurfir að geyma þau inni í skáp. Yfir­leitt er mikil vinna lögð í hönnun ilm­vatsnglasa og því er til­valið að stilla þeim fal­lega upp á snyrti­borði eða kommóðu, margir hafa til dæmis notað fal­lega bakka eða köku­diska.

2. Ilmur end­ist skemur á þurri húð og þess vegna er mik­il­vægt að bera krem á húð­ina ef þú vilt að hann end­ist lengur. Mörg ilm­vatns­merki fram­leiða body lotion með sama ilmi sem vissu­lega eykur áhrif hans en það er ekk­ert síðra að nota gott ilm­laust krem. Einnig mæla sumir sér­fræð­ingar með því að bera vaselín á þá staði sem þú spr­eyjar ilm­vatn­inu á því það myndar nokk­urs konar hjúp á milli ilm­vatns­ins og húð­ar­innar og eykur þannig end­ingu.

Algengt er að sjá konur nudda úln­lið­unum saman eftir að þær hafa spreyjað ilm­vatni á sig en það eru mikil mis­tök. Það verður til þess að toppnótur ilms­ins hverfa hraðar og ilm­ur­inn end­ist skemur á úln­liðnum.

3. Spreyj­aðu ilm­vatni á helstu púls­staði lík­am­ans, það er úln­liði, háls og oln­boga- og hnés­bætur, því það tryggir að ilm­ur­inn dreif­ist vel. Best er að spreyja á sig ilm­vatni þegar maður er nýkom­inn úr sturtu og áður en maður klæðir sig því þá er húðin rök og grípur frekar ilm­inn. Þetta kemur líka í veg fyrir að ilm­vatnið liti við­kvæm föt eða skart­gripi. Algengt er að sjá konur nudda úln­lið­unum saman eftir að þær hafa spreyjað ilm­vatni á sig en það eru mikil mis­tök. Það verður til þess að toppnótur ilms­ins hverfa hraðar og ilm­ur­inn end­ist skemur á úln­liðnum. Ef þú vilt aðeins fá léttan ilm eða ert að bæta á þig örlítið meira ilm­vatni fyrir kvöldið er snið­ugt að spreyja ilm­vatn­inu létt upp í loftið og ganga inn í mistrið. Margar konur spreyja ilm­vatni í hárið á sér milli þvotta, enda er mikil upp­gufun sem fer fram í gegnum höf­uðið, ilm­vatn sem inni­heldur alka­hól getur þó þurrkað hárið óþarf­lega mikið og þá er betra að spreyja ilm­vatn­inu í hár­bursta og renna honum svo í gegnum hárið.

4. Það getur reynst flókið að finna sér nýjan ilm og nauð­syn­legt að vera með helstu hug­tök á hreinu. Eau de toi­lette er með létt­ari ilm en Eau de parfum og er þar af leið­andi yfir­leitt aðeins ódýr­ari. Ilmnótur skipt­ast niður í grunn-, mið- og toppnótur en ilmur getur ýmist verið blóm­legur, sætur, krydd­aður eða sítrus- og ávaxta­kenndur. Einnig er hægt að fá ilm í föstu formi eða sem hreina ilmolíu, en slíkur ilmur er oftar en ekki kröft­ugri en sá sem er spreyjaður.

est er að spreyja á sig ilm­vatni þegar maður er nýkom­inn úr sturtu og áður en maður klæðir sig því þá er húðin rök og grípur frekar ilm­inn.

5. Það er mjög mis­jafnt hvernig ilm­vötn lykta á fólki. Í flestum versl­unum er að finna þar til gerðan pappír sem þú getur spreyjað á áður en þú reynir eitt­hvað á eigin skinni. Ef þú hins vegar lendir í því að þú spr­eyjar á þig ilm­vatni sem hentar þér alls ekki er gott að strjúka meik­hreinsi­klút yfir svæðið til að fjar­lægja ilm­inn. Sniðugt er að blanda ólíkum ilm­vötnum saman til að fá ein­stakan ilm sem ein­kennir þig. Þá er snið­ugt að nota prufu­papp­ír­inn til að prófa ólíkar blöndur. Þum­al­putta­reglan segir að þú eigir að byrja á þyngri ilmi og enda á létt­ari, því ann­ars er hætta á að sá létt­ari kæf­ist. Til að finna sanna lykt ilm­vatns­ins verður að spreyja því á húð og leyfa því að bíða í nokkrar mín­útur á meðan það rýkur aðeins og aðlag­ast þér.

6. Ilmvötn má nota á fjöl­marga vegu, til dæmis er snið­ugt að spreyja upp­á­halds­ilm­vatn­inu þínu á sæng­ur­fötin þín. Einnig er hægt að spreyja því á tis­sjúpappír sem þú setur í skúff­urnar þar sem þú geymir fötin þín þannig að þau dragi í sig örlít­inn ilm. Góð leið til að nýta síð­ustu dropana af ilm­vatni sem leyn­ist á botni glass­ins er að hella því út í lykt­ar­laust body lotion og gefa því þannig ilm.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur