Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kyrrð, ró og gott mannlíf

Anna Björg Krist­ins­dóttir segir gott að búa í bæj­ar­kjarn­anum Him­l­ingøje í nágrenni Kaup­manna­hafnar.

Kyrrð, ró og gott mannlíf
Bærinn er lít­ill, nán­ast aðeins ein gata með nokkrum húsum, félags­heim­ili og kirkju.

Anna Björg Krist­ins­dóttir hefur búið í litlum bæj­ar­kjarna sem heitir Him­l­ingøje í Danmörku. Him­l­ingøje er 13 kíló­metra suður af Køge og þar hafa fund­ist forn­leifar sem taldar eru frá elstu byggðum Dan­merkur, meðal ann­ars minjar frá tímum Róma­veldis. Bærinn er lít­ill, nán­ast aðeins ein gata með nokkrum húsum, félags­heim­ili og kirkju. Í kring liggja akrar og sveitir og að mati Önnu Bjargar eru helstu kostir stað­ar­ins kyrrð, ró og gott mann­líf.

Stevns Klint
Er á heimsminja­skrá UNESCO. Klett­ur­inn er sam­an­settur úr kalk­steinslögum sem hafa mikla þýð­ingu fyrir jarð­vís­inda­sög­una en í honum sjást meðal ann­ars jarð­lög frá því að risa­eðl­urnar lifðu og dóu út. Meðfram klett­inum liggur 20 km langur göngu­stígur sem hægt er að ganga á góðum degi frá Rødvig til Bøgeskoven, eða öfugt, og margir áhuga­verðir sögu­staðir á leið­inni. Á meðal þeirra er kirkjan í Højerup sem var byggð vel inni í landi á þrett­ándu öld en með tím­anum hefur sjór­inn sorfið úr klett­inum og hluti af kirkj­unni féll í hafið 1928. Í Rødvig eru líka veit­inga- og gisti­staðir og því til­val­inn áfanga­staður fyrir þá sem vilja sjá eitt­hvað meira en Kaup­manna­höfn í Dan­merk­ur­ferð­inni.

Kalda­stríðs­safnið
Hern­að­ar­lega séð var svæðið við Stevns Klint mjög mik­il­vægt á tímum kalda stríðs­ins. Hér er hægt að sjá minjar þessa gamla tíma þegar gert var ráð fyrir að ef til átaka kæmi milli aust­urs og vest­urs, yrði aðgerðum NATO stjórnað úr neð­an­jarð­ar­byrgjum við Stevns Klint. Möst fyrir sögu­á­huga­fólk!

Við kast­al­ann er svo Vallø Slotskro sem er vand­aður veit­inga­staður og gisti­heim­ili.

Vallø-kast­ali
Kastal­inn var byggður um miðja 16. öld og hefur verið búið í honum nán­ast sam­fleytt síðan. Þó brann hluti af honum árið 1893 en útveggirnir stóðu og inn­viðir voru end­ur­byggðir. Í dag eru alls níu íbúðir í kast­al­anum og því ekki hægt að skoða hann að innan en við komum oft hingað til að fara í göngutúr með hund­inn í kast­a­la­garð­inum, sem er opinn almenn­ingi. Það er ynd­is­legt að ganga þarna um en garð­ur­inn er ein­stak­lega fal­legur á sumrin og mikið not­aður til úti­veru. Við kast­al­ann er svo Vallø Slotskro sem er vand­aður veit­inga­staður og gisti­heim­ili en ekki nóg með það, heldur var hann val­inn „Årets Bedste Bo og Spis-sted i Danmark“ fyrir árið 2017 af Den danske Spiseguide. Í fimm mín­útna fjar­lægð er 18 holu golf­völlur.

TeBønnen – Køge
Þetta er mín upp­á­halds­verslun á svæð­inu. Hér fæst úrval af gæða­tei og -kaffi, ásamt ýmiss konar mat­vælum frá dönskum smá­fram­leið­endum; súkkulaði, krydd­blöndur, hun­ang og alls konar mar­melaði, svo eitt­hvað sé nefnt. Reyndar er alveg þess virði að fá sér göngu um mið­bæ­inn í Køge og skoða gömlu skökku húsin sem gefa versl­un­unum ein­stakt yfir­bragð.

Dhaba – Køge
Og þegar maður er búinn að ganga um mið­bæ­inn liggur beint við að fá sér eitt­hvað gott að borða. Mögu­leik­arnir eru margir en ég ætla að mæla með Dhaba, ind­verskum stað sem geymir ein­hver ótrú­leg leynd­ar­mál í pott­unum!

Stevns Klint er á heimsminja­skrá UNESCO. Klett­ur­inn er sam­an­settur úr kalk­steinslögum sem hafa mikla þýð­ingu fyrir jarð­vís­inda­sög­una en í honum sjást meðal ann­ars jarð­lög frá því að risa­eðl­urnar lifðu og dóu út.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur