Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Birgir Breiðdal vill nota fótboltann til að stuðla að betri heimi

Ungar íslenskar fót­bolta­konur fengu það frá­bæra tæki­færi að stunda nám í alþjóð­legum heima­vist­ar­skóla á Spáni og iðka jafn­framt íþrótt sína af kappi.

Birgir Breiðdal vill nota fótboltann til að stuðla að betri heimi

TNGS (The Next Generation Sports) er alþjóð­legur heima­vist­ar­skóli í Valencia á Spáni. Skólinn hefur verið starf­ræktur í sjö ár og býður meðal ann­ars upp á ein­stak­lings­mið­aða þjálfun í knatt­spyrnu, nám á fram­hald­s­kóla­stigi og í lífs­leikni. Mikil áhersla er lögð á að und­ir­búa unga leik­menn and­lega og lík­am­lega fyrir fram­tíð­ina.

Nú er komið að stelp­unum, en sett hefur verið á lagg­irnar kvenna­deild innan skól­ans þar sem íslenskum stúlkum gefst tæki­færi til að láta til sín taka. Unnið er að því að stofna lið sem mun taka þátt og keppa í spænsku deild­inni næsta vetur, undir stjórn spænskra þjálf­ara. Birgir Breiðdal, yfir­þjálf­ari stúlkna í U12 liði Þróttar, er umsjón­ar­maður verk­efn­is­ins.

Birgir nam arki­tektúr í Mílano og starf­aði m.a. lengi á Ítalíu, jafnt við fagið sem og gat hann sér gott orð sem mynd­list­ar­maður. Hann hafði nóg að gera en fann sig aldrei almenni­lega í starf­inu þar sem kyrr­setan og inni­veran er mikil. Fjöl­skyldan ákvað að flytja aftur til Íslands árið 2009 og segja má að örlögin hafi þá gripið í taumana. „Rétt eftir að við fluttum heim vorum við í miðju hrun­inu. Þegar kreppir að eru arki­tektar og mynd­list­ar­menn auð­vitað með þeim fyrstu sem missa vinn­una. Ég var í raun fyrir löngu búinn að teikna yfir mig og var til­bú­inn að gera eitt­hvað annað,“ segir Birgir.

Dóttir hans var byrjuð að æfa fót­bolta með Val og þegar kom að þjálf­ara­fríi í félag­inu var send út beiðni til for­eldra, hvort ein­hver treysti sér til að taka við þjálfun­inni í frí­inu. Birgir ákvað að slá til og seg­ist fljótt hafa fundið að þarna væri hann á réttri hillu. „Ég uppgvötaði nýjan hæfi­leika hjá sjálfum mér, að vinna með fólki, með krökkum. Á þessum tíma­punkti snérist allt umtal í þjóð­fé­lag­inu um Icesave og raus um hrunið, en á meðan var ég úti að leika mér með krökk­unum, sem var ynd­is­legt.“

Árið 2011 byrj­aði Birgir svo að starfa sem þjálf­ari hjá FRAM og tók síðan form­lega við þjálf­ara­starf­inu sem yfir­þjálf­ari kvenna­deildar Þróttar 2016. „Þegar ég byrj­aði var ég kom­inn yfir fer­tugt en hefði viljað byrja fyrr. Ég vissi ekki almenn­in­lega hvað ég vildi gera áður en ég byrj­aði að þjálfa.“ Birgir á sjálfur ekki langan knatt­spyrnu­feril að baki en að hans mati er það ekki grund­vall­ar­at­riði. „Maður þarf ekki að vera besti fót­bolta­mað­ur­inn til að vera besti þjálf­ar­inn. Aðal­málið er að hafa mik­inn áhuga, góðan leikskiln­ing, lesa völl­inn og taka góðar ákvarð­anir. Ég á tvær dætur sem eru í lið­inu sem ég þjálfa, en inni á vell­inum gleymi ég því stundum. Þar eru þær ekk­ert öðru­vísi fyrir mér en hinar stelp­urnar. Mér þykir alveg jafn­vænt um hinar og lít í raun og veru á þær allar sömu augum.“

Lestu við­talið við Birgi í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar. Þar sem einnig má finna nán­ari upp­lýs­ingar um þetta spenn­andi verk­efni.

Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir

Myndir: Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur